Alþýðublaðið - 05.05.1926, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 05.05.1926, Blaðsíða 1
« Oefið út af Alpýðuflokknum 1926. Miðvikudaginn 5. mai. 103. tölublað. Kolanámuverkfallið í Englandi. Khöfn, FB., 4. maí síðd. Opinber ummæli. Frá Lundúnum er símað, að jBaidwin hafi sagt í pingræðu, að tveggja ára verk sitt væri molað, en samt hefði hann ekki tapað á- ræði til framkvæmda né trú á sett takmark. Blaðið „Times" segir, að síðan JStuartar féllu, hafi England aldrei verið eins voðalega statt og nú. Öll umferð í borgum má heita stöðvuð. Einu farartækin eru úr- eltir vagnar og reiðhjól. Hámarksverð fyrirskipað. Hámarksverð hefir verið sett á ýms matvæli. Kauphöllin og bank- ar enn opin. Vigbúnaðarskipun send ut. Vígbúnaðarskipun hefir verið send til hersins og flotans, er verða að vera við því búnir að senda á tveggja stunda fresti liðs- auka, hvar sem þörf er á. Tvö herfylki hafa verið sett á land í Liverpooi. Þingmaður fangelsaður. Saklatvala, þingmaður sameign- armanna, hefir verið settur í fang- eisi fyrir að gera tilraun til þess að koma af stað uppreisn. Fundur stéttaforingjanna. Síðdegis var fundur haldinn, er .þeir Baldwin og MagDonald voru , á. Umræðum er haldið leyndum. Verkamenn hindra kolaflutning frá Þýzkalandi. Frá Berlín er símað, að engin kol verði send til Englands. Sam- eignarmenn vinna að samúðar- verkfalli. Alpjóða-samhjálp verkamanna. Frá Amsterdam er símað, að .stjórn Alþjóðasambands flutnings- verkamanna hafi símað félögum sínum í Evrópulöndum að hindra kolaflutning til Englands, skrán- ingar á ensk skip, og heitið verk- fallsmönnum fjárhagslegri aðstoð. Khöfn, FB., 5. maí. Siðustu fregnir. Frá Lundúnum er símað, að almenningsálitið sé stjórnarsinnað. (Þetta er tilkynning frá stjórn- inni.) Frjálslyndir segja, að þeir styðji stjórnina til almenn- ings hags, en kenna henni um sáttastrandið, og að henni hafi farist miðlunartilraunir klaufalega úr hendi. — Verkfræðingar eru eimreiðarstjórar á matvælalestum.' Erlend sfmskeyfti. Khöfn, FB., 5. maí. „Stýfingu“ neitað. Frá Osló er símað, að þjóð- bankastjórnin neiti að gera tilraun til þess að gullfesta krónuna (24 kr. móti 1 sterl.pd.). Telur hún það hagfræðilegan ógerning og hindri eðlilega rás. Norðurskauts-farirnar. Frá Leningrad er símað, að hvassviðrasamt sé, og hafi burtför loftskipsins „Norge" því verið frestað. Frá Kingsbay er símað, að búið sé að setja saman loftskip Byrds, en vegna snjókomu leggi hann ekki af stað í bili. Landkjorið. Siðustn listarnir. í dag er síðasti dagur til að leggja fram landkjörslista. Eru 5 kornnir fram og verða varla fleiri. A-listinn er listi Alþýðuflokks- ins. Andstöðulistar hans eru: B-listi (kvennaiisti): Bríet Bjarn- héðinsdóttir frú, Guðrún Lárus- dóttir frú, Halldórá Bjarnadóttir og Aðalbjörg Sigurðardóttir frú. C-listi (íhaldslisti): Jón Þorláks- son, Þórarinn Jónsson á Hjalta- bakka, Guðrún Briem frú í Rvík, Jónatan Líndal á Holtastöðum, Sigurgeir Gíslason Hafnarfirði og Jón Jónsson í Firði við Seyðis- fjörð. D-listi (,Framsóknar‘-flokksIisti): Magnús Kristjánsson landsverzl- unarstjóri, Jón Jónsson bóndi í Stóra-Dal, Kristinn Guðlaugsson bóndi á Núpi í Dýrafirði, séra Þorsteinn Briem á Akranesi, Páll Hermannsson á Eiðum og Tryggvi Þórhallsson. E-listi („Sjálfstæðis“flokkurinn sálugi eða „Frelsisherinn"): Sig- urður Eggerz, Sigurður Hlíðar dýralæknir á Akureyri, Magnús Friðriksson Staðarfelli, Magnús Gíslason sýslumaður Eskifirði, Einar G. Einarsson Garðhúsum Grindavík og Jakob Möller. Alþýðan skipar sér um listann sinn, A-listann, og hún sigrar! Togararuir. Geir kom af veiðum í gær með 62 tunnur lifrar og í niorgun Hannes ráðherra með 99 tn. — Þó nokkrir norskir línubátar hafa komið hingað, eins og venjulegt er um þetta leyti árs. Jöhannes Fönss heitir þektur danskur ljóð- og leik-söngvari, sem hingað er kominn. Syngur hann í Nýja Bíó í kvöld kl. 7,15 við aðstoð Páls Isólfssonar. Veðriö. Hiti 7—2 stig. Átt ýmisleg, hæg. Loftvægislægð fyrir norðvestan land. Útiit: Átt vestan og norðvestan; þokuloft og sallaregn sums staðar á Vesturlandi. Þurt á Suðaustur- landi. Hægviðri. 1 nótt norðvestan- og norðan-átt, fremur hæg.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.