Alþýðublaðið - 03.05.1926, Qupperneq 1
Gefid út af AlpýdaflokknmiB
1926.
Mánudaginn 3. mai.
KolaverkfaUið
f Englandi.
Khöfn, FB., 1. maí.
Sættir misheppnuðust.
Frá Lúndúnun) er símað, að
endanlegar samningstilraunir í
kolanámumálinu hafi misheppnast
algerlega. Kolaverkfallið, er haf-
ið. Almennur ótti ríkir um alls-
herjarverkfall.
1200000 námumenn iverkfallinu.
Frá Lundúnum er símað, að
ivegna iverkfal'lsinís sé ýmsum
skemtistöðum lokað, t. d. dans-
leikahúsum. Ennfremur hefir víð-
varpsstöðvum verið lokað eða
þær takmarkað starfsemi sína.
Sorgarvottur þjóðarinnar er þann-
ig í Ijós látinn á ýmsa vegu.
Námumenn, er taka Jrátt í verk-
fallinu, eru 1 200 000. Á þriðju-
daginn hefst landsverkfaii á öll-
um flutningatækjum. Samkvæmt
konungsbréfi hefir verið útnefnd-
ur umsjónarmaður, er á að hafa
umsjón með öllum matvælaflutn-
ingi á Ermarsundi. Herforingjar
hafa fengið skipanir um að vera
við því bunir, að slíkt neyðará-
stand komi, að innköllun varaliðs-
ins verði undirbúin. Ef blaðaút-
gáfa hindrast, verða allar víð-
varpsstöðvar teknar i þjónustu
stjórnarinnar. Blöð verkamanna
og frjálslyndra ásaka stjórnina
fyrir seinræði um sáttaundirbún-
ing. „Times“ vonar enn, að úr
rætist, en „Morning Post“ hefir
fyrir yfirskrift greinar um málið:
Sinovjev sigraði, og telur blaðið
enga von um úrlausn í málinu,
eins og sakir standa.
Khöfn, FB., 2. maí.
Viðbunaður stjörnarinnar.
Frá Lundúnum er simað, að
landinu hafi verið skift í tíu um-
sjónarumdæmi, til þess að hægara
verði að Sjá fyrir nauðsynjum og
þörfum landsbúa, á meðan á verk-
fallinu stendur. Mitghell Thomson
hefir verið útnefndur alræðismað-
ur. Herdeildir hafa verið sendar
í námuhéruðin í Wales, Langa-
shire og Skotlandi. Landsfélag
undirbýr almenna .hjálparstarf-
semi/ rekstur nauðsynlegustu
stofnana, matvælaflutning o. s.
frv. Þátttakendur í Jandsverkfall-
inu verða 5 milljónir, járnbraut-
armenn, bifreiðastjórar, spor-
vagnastjórar. Flutningar á vegum,
sjóferðir og hafnarvinna mun
leggjast niður nær með öllu,
gasstöðvar og rafstöðvar 'lokast
víða o. s. frv. Framkvæmdanefnd
verkamanna krefst stillingar og
þolgæðis. Baldvvin gerir nýja til-
raun til sátta.
Khöfn, FB., 3. maí.
Allsherjaiverkfall öhjá-
kvæmilegt.
Frá Lundúnum er símað, að
allar friðarvonir í kolamálinu séu
brostnar. Allsherjarverkfall er ó-
hjákvæmilegt. Blaðið „Daily Mail“
er þegar hætt að koma út.
Erlend simskeyti.
Khöfn, FB., 1. maí.
Kolanámumálið, brezka.
Frá Lundúnum er símað í gær,
að Tbomas líti svo á, að útlit fyrir
sættir hafi versnað. Líklega verður
stjórnarstyrkurinn framlengdur um
nokkra daga, þótt tími til sátta-
gerða sé eiginlega útrunninn. Full-
trúar frá 205 verkamannafélögum
sitja á ráðstefnu og ræða 'um
verkfall og hjálparráðstafanir, ef
af því verður, og aðrar athafnir.
Árás á brezku stjórnina.
Frá Lundúnum er símað, að
andstöðuflokkar stjórnarinnar hafi
hafið árás á hana fyrir það, að
ætla tekjur af veðmálask^tti á
næsta fjárhagstímabili, en Churgh-
hill er óbeygjanlegur í þessu á-
formi stjórnarínnar.
101. tölublað.
Jatnaðarmannafélag
íslands.
Siðasti fundur til hausts annað
kvöld i kaupþingssalnum. Merki-
leg mál á dagskrá. Fjölmennið!
Lyftan i gangi. Stjörnin.
Þýzk tollalækkun á dönskum
landbúnaðarafurðum.
Frá Berlín er símað, að ríkis-
ráðið hafi samþykt tollalækkun á
dönskum landbúnaðarafurðum.
Keppinautur Amundsens.
Frá Kingsbay er símað, að
Bandaríkjamaðurinn Byrd sé
þangað kominn og hafi þegar lát-
ið byrja á að taka upp og setja
saman flugvélar sínar, er voru
fluttar þangað sjóleiðis. Amund-
sen telur Byrrl hættulegasta keppi-
naut sinn.
Norðurfluginu frestað i bili.
Frá Leningrad er símað, að
samkvæmt veðurspám sé útlit
fyrir snjókomu á norðurleið. För
loftskipsins „Norge“ til Svalbarða
hefir því verið frestað til sunnu-
dags.
Samningur úm skuldir Frakk-
lands við Bandarikin.
Frá Washington er sírnað, að
skuldasamningar hafi verið gerðir
við Frakkland.
Khöfn, FB., 2. maí.
Kröfugöngurnar 1. maí i
útlöndum.
Kröfugöngur verkamanna 1. maí
fóru alls staðar friðsamlega fram
í stórborgunum nema í Varsjá.
Þar sló í bardaga, og voru fimm
drepnir, en fjórir særðir.
Frakkar tregir að semja.
Frá París er símað, að mót-
spyrna sé hafin gegn skuldasamn-
inginum við Bandaríkjamenn.