Alþýðublaðið - 06.04.1926, Page 2
r 2
ALÞÝÐUBLAHIÐ
< kemur út á hverjum virkum degi.
4 - ---------: —..... ■ ■ - >
‘ Afgreiðsla i Alpýðuhusinu við j
< Hverfisgötu 8 opin frá kl. 9 árd. ;
I‘ til kl. 7 síðd. !
Skrifstofa á sama stað opin kl. ;
9Va—10Va árd. og kl. 8—9 síðd.
Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 ;
< (skrifstofan). I
; Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á ;
< mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 I
J hver mm. eindálka. ;
< Prentsmiðja: Alþýðuprentsmiðjan :
< (i sama húsi, sömu símar). ;
4________________________________
Ellistyrhnr á Grænlanöi.
Eftir nokkrar umræÖur innan
pingflokkanna í ríkispinginu í
Danmörku hafa menn nú orðið
ásúttir um að koma á þeim um-
bótum á lífskjörum Grænlendinga,
er hafa munu víðtæk áhrif á af-
komu landsins og þjóðarinnar. —
Innanríkisráðherra Dana, Hauge,
sem ferðaðist til Grænlands í
sumar, er leið, til þess að kynna
sér þau kjör, er þjóðin á þar við
að búa, hefir nú fengið því til
vegar komið, að ákveðið er að
koma nú þegar á fót ellitrygg-
mgu fyrir Grænlendinga.
Nú, sem stendur, situr jafnað-
armannastjórn að völdum í Dan-
mörku'. Undan hennar rifjum er
þetta mannúðarmikla nýmæli
runnið. Er óhætt aÖ fullyrða, að
slikra umbóta hefði verið langt að
bíða frá íhaldsstjórnum á borð
við íhaldsstjórnina íslenzku.
Vér Islendingar gætum margt
lært af þessari ráðstöfun jafnað-
armannastjórnarinnar dönsku. Hún
hefir sýnt það, að hún lætur sér
ant um, að þeir menn, sem int
hafa dyggilega af hendi störf sín
í þágu þjóðfélagsins, þurfi eigi að
horfa með kvíða fram á elliárin;
og að hún metur starf þeirra að
verðleikum.
Nú sem stendur er á döfinni á
alþingi frv. um aldursjryggingar.
Frv. þetta gengur í þá átt, að
tryggja landsmönnum í telli þeirra
svo mikinn lífeyri eða ellistyrk, að
þeir geti lifað af honum og þurfi
eigi að kvíða þeim árum, er- þeir
fyrir aldurs sakir verða ófærir til
að afla sér ’ lífsviðurværis. Á
þessi trygging að skoðast sem
endurgjald eða uppbót frá rikinu
fyrir unnið starf, en eigi sem sál-
ALÞÝÐUBLAÐID
ardrepandi ölmusa með álits-
hnekki og mannréítindatapi í för
með sér. Vonandi er, að þing-
menn sjái sóma sinn í að sam-
þykkja aldursfrygginguna nú á
þessu þingi og sýna þar með, að
þeir kunni að meta starf þeirra,
sem í heilan mannsaldur hafa
dyggilega lagt hönd á plóginn,
þjóðfélaginu tii heilla.
Það er reyndar öllum kunnugt,
að íhaldsstjórnin hefir lagst á
móti þessu mikla menningar- og
velferðar-máli, en þingmenn ættu
að sýna það ,að þeir séu svo
þroskaðir að gera þetta mál eigi
að. klíkumáli. Til þess er það alt
of mikilvægt.
Ð.
„Morpnblaðið“ á náshadaginn.
I fyrra birti „Mgbl.“ eina af
allra lökustu óþverragreinum sin-
um á skírdag, og blöskraði öllum
sæmilegum mönnum, sem á annað
borð sáu blaðið, það tiltæki. Nú
var það borið út á páskadaginn
með mjög bjánalega skrifaðri
skætingsgrein um samtök verka-
manna. Lítur helzt út fyrir, að
skriffinnur sá, er setti það slúður
saman, hafi verið búinn að fá sér
fullmikið í „gogginn“ úr „páska-
peianum“. Hann reyndi að vísu að
bjarga sér með uppskriftum úr
Alþýðublaðinu, og hefði verið
skynsamlegast af honum að láta
þar við sitjá; en svo þegar hann
fór að bæta við frá sjálfum sér,
þá kom alt á afturfótunum, og
varð ekki annað úr en venjulegt
drykkjuröfl, skröksiigur,-og illyrði.
Ekki ein röksemd eða'sannmæíi.
Og þetta góðgæti færði svo
„Mgbl.“ lesendum sínum á páska-
morguninn. Það kunni auðvitað
ekki að skammast sín frekar en
vant er. Þegar röksemdirnar voru
alveg þrotnar í kaupdeilumálinu,
átti . þeíta „pelamál“ að koma í
þeirra stað. Sér er nú hver blaða-
menskan, og það á páskunum(H).
Þá þykist „Mgbl.“ vel hafa veitt,
er það birtir vottorð, undirskrif-
að „Kr. Sigfúsdóttir“, um að út-
gerðarmenn séu „máttarstoðir
þjóðfélagsins“. Það gleymdist víst
að taka það fram, að þeir séu
líka máttarstoðir bankanna? Eða
var ekki svo? Greinarstúfurinn er
raunar líkastur því, sem hann væri
saminn í skrifstofu „Mgbl.“. Setj-
um nú sámt svo, að ein af hinum
fáu kvenpersónum, sem sviku
Starfssystur sínar um daginn í
kaupdeilunni, hafi haldið, að hún
ynni sér til frægðar með því að
láta nafn sitt sjást á prenti, eða
að hún hafi verið nörruð til að
gefa vottorðið. Hún mun þá varla
vinna svo til lengdar hjá útgerðar-
mönnum við fiskþvotta og því
líkt, að hún komist ekki að raun
um fljótfærni sína, og eigi eftir
að blygðast sín sárlega fyrir hana,
— því að reynslan er óvæginn
kennari. Þá kann og svo að fara
að lokum, að „Kr. S.“ verði fegin
að fá aðstoð verklýðssamtakanna
til að halda uppi kaupi sínu, ekki
sízt, ef hún þarf einhvern tíma
að sjá fyrir fleirum en sjálfri sér.
Sú saga hefir þrásinnis endurtekið
sig.
Mit oy tillogur biorguuarmála-
nefndar Fiskifélagsius.
IX. (Frh.)
Um veðurfræðisstöðvar.
Um þetta mál segir nefndin
meðal annars:
' „Eitt af því, sem mikla þýðingu
ætti að hafa í öllum þeim tilfell-
um slysa, sem orsakast af ofveðr-
um er veðurfræðin. löllum menn-
ingarlöndum heimsins eru veður-
fræðistofur reistar. Svo þýðingar-
mikið er það talið, að geta gefið
lýsingar af veðurfarinu á svo að
segja öllum tímum. . . .
5, júní 1925 skrifaði nefndin for*-
stjóra Veðurfæðistofunnar 'hér og
bað hann að gefa upplýsingar um
atriði, sem snerta Veðurfræðistof-
una. 1. okt. s. á. kom svar frá
honum. Er það langt og mjög ít-
arlegt'. , .. Það, sem forstjórinn
kvartar helzt um áð vanti, til þess
að Veðurfræðistofan sé í sem
alira beztu lagi, er hæft
starfsfólk, annað, að loftskeyta-
stöðin sé úrelt og ófullkomin,
truflar móttöku hér í Reykjavík á
hvaða bylgjulengd sem er, þriðja
vöntun veðurskeytastöðva o. fl.
Alt eru þetta þýðingarmikil at-
riði. ... Til Veðurfræðistofunnar
eru nú .veittar úr landssjóði 40
þúsund krónur. En til þess að
stöðin nái fullkomlega tilgangi