Alþýðublaðið - 29.04.1926, Qupperneq 1
1926.
Gefid út af AIpýðMfiokknum
Fimtudaginn 29. april.
98. tölublað.
Óprlegt
skattamálahneyksli.
1. maí.
Verklýðsfélögin hér i bænum hafa ákveðið að halda
alþýðudaginn 1. mai hátiðlegan nieð kröfúgöngu og
kvöldskemtun. Við undirritaðir formenn Alþýðusambands-
ins, Fulltruaráðsins og sambandsfélaganna hér i bænum
skorum hér með á verkafólk og alla alþýðu þessa bæjar
að taka þátt i kröfugöngunni og öðrum hátiðahöldum
dagsins. Athugið auglýsinguna um fyrirkomulag hátiða-
haldanna.
Ráðstafanir hafa verið gerðar til þess, að 1. mai
verði haldinn hátiðlegur viða um landið.
Sýnum samtökin. Minnumst alþýðudagsins. Mætum
öll.
Reykjavik, 26. april 1926.
Jón Balduinsson. Héöinn Valdimarsson.
Forseti Alpýðusambands íslands. Formaður Fulltrúaráðsins i Reykjavik.
Haraldur Guömundsson. Ólafur Friðriksson.
Formaður Jafnaðarmannafél. íslands. Formaður Jafnaðarmannafélagsins.
Jónína Jónatansdóttir. Guðm. R. Oddsson.
Formaður Verkakvennafél. Framsöknar. Form. Bakarasveinafél. íslands.
Magnús V. Jóhannesson. Sigurjón Á. Ólafsson.
Form Verkamannafél. Dagsbrunar. Form. Sjómannafélags Reykjavikur.
Guömundur Halldórsson.
Formaður Reykjavikurdeilciar H. í. P.
Allri útsvarsbyrði borcjar-
Innar dembt á efnammni
stéttirnar.
Niðurjöfnunarskráin nýútkomna
er eitthvert hið greinilegasta merki
um það, hversu auðvaldsstéttin
ætlar að nota sér yfirráðin í bæn-
um, meðan hún hefir þau. Eins
og sjá má af stuttum útdrætti,
sem birtur er annars staðar í blað-
inu, hafa útsvör stóratvinnurek-
endanna veriö iækkuð um alt að
í 00 000 — hundraö púsundum —
króna frá því í fyrra. Að eins eitt
stórgróðaféiagið, Aliiance, hefir
hærra útsvar en kramvörukaup-
maður og skókaupmaður með
eina búð hvor. Hlutaféi. „Kveld-
ú!fur“, milljónafyrirtæki, hefir að
eins 1000 kr. meira útsvar en ann-
ar lyfsaiinn og að eins 5000 kr.
hærra en önnur smjörlíkisgerðin,
sem framleiðir til innlendrar
neyztu. Meiri hluti niðurjöfnun-
arnefndar er ekki að fást um,
þótt hún gefi tilefni til þess, að
fatnaður, skór og viðbit alþýð-
unnar og lyf sjúklinganna sé dýr.
Aftur á móti hafa útsvör efna-
minni stéttanna yfirleitt ekki lækk-
að, heldur jafnvel hækkað.
Slík niðúrjöfnun er svo ógurlegt
skattamálahneyksli, að orð þrýtur
til að lýsa því. Hlífðin við stór-
gróðafélögin er meira að segja
þeim til skammar. Að leggja ein-
ar 15 þúsundir á h/f. „Kveldúlf'
t. d. — það er hér um bil sama
sem. að gefa út gjaldþrotayfir-
lýsingu fyrir það. Það er á borð
við áð færa 10 króna útsvör vinnu
kvennanna niður í 1 eyri. Það
er hin mesta furða, ef bankarnir
fara ekki að gá að sparifé al-
mennings, sem þeir eiga hjá stór-
atvinnurekendunum, sem' niður-
jöfnunarnefndin hefir lýst svona
geðslega trausti sínu á.
Þetta niðurjöfnunarhneyksli er
því átakanlegra, sem auðvaldsfuli-
trúarnir í bæjarstjórninni létu það
í veðri vaka, þegar alþýðufulltrú-
arnir vönduðu um það í fyrra, að
ekki var tekið meira til bæjar-
ins þarfa af nýfengnum firingróða
burgeisanna þá, að því heldur
gætu þeir goldið hátt útsvar í
ár og áfrarn, þótt lakara yrði ár-
ferði en 1924, ef ekki væri gengið
hart að gróða þeirra í byrjun. En
jressar eru efndirnar.
Það er hreint ekki vanþörf á, að
alþýða fjölmenni í kröfugönguna
1. maí til þess að mótmæla þess-
um óskammfeilna ójöfnuði, og
það rnvndi fráleitt skaða smærri
atvinnurekendur og kaupsýslu-
menn, þótt þeir hlyntu að mót-
mælahreyfingunni þenna dag.
Alþýða mótmælir.
Kappteflið norsk-islenzka.
íslendingar unnu hálfa aðra,
Norðmenn hálfa skák.
Þvi er nýlokið með jafntefli á
borði II. Buðu Islendingar nú jafn-
tefli, en áður höfðu Norðmenn
boðið það, en ísiendingar hafnað,
og liafa siðan verið tefldir 19
leikir. í tafliok voru 5 menn á
borðinu, köngur og hrókur hjá
hvorum tveggja og biskup að auki
hjá íslendingum. Úrslitin eru sigur
íslendinga með hálfri annari skák
móti hálfri Norðmanna.