Alþýðublaðið - 24.03.1926, Blaðsíða 1
Gefid úf af Mpýðaflokkaains
71. tölublað,
Miðvikudaginn 24. marz,
„Dagsbrúnart4-fnndur
á morgun, fimtudag 25. p. m„ ki. 8 e. h.
i Good-Templarahúsinu'
Fundarefni; Kanpdeilan.
Allir félagar sýni skirfeiní. Stjórnin.
Kaupdeilan.
Hvað tefur fyrir sstsn-
komnlagi?
Almenningur á erfitt með að
trúa pví, að fimrn aurarnir tii
kvenfólksins standi svo mjög fyrir
brjóstinu á atvinnurekendum, að
ekki geti þeirra vegna dregið til
sátta. Fullyrt er iílm, að margir
atvinnurekendur séu rnjög óá-
nægðir með pverúð forkólfa sinna.
Ýmsum togaraeigendum pykir
pófið ganga langt úr hófi. Al-
pýðublaðið getur líka staðhæft
eftir góðum heimildum, að félag
peirra hefir þegar fengið formanni
sínum, Ólafi Thórs, fult umboð
til að ganga að samkomulagi. Á
honum virðist því standa.
Hvað honum getur gengið til
að standa í vegi fyrir samkomu-
lagi, skal ósagt látið, en hitt er
vitað, að hagsmunir félags hans
og ef til vill fáeinna fleiri í hópi
útgerðarmanna, sem leggja meiri
áherzlu á fiskverzlunina en fisk-
veiðina, fara ekki saman við hags-
muni hinna, alls þorrans, sem
parf að nota vertiðina til fisk-
öflunar og vill það.
Grlend símskeyti.
Khöfn, FB., 22. marz.
Sakaruppgjöf og hegningar-
bætur.
Frá Moskva er símað, að ráð-
stjór'nin tilkynni opinberlega, að 8
af þátttakendum í morðinu á Al-
exander keisara II., sem enn eru
á lífi, skuli hafa 235 rúblur mán-
aðarlega. í eftirlaun. Alexander II.
var myrtur 1881.
Khöfn, FB., 23. marz.
Heimskautsfar Amundsens.
Frá Rómaborg er símað, að á-
kveðið hafi verið, að heimskauts-
far Amundsens fari þaðan 26.
marz,
Stresemann skýrir frá Genfar-
fundinum.
Frá Berlín er símað, að Strese-
mann hafi í gær skýrt ríkisþing-
inu frá Genfar-fundinum. Kvað
hann afstöðu Þjóðverja gagnvart
Bandamönnum hvíla á sama
grundvelli og áður. Þrátt fyrir
atburðinn væri Locarno-samþykt-
inni engin hætta búin.
Iimleiasl tíðiifidi.
fsafirði, FB., 22. marz.
Samúðarverkfall.
Verkamannafélagið „Baldur“ á-
kvað á fundi í gær að vinna við
öll þau skip, er hér hafa lagt upp
áður, — að eins ekki við togara
frá Reykjavík. — Kolaskip er að
koma til J. S. Edwalds.
Afiabrögð.
Hávarður kom inn á laugardag
með 101 tn. lifrar. Ágætisfiski hér.
3—7 pús. pd. á bát. Stutt róið.
Seyðisfirði, FB., 24. marz.
Tíðarfar.
Sólskin og sumarblíða er hér
daglega síðan um fyrri heigi, en
næturfrost. Heilsufar gott, nerna
mislingar útbreiðast. Eru vægir.
Reykjavíkur-víðvarpið heyrist hér
illa, segja móttökuáhaldaeigendur
og eru óánægðir.
Aflabrögð.
Mokafli á Austfjörðum síðustu
viku, áframhaldandi. Á Hornafirði
fá bátar að jafnaði 5—16 skpd.
Einn fékk síðasta mánudag 21
skpd. Varð hann þar af að koma
6 á annan bát, en sjálfur flaut
hann með 15. Netabáturinn Sæ-
farinn kom inn á mánudag til
Eskifjarðar með 12000 af stór-
fiski. Var pað vikuveiði. Á Djúpa-
vogi voru komin á land síðustu
viku 292 skpd., alt handfæraveiði;
fékk einri véibátur með 4 mönn-
um t. d. 9 skpdí á laugardaginn. Á
Fáskrúðsfirði fá bátar í róðri 12
tii 15 skpd.; alt á handfæri. Á
Norðfirði fengu 2 vélbátar i gær
9 skpd. hvor á nýveidda ioðnu-
beitu par. Á Seyðisfirði og Norð-
firði ha-fa róðrarbátar orðið fisk-
varir síðustu viku. Er það .alveg
óvenjulegt um petta leyti. Hafa
þeir fengið 1—2 rúm af góðum
göngufiski.
Þórður Ólafsson,
kolakaupmaður,
skipar að renna bifpeið
á mannfjölda.
Þórður Ólafsson kolakaupmað-
ur gerði f gær tilraun til að
rjúfa verkfallið. Byrjaði hann á
að láta skipa út kolum í Suður-
landið'kl. 4,30 e. m., en sú til-
raun var bráðlega heft. Skipaði
Þórður þá, að bifreið væri rent
aítur á bak á fullri ferð beint á
mannfjöldann. Þeirri manhdráps-
tilraun varð þó afstýrt og bif-
reiðin stöðvuð. Auk Þórðar bar
einna mest á í flokki verkfalls-
brjóta: Jóni í Hákonarbæ, Helga
frá Tungu, Ágústi Benediktssyni
vélstjóra og Jóni Kristjánssyni bif-
reiðarstjóra á Laugavegi 49.
Alþýðan man, hverjir mest
ganga á móti henni, ekki sízt í
kaupdeilum.
©
*
&
i,-
V