Alþýðublaðið - 28.04.1926, Page 1
ýðublaðið
Gefld út af AiþýðuflokknunB
1926.
Miðvikudaginn 28. april.
97. tölublað.
1. mal.
Þrjú siðustu árin hafa verk-
íýðsfélögin hér í bænum haldið
1. maí hátíðlegan með kröfu-
göngu. I fyrra héldu verklýðs-
félögin á ísafirði og Akureyri
einnig minningarsamkomur al-
Jjýðudaginn. Úm pessi hátíðahöld
er hægt að segja pað, að þau hafi
tekist betur en .við var að búast
áf byrjunartilraun, en þó langt
frá því, sem þau eiga að verða og
eru orðin hjá alþýðunni erlendis.
Suður um alla Norðurálfuna er
alger vinnustöðvun þenna dag, og
milljónir verkamannanna ganga
fylktu liði með fána sína um göt-
ur stórra og smárra bæja, minn-
ast liðinnar baráttu, herða sam-
tökin, bera fram kröfur sínar og
sýna samfylkingu þá, sem sigr-
inum vill ná gegn kúgun og ó-
jöfnuði, en koma á freisi, jöfn-
uði og bræðralagi milli allra vinn-
andi manna og þjóða.
Róm var ekki bygð á einum
degi, og íslenzk alþýða getur
trauðla í einu stökki náð sama
þroska og erlendur verkalýður
hefir náð með samtökum áratug-
um saman. En hver og einn l.-maí-
dagur, sem kemur, verður að vera
svipmeiri og samtökin efdari en
fyrr. Hvers er að krefjast? Hví
þarf alþýðan að sýna sig í kröfu-
göngu? Ihaldsstjórn situr við
völd. Allar ráðstafanir hennar og
lög alþingis ganga nú í þá áttina
að halda alþ ýðunni niðri með
skattaálögum, ójöfnuði fyrir dóm-
stólunum og stöðvun allra um-
bótatilrauna. Stóraivinnurekendur,
■ sem ráða lögum og lofum í lattd-
inu, hafa sumpart þrýst niður
kaupi verkalýðsins, sumpart stað-
Ið í langri árangurslausri deilu
til þess að lækka kaupið og ætla
sér enn að ganga lengra að lok-
inni vertíð.
Alþýðan á því að minnast lið-
innar kaupdeilu, líklegrar nýrrar
Göður guö launi (illum, sem sýndu okkur samúð og
hluttðku i veikindum og íráSalli minnar elskuðu ddttur og
systur okkar, Lilju Jdnsdöttur.
Valgerður Jdnsdöttir og bðrn.
Skölavðrðustig 15.
kaupdeilu, liðinnar óstjórnar, vænt-
anlegs landkjörs og nýrra kosn-
inga, þar sem hægt er að skifta
um þingfulltrúa. Það er þvi mikils
virði, að einmitt nú mæti allir al-
þýðumenn og konur í kröfugöng-
unni, sem vilja halda lifskjörum
þeirn, sem þeir höfðu náð og
heimta umbætur á stjórn landsins.
Sameinaðir stöndum vér.
Verkfail á Eskifirði.
Atvinnurekendur neita um
kauÐssanminga.
(Einkaskeyti til Alþýðublaðsins.)
Eskifirði, 28. apríl.
Verkfall er hafið hér í dag. Á-
stæðan er sú, að atvinnurekendur
vilja ekki semja um kaupgjald.
„Röðull“.
Erlend símskeyti.
Khöfn, FB., 28. apríl.
Þýzk-rússneski samningurinn.
Frá Berlín er simað, að þýzk-
rússneski samningurinn hafi ein-
rórna samþykki allra flokka. Að-
alatriði hans er hlutleysi ef ráð-
ist er á annað hvort landið.
Frá Moskva er simað, að Iitio se
á samninginn sem fyrsta stórsigur
yfir stjórnmálastefnunni í Genf.
Abd-el Krim boðar sókn.
Frá París er símað, að Abd-el-
Kaupið
eingöngu íslenzka kaffibætinn
„ S ó 1 e y “. Þeir, sem nota
hann, álíta hann eins góðan og
jafnvel betri en hinn útlenda.
Látið ekki hleypidóma aftra
ykkur frá að reyna og nota
íslenzka kaffibætinn.
Krim láti í veðri vaka, að hann
muni hefja sókn bráðlega.
Rúðleysi auðvaldsins.
Frá Lundúnum er símað, að
ilt útlit sé með kolasamningana.
Síðasta fjárhagstímabil varð 5
milljóna sterlingspunda tekjuhalli
vegna kolanámastyrks, er varð 19
milljónir sterlingspunda. Enginn
léttir verður á sköttum i ár.
Auðvaldsáhrifin til spillis.
Frá Moskva er símað, að rúss-
nesk-finskum samningatilraunum
sé slitið. Rússar kenna áhrifum
frá Englandi um, að samningar
tókust ekki.
finnlend tíðindi.
Vestm.eyjum, FB., 28. apríl.
Landhelgisbrotin.
Varðskipið „Fylla“ tók 5 þýzka
togara við Dyrhólaey, en varð-
skipið' „Þór“ einn enskan og ann-
an belgiskan við Eyjar. Skipstjór-
inn á belgiska togaranum hefir
verið sektaður um 10 000 gullkrón-
ur og alt upptækt. Dómar verða
upp kveðnir í dag.