Alþýðublaðið - 06.05.1926, Blaðsíða 4
4
arins, tekin út eftir nokkurt
karp. Fékk öl. Th. því ráðið, að
3. umr. um síldarsölufélagsfrumv.
fór fram á öðrum fundi í gær-
kveldi. Varð þá J. Kj. að orði, að
margir hefðu víst ekki búist við
því í þinglok í fyrra, að einka-
söiufrv. færi nú með afbrigðum
gegn um þingið. Kvaðst hann spá
því, að lok málsins yrðu ríkis-
einkasala, sem hann var sérlega
smeykur við. Það þótti B. Líndal
hart að heyra hann segja, og
kvaðst vilja gefa honum það heii-
, ræði, að tala ekki á alþingi um
þau mál, sem hann hefði ekki vit
á. — Jón Baldv. flutti þá br.tili.
við frv., að einn maður af þremur
stjórnendum félagsins verði valinn
eftir tiliögum stjórnar verklýðs-
sambands Norðuriands á Akur-
eyri. Þá þótti B. Línd. verkafólk-
io eiga að fá að ráða nokkuð
miklu, ef hún yrði samþ. Jón
Baldv. sýndi fram á, að verkafólk-
ið hefði mikilia hagsmuna að
gæta um sölu síidarinnar og út-
vegun markaða, og að verkafóíkið
á síldveiðastöðvunum hefði nóga
þekkingu til að velja hæfan mann
í stjórnina. TiIIagan var samt feld
með mörgum atkv. gegn atkvæöi
J. Baldv. einu. Aðrir deildarmenn
voru ekki á því, að auka réttindi
verkafólksíns í síldarsölumálinu.
Hafði þó Jón Baldv. bent á, að
slík skipun féiagsstjórnarinnar
gæti orðið' hemill á freistingu,
sem hún kynni einhvern tima að
fá, til að halda síídarverðinu ó-
heppilega háu, og að samþykt til-
lögunnar myndi gera félagið vih-
sælla. Þá benti hann á þann mikla
agnúa á þessu frv., að samkv.
því ættu síldartunnur að greiða
atkv., en ekki menn, og hve það
stingi mjög í stúf við ríkiseinka-
sölu. — Jakob og Bernharð fluttu
br.till. um, að allir síldarútgerð-
armenn og þeir aðrir, sem fást
kunna við að salta eða krydda
sííd til útflutnings, eigi Jétt á að
veröa félagsmenn. Sú till. var
samþ. með eins atkv. mun, en
aðrar rýmkunartill. þeirra voru
feldar og að heimilisfang félagsins
yrði á Siglufirði. Var frv. siðan af-
greitt til e. d. Jón Baldv. greiddi
jafnan atkv. gegn þvi.
Gerí er ráð fyrír, að fjárlaga-
frv. verði á morgun til einnar
umr. í n. d.
» r * XNT n
JlLir * v
Fréttir af e. d. verða að bíða
morgun sökum þrengsla.
ffljömleikar
Jóhannesap Fonss.
Johannes Fönss bassasöngvari
söng í gærkveldi í Nýja Bíó og
hreif alla áheyrendur með hinum
karlmannlega söng sínum, enda
er röddin hin voldugasta, er hér í
bæ hefir heyrst. Söngskrá hans
var mikilfengleg og margbreytileg
og voru áheyrendur undrandi og
fullir aðdáunar. Áheyrendur
neyddu hann til að endurtaka
marga af söngvunum, m. a. „O
Isis“ úr Töfraflautunni (Mozart),
„Drykkjusöng“ (Nicolai) og „Mee-
resleuchten“ (Loewe). Vart getur
maður hugsað * sér „Die beiden
Grenadiere'* betur og kröftugar
sungið en í gærkveldi og þó með
tilfinningu. „Bergmanden" eftir
Sjögren söng hann með alvöru-
þrungnum hátíðleik. Hann söng
þrjú lög vio kvæði eftir Aakjær,
en einkum bar á persónuiegri til-
finningu í lagi Carl Nielsens við
„Kommer I snart, I Husmænd".
Með miklum „dramatiskum" krafti
og leikni söng hann „Sverrir kon-
ungr“ (Sveinbj. Sveinbjörnsson).
Ágætlega tókst honum í „Jeg
bærer den Hat, jeg vil“ (West-
wang — Drachmann), enda hæfði
söngur sá persónu og framkomu
Fönss. Sem aukanúmer söng hann
„ísland“ (Sv. Sveinbj.) og lauk
þannig hljómleik þessum, sem
sannarlega var einstakur í sinni
röð. — Páll ísólfsson aðstoð-
aði með undirspili. F.
AðviSrun.
----- Frh.
Það myndi hafa þótt tortryggni i
meira lagi, ef ég hefði farið fram
á að fá viðurkenningu fyrir, að ég
heföi skilað umsókninni inn á skrif-
stofuna, en hvað sýnist vera nauð-
synlegt, og hvað mun vera í því,
sem meira er í varið? Hvað gæti
þessi ekkja, sem hér á hlut að máli,
látið sér detta í lmg; hún þekkir
mig ekki meira en Nig. Bjarnason
þekkir mig, og má vel halda, að
hún hafi orðið sty'rksins að njótandi,
en ég hirt hann.
Þess vegna hefði það verið óneit-
aniega klókt af Nic. Bj. sjálfs hans
vegna að segja mér, að hún hefði
einskis orðið að njótandi. Við þvi
var ekkert. að segja. Sömuleiðis,
hefði Nic. Bjarnason strax kannast
við að hafa glatað umsókninni og
boðist til að þægja þessari ekkju
eitthvað fyrir þennan misgáning, þá
skyldi honurn pegar hafa ver-
ið fyrirgefið, og þá hefði þetta ekki
verið gert að opinberu umtalsefni.
Þess i stað þrætir hann fyrir að hafa
glatað umsókninni. Þess vegna skora
ég á Nic. Bjarnason, að hann geri
grein fyrir glötun umsóknarinnar
annað hvort opinberlega eða við
mig og borgi þessari ekkju þá upp-
hæð, sem líkur eru til að hún hefði
fengið úr þessum umrædda sjóði.
Þégar ég í sunrar skilaði styrkum-
sókninni inni á skrifstofu Nic. Bj.,
var aðalerindið, að ég ætlaði að
taka þar vinnulaun, er ég átti þar
inni frá 17. ágúst, en gat ekki fengið
þau. Út af þessu lenti ég í dálitl-
um orðahnippingum við Hjálmar,
son Nic. Bjarnasonar, og sagði ég
við hann, að fyrir svona .litla upp-
hæð myndi ég ekki gera fleiri ferðir
og sjzt til að standa í illdeilum út
af þvi, heldur gæfi ég þeim þessar
fáu krónur, og sagðist Hjálmar
verða feginn, ef ég vildi gefa sér um
20 kr., en það leit út fyrir, að hann
hefði ekki orðið eins feginn að fá
þessa gjöf, eins og hann lét, því
að 28. dezember, er ég minnist á,
að þetta hafi verið í sama skiftið
og ég skilaði styrkumsókninni í
skrifstofuna, þá veit ég ekki fyrr
en hann fleygir þessum peningum
fram á borðið, og mér ætlað að
hirða þá, en ég lét peningana vera
og fór út og hefi ekki komið þar
síðan.
(Nl. næst.)
H. Jónsson.
Unft dstggism og ftjegmis.
Næturlæknir
er í nótt Daníel Fjeldsted, Lauga-
vegi 38, sími 1561.
Togararnir.
Draupnir kom i gær með 55 tn.
Danmerkurfararnir
gliman í Iðnö i gærkveldi. Þeir
glimdu liðlega og af fjöri. Þó tóku
áhorfendur eftir því, að mismunur
var töluverður á glímumönnunum.
Hljömleikarnir,
sem Hljómsveit Reykjavikur auglýs-
ir á öðrum stað í blaðinu, eru rneð
nýjum hætti að því leyti, að nú verð-
ur til skemtunar bæði hljóðfærasláttur
og kórsöngur, þvi að Karlakór
Reykjauikur aðstoðar. Athygii viljum
vér vekja á aðalæfingunni, sem fer
franr annað kvöld i Nýja Bió, kl. 7 ’/í
Þá gefst tækifæri til að hlýða á báða
flokkana og sú skemtun kostar ekki
nema 1 krónu.
Jöhannes Fönns
verður sökum litils háttar lasleika
að Jresta söngnum, er verða átti i
kvöld, til þriðjudags. Aðgöngumið-
arnir i kvöld gilda þá.