Alþýðublaðið - 10.04.1926, Síða 5
verja ætti fé því, er þeir gerðu
kröfu til að tekið yrði eignarnámi,
og er frumvarpið í aðalatriðun-
um á þessa leið:
Eignir fursta þeirra, er ríktu
í Þýzkalandi fram til ársins 1918,
skulu gerðar upptækar án endur-
gjalds.
Hinu upptæka verðmæti skal
varið til styrktar: a. atvinnulaus-
um, b. hermönnum, er særðust
í ófriðnum, og aðstandendum fall-
inna hermanna, c. mönnum, er
lifa á litils háttar ellistyrk, d. þeim
fátæklingum, er mest hafa liðið
við dýrtíðina á stríðstímunum og
eftir ófriöinn, e. vinnumönnum í
sveit, smábændum og leiguliðum
með því að skifta milli þeirra
hinum eignarnumdu landflæmum.
Hallir og aðrar byggingar skulu
notaðar fyrir opinberar stofnanir.
Vikurnar milli 4. og 17. marz
lá frumvarp þetta frammi hjá sér-
hverjunr sveitar- eða bæjar-stjóra
til undirskriftar fyrir almenning,
og eins og símskeyti það, sem
áður er nefnt, hermir, þá hafa
um 10 milljónir maiina skrifað
undir það. Þar með er fyrsía þætt-
inum í baráttu jafnaðarmanna fyr-
ir máli þessu lokið. Þeir hafa
með þessum undirskriftum fengið
því framgengt, að þjóðaratkvæði
fari fram um eignarnámið, en nú
er eftir að vita, hvernig öðrum
þætti málsins, þjóðaratkvæða-
greiðslunni sjálfri, Jýkur. Til þess
að hún verði talin lögleg, verður
liðlega helmingur atkvæðisbærra
manna að hafa tekið þátt í henni.
Er enginn vafi á því, að íhalds-
menn munu reyna að nota þetta
ákvæði til þess að gera atkvæða-
greiðsluna að engu. Samt sem áð-
ur sýnir þó hin mikla þátttaka
í áskoruninni, að álmennur áhugi
er þar fyrir því, að málið verði
til lykta leitt á þeim grundvelli,
er jafnaðarmenn hafa krafist.
Ð.
Um datjiim og veginn.
Næturlæknir 54
er í nótt Daníel Fjeldsted, Laugav.
38, sími 1561, og aðra nótt Magnús
Pétursson, Grundarstíg 10, sími 1185.
Messur
á morgun: I dómkirkjunni kl. 11
séra Bjarni Jónsson (altarisganga),
kl. 5 séra Friðrik Hallgrímsson. 1
r ALKÝÐUBLAÐID
fríkirkjunni kl. 2 séra Árni Sig-
urðsson, 1 Landakotskirkju kl. 9 f.
m. hámessa, kl. 6 e. m. guðsþjón-
usta með predikun. 1 aðventkirkj-
unni kl. 8 e. m. séra O. J. Olsen.
Hendrik J. S. Ottösson
kom með „Lyru“ síðast. Télur
hann góðar horfur fyrir íslenzkan
síldarmarkað í Rússlandi í iramtíð-
inni.
Tcgararnir.
Þessir komu af veiðum í gær:
Egill Skallagrímsson með 104 tunn’ur
lifrar, Júpíter með 113 og Otur með
93 tn. — Aflinn er þannig að auk-
ast,” sem betur fer. — Draupnir kom
í morgun með 74 tn. og Belgaum
og Maí voru væntanlegir i dag.
Einnig kom einn erlendur togari í
gær.
„íslandið“
fer héðan í kvöld vestur og norð-
ur um land til útlanda.
V erkakvennaf élag
er nú verið að stofna á Siglu-
firði. Jafnaðarmannafélag hefir ný-
lega verið stofnað þar.
St. „Unnur“ nr. 38.
Vegna hlutaveltu ungl.st. „Æskan“
verður enginn fundur í st. „Unni“ á
morgun.
Veðrið.
Hiti mestur 5 st., minstur 0 st.
Átt austlæg og suðlæg, víðast hæg
nema hvöss á austan í Vestmanna-
eyjum. Veðurspá: 1 dag suðaustlæg
átt, hæg á Norður- og Austur-landi,
allhvöss við Suður- .og Suðvestur-
land; úrkoma á Suðurlandi og sums
staðar á Suðvesturlandi. 1 nótt suð-
austlæg og suðlæg átt, sennilega
allhvöss, og úrkoma á Suður- og
Suðvestur-landi.
Dómurinn um landhelgisbrotin.
Tveir ensku togaranna, sem
„Fylla“ kom með í gær, voru sekt-
aöir um 12 500 pappírskrónur hvor,
en einn fékk hlerasekt, 7 000 kr., þar
eð hann var og brotlegur áður. Afli
og veíðarfæri var gert upp'tækt hjá
ölliini.
Gengi erlendra mynía í dag:
Sterlingspund. . .
100 kr. danskar . .
100 kr. sænskar . .
100 lcr. norskar . .
Dollar..............
100 frankar franskir
100 gyilini hollenzk
100 gullmörk þýzk.
. kr. 22,15
. - 119,34
. - 122,21
. — 98,10
. - 4,568/4
. - 15,81
. — 183,25
. - 108,60
„Dýralif“,
2. tbl. fræðiblaðs Ólafs Friðriks-
sonar um dýrin, er nýkomið út. Þar
geta menn séð, hvað orðið er af
veiðibjöHum Ólafs, og mynd af þeim,
á meðan þær voru hér við Tjarn-
argötu. M. a. eru í blaðinu "greinar
um sauðnaut (moskusnaut) og skil-
g§p| ffjfs rsgg - - g
„Es!a“
fer héðan 15. april (fimtudag) kl. 6
siðdegis austur og norður um land í
11 daga ferð, kemur á 35 hafnir.
Tökum flutning til Búðardals þessa
ferð.
Vörur afhendist á mánudag 12. eða
þriðjudag 13. apríl Farseðlar sækist
á þriðjudag. Flutningsgjöld og útskip-
un óskast greidd um leið og vörur-
nar eru afhentar.
yrði fyrir rækt þeirra hér á landi
og um silfurrefarækt. Einnig er
grein um dýralífið á Norður-Græn-
landi og hvað af því má læra uin
skilyrði. fyrir fjölbreyttara dýralífi
hér á landi en enn þá er. Allir, sem
ánægju hafa af: dýrum og náttúru-
athugunum, þurfa að lesa þetta blað,
og ekki sízt þeir, sem áhuga hafa
á auknum og fjölbreyttum búnaði.
Kona sú,
sem hefir nú tvívegis spreytt sig
á að skrifa smágreinar í „Mgbl.“,
þykist ekki skilja, að það eru svik,
ef um 30 menn úr hópi nokkurra
hundraða skerastíúr lífsbjargarsam-
tökurn félaga sinna, þegar mest
reynir á. Þetta mun reynslan kenna
henni síðar, ef hún í raun og veru
er verkakona, og er þvi bezt fyrir
hana að skrifa ekki meira um það í
bernsku, sem hún hlýtur að blygðast.
sín fyrir síðar, þegar hún hefir feng-
ið meiri lífsreynslu.
Safnaðarfundur Frikirkjusafnað-
arins
verður kl. 4 á morgun i fríkirkj-
unni.
Til skýringar
þeim, sem ókunnugir eru útgáfu-
hugsun frjálslyndra blaða, eins og
Alþýðublaðið er svo sem önnur jafn-
aðarmannablöð yfirleitt, skal þess
getið í eitt skifti fyrir öll, að ckki
ber að líta svo á, sem alt, er í
blaðinu kemur, sé nákvæmlega í
samræmi við skoðun ritstjórnar eða
útgefanda, heldur er margt af því,
sem birtist undir eigin nafni höf-
unda og jafnvel stundum gervinöfn-
um, tekið til birtingar sakir þess,
að það þykir samt eiga erindi til
almennings eða opinbera nýjar og
óvanalegar hugsanir eöa skoðunar-
hátt í ýmsum efnum.
Málfærið!
„Hér er komið hrognkelsiö!
Hlakkar gervalt burgeisið!
Rekkar stykkja raeðmagiö!"
ritar „Danska viðrinið“.
Am.