Alþýðublaðið - 23.04.1926, Side 1
Ge£id út aS iUgsýðuOoklmsiiss
1926.
Gleðilegt sumar!
Alþýðublaðið.
Erlend siinskeyfl.
Khöfn, FB., 23. apríl.
Sampykt skuldasamninga.
Frá Washington er v símað, að
öldungadeild Bandaríkjaþingsins
hafi samþykt skuldaspmningana
við ftalíu þrátt fyrir mikla mót-
spyrnu.
Pólska stjörnin segir af sér.
Frá Varsjá er símað, að stjórn-
in hafi sagt af sér.
Sameiginlegar þvingunarráð-
stafanir kolanámaeigenda náðu
ekki að komast I framkvæmd.
Frá Lundúnum er sírnað, að
koiafuö'dinum sé slitið án pess
að samningar hafi tekist.
Föstudaginn 23. april.
93. tölublað.
Jarðarfðr móður og teugdamóður okkar, Þórunnar
Margrétar Andrésdóttur, hefst með húskveðju firá NSnnu»
götu 1, kl. 1 e. h. 24. þessa mánaðar.
Ouðrún BrynjóSfsdóttir. Asa Magnúsdottir.
Andrés Brynjölfsson. Guðmundur Brynjölfsson.
Arni Brynjölfsson.
Hugheilar hjartans pakkir fyrir auðsýnda santúð
við andlát og jarðarfor Kristins Asgrimssonar.
Olafia S. Jönsdottir,
toörn og tengdabörn.
Alþýðnflokksíundnr
i Barunni annað kvöld (laugardag) klukkan. 8’siðdegis.
Fundarefni: Þingmál, er alpýðu varða, og fleiri mál.
Fjölmennið á fundinn, konur og karlar!
Framkvæmdanefndin.
Gaspur Mussolinis.
Frá Rómaborg er símað, að á
afmæiisdegi borgarinnar (21. apr-
íl) hafi Mussolini sent út ávarp og
stóð þar m. a.: Sigurinn við Vit-
torio (24. okt. 1918) og Veneto( V)
á að álíta byrjun nýs páttar í
frægðarsögu ítalíu. Fyrr en varir
skulu garniar kröfur framkvæmd-
ar.
Deilan við Abdel Krim.
Frá París er símað, að Abdel-
Krim neiti bráðabirgðakröfum.
Lítur illa út um, að samningar tak-
ist.
Innlend tíðindi.
Isafirði, FB. 22. apríl.
ísfirðingar neita umfjárveitingu
til konungsmóttöku.
Konungsheimsóknin rædd hér í
bæjarstjórn í gær. Oddviti lagði
til, að veittar yrðu 2000 kr. úr
bæjarsjóði og að kosin væri nefnd
til þess að sjá um undirbúning.
Fjárveitingin var fekl með 5 atkv.
gegn 4. Móti henni voru: Vil-
mundur Jónsson, Finnur Jónsson,
Jðn M. Pétursson, Jón H. Sig-
mundsson og Magnús Ólafsson,
en með voru oddvitinn, Sigurður
Kristjánsson, Stefán Sigurðsson
og Eiríkur Einarsson. Engin nefnd
kosin. Finnur Jónsson lýsti yfir
því, að það væri stefnumál sitt,
að veita ekki fé til þessa. V.
Árferði.
Afbragðstíð. Landburður af fiski
við Djúpið. F.
Frá sjómönnunum.
FB., 21. apríl.
Óskum ættingjum og vinum
gleðilegs sumars. Velliðan. Kærar
kveðjur.
Skipverjar á April.
I. ð. G. T.
Sumarfagnaður
St. Verðandl nr. 9
verður laugardaginn 24. þ. m. í
. G.T.-húsinu og hefst klukkan 9 sd.
Fiölbreytt skemtiskrá, danz.
Aðgöngumiðar ökeypis fyrir skuld-
lausa félaga, að eins afhentir föstud.
kl. 5—6 og á laugard. 4—7 og á
sama tima seldir öðrum templurum.
Alþýðufölk! Ef pið purfið að
auglýsa, pá auglýsið i Alpýðu-
blaðinu!
(Einkaloftskeyti tii Alþ.blaðsins.)
„Ceresio“, 22. apríl.
Gleðiiegs sumars óskum við öll-
um okkar vinum og ættingjum
með þökk fyrir veturinn.
Skipshöfnin á „Ceresio".