Alþýðublaðið - 16.04.1926, Qupperneq 4
4
ekki að hugsa um heimilin, um
konuna og börnin, sem biðu heima
í lélegum, köldum og rökum húsa-
kynnum, grátandi, klæðhtil og
bjargarlaus. — Hann hló að eins
að húsíöðurnum, sem hann var
búinn að gera að þeim aum-
ingja, að hann gat ekki bjargað
sér undan hunda og manna fót-
um. Hann hló að því, þegar kon-
an, köld, hungruð og klæðlítil,
varð að yfirgefa grátandi börn-
in til þess að sækja manninn sinn,
heimilisaðstoðina, ósjálfbjarga inn
á einhverja drykkjuholuna, „svina-
stíuna“, og hann hlær enn, þeg-
ar maðurinn í ölæði sínu byrgir
fyrir síðustu ljósglætií heimilis-
ins með því að bæta þjáningu
á þjáningu ofan og sorg á sorg
ofan.
Og enn gleðst „Bakkus“ af því,
þegar hann getur leitt efnilega,
góða og göfuga æsþumenn út á
þessa sömu hörmungabraut. Hann
gleðst yfir höfuð af því að geta
bundið fyrir augu góðra drengja
og síðan leitt þá blindandi út i
hyldýpishringiðu svívirð.'nga og
lasta, og hann gleðst yfir þvi að
sjá sorgir og tár. hungur og hörm-
ung hinna líðandi ástvina, mæðra,
feðra, kvenna, barna og systkina
hinna föllnu gæfulausu manna.
En hversu voðalegt er að sjá
þetta nærri daglega fyrir augum
sér og vera sér þess vitandi að
vera e. t. v. að miklu leyti valdur
að því að leiða þessa ógæfu yfir
land og þjóð!
Það er hörmulegt að verða land-
ráðamaður gleði og hamingju
fjölda fátækra heimila til þess að
geta svaiað stundarfýsnum sínum
og tilhneigingum.
Góðir vinir, bræður og systur!
Elfkið þjóð vora og fósturland!
Styðjið góðan málstað þjóðarinn-
ar! Verndið .heili hannar! Beinið
þeim á rétta braut, er viltir vegar
fara! Gerum áfengisbölið Iand-
rækt úr íslenzka bannlandinu!
Öll eitt! Sameinumst um þetta
siðgæðismál vort! Þá hefjum við
land vort og þjóð vora í Ijóma og
dýrð fagurrar, sólbjartrar menn-
ingar.
Kr. Gudmundsson.
Jafnaðarmannaféíagsfundíur
er í Bárunni á sunnudag kl. 4.
Félagar! Fjölmennið!
ALÞÝÐUBLAÐID
Um daginn og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Kjartan Ölafsson, Lækj-
argötu 6 B, sími 614.
Veðrið.
Hiti mestur 5 stig, minstur 1 st.
frost. Norðanátt um alt land, víðast
fremur hæg. Snjókoma nyrðra. Loft-
vægislægð við Austurland. Útlit
þenna sólarhring: Allhvöss norðan-
átt á Suður- og Norður-Iandi og
sums staðar hvöss á Suðurlandi.
Orkoma nyrðra, en kringum 1 st.
hiti.
Linubáturinn „GoIan“
kom í morgun frá Vestm.eyjum.
Segja skipverjar mikið misfiski i
eyjunum og margir veiði lítið.
Víðvarpið.
Félag víðvarpsnotenda hélt fund í
Bárunni niðri á miðvikudagskvöldið.
Var fundurinn hinn fjörugasti og
stóð til kl. nær 2 um nóttina. Var
deilt um, hvort félagið ætti að
ganga að þeim skilyrðum, sem Ot-
varpsfélagið hafði boðið, og var um
síðir samþykt tillaga ,um, að félag-
ið frestaði að taka ákvörðun, sem
var sama sem að hafna boðinu, því
að formaður Otvarpsfélagsins, sem
var á fundinum, Lárus Jóhannesson,
lýsti yfir því, að ef ekki yrði gengið
að tilboði Útvarpsfélagsins, rnyndi
það félag láta sig engu varða í
framtíðinni, livað notendafélagið
gerði. Frá tilboðinu verður nánara
skýrt siðar; það var svo flókið, að
einn lögfræðingur, sfem las það á
fundinum, sagði, að pmögulegt væri
að átta sig á því í fljótu bragði,
og mun enginn hafa skilið það
fyllilega nema Lárus sjálfur. En
hitt skildu fuiidarmenn, að tilboðið
var alls ekki til bóta fyrir víðvarps-
notendur. Fjörutíu gengu i félagið.
Ro.
Kolaskip
kom hingað í morgun.
Tcgararnir.
Ólafur kom af veiðum í gær með
93 tunnur, en Ari í morgun.
Nánara um slysið á færeyska
skipinu.
Það vildi til hér í Faxaflóa, 12
sjómílur undan landi. Maðurinn, sein
varð ryrir þessu voðaslysi, var há-
seti, en ekki vélamaður. Hann konl
of nærri vélinni, og lent.i í kast-
hjólinu ög snerist það með hann.
Var líkið mjög illa útleikið.
Bæjarstjornarfundur
í gær stóö yfir til kl. að ganga 2
í nóti. Launahækkunannáli borgar-
stjóra var vísað til bæjarlaganefnd-
ar/ Miklar umræður urðu um kaup-
lækkun verkamanna hjá bænum, og
verður nánara frá því sagt á morg-
un.
Prima þorskur úr stafla
á 15 aura pr.'/3 k«f.
fæst frá
Hafliða Baidvinsspi,
Bergþórugötu 43.
Sfml 1456. Sfmi 1456.
Ágætar
Kartöfkr og Hvitkál
Nýkomið í
Verzl. ÖI. ímundasenar,
Simi 149.
Grettisgetu 38.
Einir prir
þingmenn greiddu atkvæði með
styrknum til barnaheimila og gam-
almennahæla.
Leiðrétting
Ot af smágrein, sem birtist í Al-
þýðublaðinu 8. þ. m., 81*. tölublaði,,
með upphafsorðinu „Bifreiðaárekst-
ur“, undirskrifuð x, lýsi ég yfir því,
að ég tél farið rangt með, að ég
hafi átt meiri sök á árekstri fólks-
flutningabifreiðar þeirrar, er þar unr
ræðir ,en sá, er henni stjórnaði..
Þar sem sagt er, að ég hafi skemt
vatnskassa á annari bifreið, þá er
það alveg rangt, því að bifreiðin, er
vatnskassinn skemdist á, ók aftan á
bifreið þá ,er ég stýrði, og af þvi
brotnaði vatnskassinn. Tel ég mig
geia leitt vitni að þessu, ef þyrfti.
Sigaalríi Sigurðsson
bifreiðarstjóri.
Landhelgisbrot.
„Fylla tók þýzkan togara að land-
helgisveiðum í fyrra dag og flutti
hann hingað. Fékk hann 12 500 ísl.
kr. sekt, og afli og veiðarfæri gerð
upptæk. Dómurinn féll í gær og síð-
an var fiskinum skipað upp.
Skipsstrand.
Fisktökuskip, „Express“, rak á
land á Þingeyri í Dýrafirði í rok-
inu á aðfaranótt miðvikudagsins.
„Esja“
fór í gærkveldi kl. 9 í hringferð
austur og norður um land.
Magnús Torfason
hefir skýrt blaðinu frá, að meining
hans í ræðu þeirri um gengismálið,
seiri getið var um hér í blaðinu s. 1.
mánudag, hafi verið sú, að hann
sé með stýfingu krónunnar. Sjálf-
sagt er að taka þessa skýringu trú-
anlega, því að auðvitað veit hann
bezt sjálfur, hvað hann hefir ætlað
að segja, þó að erfitt væri að fá.
þessa meiningu út úr þeirri ræðu^