Alþýðublaðið - 31.03.1926, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐID
lALÞÝÐUBLAÐIB |
< kemur út á hverjum virkum degi. [
< ===== — - . y
í Afgreiðsla í Alpýðuhúsinu við >
< Hverfisgötu S opin frá ki. 9 árd. J
] íil kl. 7 síðd. I
< Skrifstofa á sama stað opin kl. t
< 9"ýa—10 La árd. og kl. 8—9 síðd. 1
* Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 ►
(skrifstofan). >
< Verðlag: Áskriftarverð kr. .1,00 á ►
< mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 I
} hver mm. eindálka. ►
Alplngi.
Neðri deild.
Þar var í gær frv. um skip-
strönd og vogrek vísað umræðu-
laúst til 2. umr. og' allsh.n. og síð-
an byrjuðu umræður um síðari
hluta fjárlaganna og lauk peirri
umræðu laust eftir miðnætti. Mun
Hákoni í Haga hafa þótt deildar-
menn daufir í clálkinn, og tók
hann því það ráð að skemía þeim
með upplestri úr ritum Þórbergs
Þórðarsonar. Sfyrkurinn til orða-
söfnunar Þórbergs var samþyktur,
svo sem sjálfsagt var. Vildi Jón
Baldv. hækka hann upp i 1800 kr.,
en sú tillaga fékk þó ekki, nó'gú
mikið fylgi að þessu sinni. Benti
hann á. að rétt væ.ri og maklegt,
að alþingi bæíti Þórbergi það
upp, að hann hefir ómaklega verið
sviftur starf við tvo opinbera
skóia.
Hækkunin á styrknum til góð-
íemplarareglunnar upp í 10 þús.
kr. samkv. till. fjárv.n. var samþ.
að við höfðu nafnakaíli með 20
atkv. gegn 6. „Nei“ sögðu: Ben.
Sv„ Árni frá Múla, Bj. Líndal, H.
Stef., J. A. J. og Klemenz. Bernh.
neitaði að greiða atkv. Bjarni er
veikur. Aðrir voru með hækkun
þessari. — 500 krónurnar til slysa-
fryggingarsjóðs „Dagsbrúnar“
voru samþ. með 20 atkv. gégn 1.
Sá, sem var á móti, var einn
Reykjavíkur-þingmaðurinn, Jón
Þorláksson.
Efri deiid.
Þar voru 3 mál á dagskrá í
gær, og var eitt þeirra, till. til
þái. um eftirgjöf á skuidum, tekið
út af dagskrá eftir tilmælum flm.
Jónasar frá Hriflu. — Til!. til þál.
um rannsókn á veg- og brúa-
stæðum á Norður- og Austur-
landi var til einnar umr. Jónas,
sem er flm. till., talaði nokkur orð
fyrir till. Þá taíaði og atv.m.ráðh.
nokkur orð . Tók hann vel í mái-
jð og kvaðst mundu láta rann-
sókn þá, er um væri að ræða í
till., fara fram á sumri komanda,
9
ef vegamálastjóri sæi sér það fært
með þeirri aðstoð, sem hann nú
hefði eða kæmi til með að hafa
að sumri. Umr. um till. var frestað
'og henni vísað til samg.m.n. með
12' shij. aíkv. — Unr þál.till. um,
að landið kaupi björgunarskipiö
„Þór“, urðu litlar umræður. Jóh.
Jós. rakti með nokkrum orðum
sögu „Þórs“ og gat þess, hve vel
hann hefði reynst sem strand-
gæzluskip. J. M. fors.rábh. gat
þess, að í raun og veru hefði
eigi þurft ao koma fram með
þessa tili. um kaup á „Þór“, því
að stjómin hefði fyrir löngu feng-
ið heimild frá , alþingi tii slikra
kaupa. Hann gat þess enn fremur,
að sjálfsagt væri, að skipið héldi
áfram að gæta landhelginnar við
Vestmannaeyjar og á svæðinu þar
umhverfis," enda hefði og verið
krafist fjárframlags frá Vestm.-
eyjum vegna þessarar gæzlu. Jóh.
Jós. gat þess, að það væri beint
gert að skilyrði af hendi Vestm.'-
eyinga fyrir söiunni á „Þór“ í
hendur ríkisins, að hann héldi á-
fram að starfa á sama sviði og
hingað til, enda væru Vestmanna-
eyjar reiðubúnar til að leggja
fram fé í því skyni. Þái.tili. var
samþ. í einu hljóði til síðari umr.
Toíl-íæfekim og -eftireiof
á íslenzferi uil
í Batidaríkjimum.
(Tiikjmning ffá atvinnu- og sam-
göngu-raálaráðuneytinu.)
FB., 29. marz 1926.
Samkvæmt tilkynningu í sím-
skeyti frá utanríkisráðuneytinu
mun mega telja víst, að sú breyt-,
ing sé orðin á tollflokkun ullar
í Bandarikjunum í Norður-Ame-
ríku, að islenzk ull verði framveg-
is toiluð eftir 1101. gr. þar gild-
andi toillaga, en ekki eftir 1102.
gr„ sem hún befír verið tolluð efí-
ir undanfarið.
Samkvæmt 1101. gr. er toliur á
óþveginni ull . 12 cent á hv. ensku pd.
þveginni ull. . 18 — - — — —
fullþveginni ull 24 — - — — —
ull á gærum . . 11 — - — — —
Ef sú ull, sem hér um ræðir,
er flutt inn eftir ákveðnum
nánari reglum þar um, fæst toll-
urinn endurgreiddur, ef sannað er
fyrir tollstjórninni innan þriggja
ára frá innflutningnum, að hún
hafi að eins verið notuð til gólf-
dúljagerðar.
Með óþveginni ull er átt við
uli, sem að engu leyti er þvegin
eða hreinsuð, en með pveginni ull
er átt við ull, sem að eins er
þvegin úr vatni á skepnum eða
gærunum.
Samkvæmt 1102. gr. er 'aftur
á rnóti tollurinn bæði af óhreinni
og þveginni ull (miðast við full-
þvegna ull) 31 cent á hverju ensku
pundi, en af uli á gærum (einnig
miðað við fuilþvegna uli) 30 cent
'á hverju ensku pundi.
ísienzk uil hefir, eins og fyrr
segir, undan farið verið tolluð
eftir 1102. gr. téðra tolllaga eða
með hér um bil 3 kr. 13 aur.
hvert kg. með nú verandi dollara-
gengi, en eftir 1101. gr. er tollur
á henni fullþveginni 2 kr. 42 aur. á
hvert kg., en á óþveginni helmingi
lægri, og fæst hann samkvæmt
þeirri lagagrein eftirgefinn með
öllu, ef ullin er notuð eingöngu í
gólfdúka, en til góifdúkagerðar
mun íslenzk ull hafa verið notuð
mjög mikið í Bandaríkjunum.
Von er á nánari skýrslu uro.
málið innan. skamms.
Um daginn og veginn<>
Næturlæknir
er í nótt Daníel. Fjeld.steð, Lauga-
vegi 38, sími 1561, á föstudagsnótt
Ölafur Þorsteinsson, Skólabrú, sími
181, og á laugardagsnótt M. JúL
Magnús, Hvg. 30, simi 410.
Áhætta verkalýðsins.
í fyrra dag vildi það slys til við
uppskipun úr „Pendennis", að kola-
stj'kki féll úr töluverðri hæð og
kom i höfuð ungum verkamanni,
sem var að vinnu niðri i skipinu.
Féll hann í övit og vissi fyrst til
sín þá, er hann hafði verið flutt-
tir í sjúkrabúsið í Landakoti. Mað-
urinn heitir Oddur Óiafsson og á
heima á Óðinsgötu 9. Hefir hann
verið fluttur heim til sin, og gefur
læknir honum von um, að hann.
komist á fætur aftur eftir hálfan.
mánuð.