Alþýðublaðið - 26.03.1926, Qupperneq 1
Gefid út af Aiþýðuflokknum
1926.
Gengið og kaupið.
• „Mgbl.“ í morgun ritar um
gengiö og kaupið og vill kenna
verkafólki, ef krónan lækkaði. Þaó
skyldi blaðið ekki hafa gert. Það
er burgeisunum að kenna, að
krónan náði ekki hærra verði en
er, og það er óráðsíu burgeisa
að kenna, að nú er þegar allur
arður góðærisins mikið til upp
étinn, svo að t. d. íslandsbanki er
í hvínandi vandræðum með að sjá
íitgerðinni fyrir rekstrarfé og
þurfti að leita aðstoðar alþingis,
og þess vegna er nú hætta á, að
krónan falii, nema vel sé á haldið.
Afstaða verkafólks við gengis-
málinu er sú, sem hún hefir verið,
að það á heimtingu á að njóta
hagsbóta af hækkun, þar eð þáð
beið tjón við lækkunina. Þess
vegna á kaup ekki að lækka fyrr
en peningarnir hafa hækkað svo,
að vöruverð hefir lækkað veru-
lega, og kaupið á því að eins að
að lækka, að trygging sé fyrir pví,
ao ekki verdi krónan pegar á eftir
stýfd og par med felcl í verdi, en
dýrtíd aukin aftur.
C
Erlend símskeyti.
Khöfn, FB., 26. marz.
Seðlafölsunin i Ungverjalandi.
Þingið friar stjórnina.
Frá Buda-Pest er símað, að
þingið hafi úrskurðað með ör-
litlum meiri hluta, að Bethlen-
stjórnin hafi enga sök átt á föls-
unarmálinu.
Skip brennur. Hundrað manns
druklsnar.
Frá Rio de Janeiro er símað,
að kviknað hafi í brazilisku skipi
á leið þangað og hafi það sokkið.
Eitt hundrað manna drukknaði, en
'70 komust af.
Föstudaginn 26. marz.
Alþjóðaratkvæði um f urstaeign-
irnar i Þýzkalandi.
Frá Berlín er sírnað, að 13 millj.
marma hafi undirskrifað áskorun
um, að gert verði út um það með
alþjóðaratkvæði, hvort furstunum
verði afhentar aftur eignir þeirra.
„Dagsbrúnar“-fundurmn
i gærkveldi.
Svo fjölinennur var fundur
verkamannafélagsins ,Dagsbrúnar‘
í gærkveldi, að stóri salurinn í
G.-T.-húsinu var alveg troðfuliur
út úr dyruiji. 51 nýir félagar bætt-
ust við. Allir fundarmenn voru
með einu hjarta og einni sál og
sýndu greinilega, að samtökin eru
órjúfandi.
Nánara um andlát Brynjölfs heit-
ins Grimssonar.
Læknisskoðun hefir leitt i ljós,
að Brynjólfur heitinn Grimsson var
meiddur ú höfði. Á þriðjudagsnótt-
ina klukkan að ganga 12 fór bifreið
inn eftir veginum. Segir bifreiðar-
stjórinn svo frá, að þegar hann fór
fram hjá annari bifreið, sem var
kyr, sá hann, að maður var á reiki
fyrir aftan bifreiðina, og í því var
kallað. Hyggur hann, að Br. heit-
inn, sem var drukkinn, hafi komið
frarn hjá hinni bifreiðinni og slangr-
að utan í sina. Getur áverkinn hafa
stafað af því, en ekkert hefir komið
í ljós, sem sanni, að ekið hafi verið
yfir Brynjólf heitinn.
Verkfallsbrjötar og smyglarar.
1 gær laust eftir kl. 2 kom „Lyra“
að hafnarbakkanum vestri. Meö 'skip-
inu voru meðal annárs egg til Egg-
erts Kristjánssonar heildsala. Sendi
hann hinn alkunna Elías Holm til
að ná í þau. Tókst honum með
aðstoð einhverra Sinna líka að koma
11 kössum upp á bakkann og fá bif-
reið til-að taka þá. Komu þá nokkrir
verkamenn þar að og báðu bif-
reiðarstjórann að aka burf, og
gerði hann það orðalaust, svo sem
viturlegast var af honum. Urðu smá-
lauk fljótlega, og voru kassarnir
látnir út í „Lyru“ aftur. Svo, þegar
73. tölublað.
„Lyra“ fór kl. 6, fór Elías með henni
út fyrir eyjar og hafði vélbát þar
í fyrirsát fyrir skipinu. Fékk hann
þá kassana látna í bátinn og héit
síðan að Elíasar-bryggju. Þegar
þangað kom, tók lögreglan á móti
honum, lagði hald á kassana sem
tollsvikna vöru og flutti þá ' með
aðstoð verkamanha á tollstöðina.
Maðurinn með bátinn er alment kall-
aður „Bjössi hjá Kol. & Salt“. —
Svo fór um sjóferð þá, og má með
sanni segja, að ekki eru allar ferðir
til fjár, þótt farnar séu.
Guðspekifélagið.
Reykjavíkurstúkan heldur fund í
kvöld kl. 8,30. Efni: Hver er sinnar
gæfu smiður.
Engin tök á þvi.
Þrátt fyrir fjölda utanfélags-
manna, sem söfnuðust úti fyrir G.-
T.-húsinu í gær, meðan stóð á
„Dagsbrúnar“-fundi, hefir „Mbl.“
ekki getað flutt neina tvístrunar-"
sögu af fundinum.
Fyrirspurn.
Var „íöghlýðna“ manninum, sem
hamaöist mest á uppfyllingunni í
gær, ökunnugt um, að toll ber að
greiða af inhfluttum eggjum? Elli.
Veðrið.
Hiti mestur 4 st„ minstur 4 st.
frost; 3 st. í Rvík. Átt suðlæg, hæg.
Veðurspá: 1 dag: Breytileg vind-
staða; hægur á Norður- og Austur-
landi. Hæg suðlæg átt, þokuloft og
nokkur úrkoma á Suðvesturlandi. í
nótt: Sennilega suðaustlæg átt, hæg
á Norður- og Austur-landi.
Skriðdýrseðlið.
Þrátt fyrír allan gorgeirinn eru
eigendur „Mgbl.“ orðnir skelkaðir
við mátt verkalýðssamtakanna. Þess
vegna eru skósveinarnir teknir að
flíka því nafni, sem þeir eru alt af
vanir að skríða fyrir og kyssa dufú
ið, — kóngsnafninu. Þegar hjartað
sígur, t.itra skankarnir með.
vegis ryskingar við Elías, en þeim
Long prestspjónusta.
Elzti prestur í Englandi sagði ný-
lega af sér prestsskap 102 ára gam-
all. Hafði hann þá verið prestur í
73 ár. Faðir hans tók þátt í orust-
unni við Trafalgar.