Alþýðublaðið - 16.04.1926, Side 4

Alþýðublaðið - 16.04.1926, Side 4
4 ekki að hugsa um heimilin, um konuna og börnin, sem biðu heima í lélegum, köldum og rökum húsa- kynnum, grátandi, klæðhtil og bjargarlaus. — Hann hló að eins að húsíöðurnum, sem hann var búinn að gera að þeim aum- ingja, að hann gat ekki bjargað sér undan hunda og manna fót- um. Hann hló að því, þegar kon- an, köld, hungruð og klæðlítil, varð að yfirgefa grátandi börn- in til þess að sækja manninn sinn, heimilisaðstoðina, ósjálfbjarga inn á einhverja drykkjuholuna, „svina- stíuna“, og hann hlær enn, þeg- ar maðurinn í ölæði sínu byrgir fyrir síðustu ljósglætií heimilis- ins með því að bæta þjáningu á þjáningu ofan og sorg á sorg ofan. Og enn gleðst „Bakkus“ af því, þegar hann getur leitt efnilega, góða og göfuga æsþumenn út á þessa sömu hörmungabraut. Hann gleðst yfir höfuð af því að geta bundið fyrir augu góðra drengja og síðan leitt þá blindandi út i hyldýpishringiðu svívirð.'nga og lasta, og hann gleðst yfir þvi að sjá sorgir og tár. hungur og hörm- ung hinna líðandi ástvina, mæðra, feðra, kvenna, barna og systkina hinna föllnu gæfulausu manna. En hversu voðalegt er að sjá þetta nærri daglega fyrir augum sér og vera sér þess vitandi að vera e. t. v. að miklu leyti valdur að því að leiða þessa ógæfu yfir land og þjóð! Það er hörmulegt að verða land- ráðamaður gleði og hamingju fjölda fátækra heimila til þess að geta svaiað stundarfýsnum sínum og tilhneigingum. Góðir vinir, bræður og systur! Elfkið þjóð vora og fósturland! Styðjið góðan málstað þjóðarinn- ar! Verndið .heili hannar! Beinið þeim á rétta braut, er viltir vegar fara! Gerum áfengisbölið Iand- rækt úr íslenzka bannlandinu! Öll eitt! Sameinumst um þetta siðgæðismál vort! Þá hefjum við land vort og þjóð vora í Ijóma og dýrð fagurrar, sólbjartrar menn- ingar. Kr. Gudmundsson. Jafnaðarmannaféíagsfundíur er í Bárunni á sunnudag kl. 4. Félagar! Fjölmennið! ALÞÝÐUBLAÐID Um daginn og veginn. Næturlæknir er í nótt Kjartan Ölafsson, Lækj- argötu 6 B, sími 614. Veðrið. Hiti mestur 5 stig, minstur 1 st. frost. Norðanátt um alt land, víðast fremur hæg. Snjókoma nyrðra. Loft- vægislægð við Austurland. Útlit þenna sólarhring: Allhvöss norðan- átt á Suður- og Norður-Iandi og sums staðar hvöss á Suðurlandi. Orkoma nyrðra, en kringum 1 st. hiti. Linubáturinn „GoIan“ kom í morgun frá Vestm.eyjum. Segja skipverjar mikið misfiski i eyjunum og margir veiði lítið. Víðvarpið. Félag víðvarpsnotenda hélt fund í Bárunni niðri á miðvikudagskvöldið. Var fundurinn hinn fjörugasti og stóð til kl. nær 2 um nóttina. Var deilt um, hvort félagið ætti að ganga að þeim skilyrðum, sem Ot- varpsfélagið hafði boðið, og var um síðir samþykt tillaga ,um, að félag- ið frestaði að taka ákvörðun, sem var sama sem að hafna boðinu, því að formaður Otvarpsfélagsins, sem var á fundinum, Lárus Jóhannesson, lýsti yfir því, að ef ekki yrði gengið að tilboði Útvarpsfélagsins, rnyndi það félag láta sig engu varða í framtíðinni, livað notendafélagið gerði. Frá tilboðinu verður nánara skýrt siðar; það var svo flókið, að einn lögfræðingur, sfem las það á fundinum, sagði, að pmögulegt væri að átta sig á því í fljótu bragði, og mun enginn hafa skilið það fyllilega nema Lárus sjálfur. En hitt skildu fuiidarmenn, að tilboðið var alls ekki til bóta fyrir víðvarps- notendur. Fjörutíu gengu i félagið. Ro. Kolaskip kom hingað í morgun. Tcgararnir. Ólafur kom af veiðum í gær með 93 tunnur, en Ari í morgun. Nánara um slysið á færeyska skipinu. Það vildi til hér í Faxaflóa, 12 sjómílur undan landi. Maðurinn, sein varð ryrir þessu voðaslysi, var há- seti, en ekki vélamaður. Hann konl of nærri vélinni, og lent.i í kast- hjólinu ög snerist það með hann. Var líkið mjög illa útleikið. Bæjarstjornarfundur í gær stóö yfir til kl. að ganga 2 í nóti. Launahækkunannáli borgar- stjóra var vísað til bæjarlaganefnd- ar/ Miklar umræður urðu um kaup- lækkun verkamanna hjá bænum, og verður nánara frá því sagt á morg- un. Prima þorskur úr stafla á 15 aura pr.'/3 k«f. fæst frá Hafliða Baidvinsspi, Bergþórugötu 43. Sfml 1456. Sfmi 1456. Ágætar Kartöfkr og Hvitkál Nýkomið í Verzl. ÖI. ímundasenar, Simi 149. Grettisgetu 38. Einir prir þingmenn greiddu atkvæði með styrknum til barnaheimila og gam- almennahæla. Leiðrétting Ot af smágrein, sem birtist í Al- þýðublaðinu 8. þ. m., 81*. tölublaði,, með upphafsorðinu „Bifreiðaárekst- ur“, undirskrifuð x, lýsi ég yfir því, að ég tél farið rangt með, að ég hafi átt meiri sök á árekstri fólks- flutningabifreiðar þeirrar, er þar unr ræðir ,en sá, er henni stjórnaði.. Þar sem sagt er, að ég hafi skemt vatnskassa á annari bifreið, þá er það alveg rangt, því að bifreiðin, er vatnskassinn skemdist á, ók aftan á bifreið þá ,er ég stýrði, og af þvi brotnaði vatnskassinn. Tel ég mig geia leitt vitni að þessu, ef þyrfti. Sigaalríi Sigurðsson bifreiðarstjóri. Landhelgisbrot. „Fylla tók þýzkan togara að land- helgisveiðum í fyrra dag og flutti hann hingað. Fékk hann 12 500 ísl. kr. sekt, og afli og veiðarfæri gerð upptæk. Dómurinn féll í gær og síð- an var fiskinum skipað upp. Skipsstrand. Fisktökuskip, „Express“, rak á land á Þingeyri í Dýrafirði í rok- inu á aðfaranótt miðvikudagsins. „Esja“ fór í gærkveldi kl. 9 í hringferð austur og norður um land. Magnús Torfason hefir skýrt blaðinu frá, að meining hans í ræðu þeirri um gengismálið, seiri getið var um hér í blaðinu s. 1. mánudag, hafi verið sú, að hann sé með stýfingu krónunnar. Sjálf- sagt er að taka þessa skýringu trú- anlega, því að auðvitað veit hann bezt sjálfur, hvað hann hefir ætlað að segja, þó að erfitt væri að fá. þessa meiningu út úr þeirri ræðu^

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.