Alþýðublaðið - 24.03.1926, Side 1

Alþýðublaðið - 24.03.1926, Side 1
Gefid úf af Mpýðaflokkaains 71. tölublað, Miðvikudaginn 24. marz, „Dagsbrúnart4-fnndur á morgun, fimtudag 25. p. m„ ki. 8 e. h. i Good-Templarahúsinu' Fundarefni; Kanpdeilan. Allir félagar sýni skirfeiní. Stjórnin. Kaupdeilan. Hvað tefur fyrir sstsn- komnlagi? Almenningur á erfitt með að trúa pví, að fimrn aurarnir tii kvenfólksins standi svo mjög fyrir brjóstinu á atvinnurekendum, að ekki geti þeirra vegna dregið til sátta. Fullyrt er iílm, að margir atvinnurekendur séu rnjög óá- nægðir með pverúð forkólfa sinna. Ýmsum togaraeigendum pykir pófið ganga langt úr hófi. Al- pýðublaðið getur líka staðhæft eftir góðum heimildum, að félag peirra hefir þegar fengið formanni sínum, Ólafi Thórs, fult umboð til að ganga að samkomulagi. Á honum virðist því standa. Hvað honum getur gengið til að standa í vegi fyrir samkomu- lagi, skal ósagt látið, en hitt er vitað, að hagsmunir félags hans og ef til vill fáeinna fleiri í hópi útgerðarmanna, sem leggja meiri áherzlu á fiskverzlunina en fisk- veiðina, fara ekki saman við hags- muni hinna, alls þorrans, sem parf að nota vertiðina til fisk- öflunar og vill það. Grlend símskeyti. Khöfn, FB., 22. marz. Sakaruppgjöf og hegningar- bætur. Frá Moskva er símað, að ráð- stjór'nin tilkynni opinberlega, að 8 af þátttakendum í morðinu á Al- exander keisara II., sem enn eru á lífi, skuli hafa 235 rúblur mán- aðarlega. í eftirlaun. Alexander II. var myrtur 1881. Khöfn, FB., 23. marz. Heimskautsfar Amundsens. Frá Rómaborg er símað, að á- kveðið hafi verið, að heimskauts- far Amundsens fari þaðan 26. marz, Stresemann skýrir frá Genfar- fundinum. Frá Berlín er símað, að Strese- mann hafi í gær skýrt ríkisþing- inu frá Genfar-fundinum. Kvað hann afstöðu Þjóðverja gagnvart Bandamönnum hvíla á sama grundvelli og áður. Þrátt fyrir atburðinn væri Locarno-samþykt- inni engin hætta búin. Iimleiasl tíðiifidi. fsafirði, FB., 22. marz. Samúðarverkfall. Verkamannafélagið „Baldur“ á- kvað á fundi í gær að vinna við öll þau skip, er hér hafa lagt upp áður, — að eins ekki við togara frá Reykjavík. — Kolaskip er að koma til J. S. Edwalds. Afiabrögð. Hávarður kom inn á laugardag með 101 tn. lifrar. Ágætisfiski hér. 3—7 pús. pd. á bát. Stutt róið. Seyðisfirði, FB., 24. marz. Tíðarfar. Sólskin og sumarblíða er hér daglega síðan um fyrri heigi, en næturfrost. Heilsufar gott, nerna mislingar útbreiðast. Eru vægir. Reykjavíkur-víðvarpið heyrist hér illa, segja móttökuáhaldaeigendur og eru óánægðir. Aflabrögð. Mokafli á Austfjörðum síðustu viku, áframhaldandi. Á Hornafirði fá bátar að jafnaði 5—16 skpd. Einn fékk síðasta mánudag 21 skpd. Varð hann þar af að koma 6 á annan bát, en sjálfur flaut hann með 15. Netabáturinn Sæ- farinn kom inn á mánudag til Eskifjarðar með 12000 af stór- fiski. Var pað vikuveiði. Á Djúpa- vogi voru komin á land síðustu viku 292 skpd., alt handfæraveiði; fékk einri véibátur með 4 mönn- um t. d. 9 skpdí á laugardaginn. Á Fáskrúðsfirði fá bátar í róðri 12 tii 15 skpd.; alt á handfæri. Á Norðfirði fengu 2 vélbátar i gær 9 skpd. hvor á nýveidda ioðnu- beitu par. Á Seyðisfirði og Norð- firði ha-fa róðrarbátar orðið fisk- varir síðustu viku. Er það .alveg óvenjulegt um petta leyti. Hafa þeir fengið 1—2 rúm af góðum göngufiski. Þórður Ólafsson, kolakaupmaður, skipar að renna bifpeið á mannfjölda. Þórður Ólafsson kolakaupmað- ur gerði f gær tilraun til að rjúfa verkfallið. Byrjaði hann á að láta skipa út kolum í Suður- landið'kl. 4,30 e. m., en sú til- raun var bráðlega heft. Skipaði Þórður þá, að bifreið væri rent aítur á bak á fullri ferð beint á mannfjöldann. Þeirri manhdráps- tilraun varð þó afstýrt og bif- reiðin stöðvuð. Auk Þórðar bar einna mest á í flokki verkfalls- brjóta: Jóni í Hákonarbæ, Helga frá Tungu, Ágústi Benediktssyni vélstjóra og Jóni Kristjánssyni bif- reiðarstjóra á Laugavegi 49. Alþýðan man, hverjir mest ganga á móti henni, ekki sízt í kaupdeilum. © * & i,- V

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.