Alþýðublaðið - 07.05.1926, Side 1
Gefið út af Aipýðuflokknum
1926.
Föstudaginn 7. inai.
105. tölublað.
Kolanámuverkfallið
í Englandi.
Khöfn, FB., 7. maí.
(Kh., 6. maí.)
Úrsliíabarátta stéttanna.
Götubardagar.
Frá Lundúnum er símað: Upp-
þot víða og sporvögnum og fólks-
flutningabifreiðum velt um. Þrjár
lögreglubifreiðar brendar. Óeirð-
irnar alls staðar alvarlegar: Mest-
ar óeirðir hafa verið í Newcastle.
Verkamenn báru hærri hlut stund-
um saman í götubardögum. Lög-
reglan vann að lokum sigur.
Fjöldí kafbáta er á fljótinu og
varalið komið í borgina.
Stjórnin hefir birt ávarp í. „The
British Gazette“ og segir í því,
að \7erkfallið hafi iamað þjóðina
stórum. Viðurkennir stjórnin, að
verkamannaforingjarnir hafi ekki
viljað þjóðaróhamingju, en kveð-
ur þá þróttiausa gegn ofstækis-
mönnum. Miðlunarmál séu nú ó-
möguleg og jafnvel stórhættuleg.
Annaðvort drepi verkfallið landið
^þ. e. auðvaldsstéttina) eða landið
verkfallið.
Sjálfboðaliðar, 15 000 að tölu,
jgengu í varalögregluna í Lundún-
fim í ;gær, en 40 000 buðu sig fram
til verklegra framkvæmda.
Parísarútgáfan af „Daily Mail“
seld á götunum í Lundúnum í
gær síðdegis og nokkur hlöss af
fréttablöðum utan af landsbygð-
inni. Fólkið þjáist af blaðahungri.
Öll gistihús full af aðkomufólki,
flestu innlendu. Átta leikhúsum
verður iokað í kvöld. Orðrómur
leikur á um, að Lloyd George geri
miðlunartilraun síðdegis í dag.
„Grimdarvitfirring auðvaldsins“
heitir grein, sem Þórbergur Þórð-
arson hefir senf Alþýðublaðinu, og
stendur til, að hún komi í blaðinu
á inorgun.
Viliemoes
iiggur enn í Newcastle í Eng-
landi.
I. O. G. T.
40 ára af
I I
I. O. G. T.
æli
Unglingareglunnar a Íslandi
verður haldið hátiðlegt sunnudaginn 9. mai.
Kl. 2 e. h. Barnaguðsþjönusta i dómkirkjunni
(séra Friðrik Hallgrimsson).
Allir ungtemplarar eru beðnir að mæta við
Templarahúsið klukkan 1 V2. Verður paðan
gengið i kirkju.
Kl. 5 e. h. Afmælishátíð unglingastúk-
unnar Æskan nr. 1 í Góðtemplarahúsinu.
Til skemtunar: Einsöngur, upplestur, píanösölö,
sjönhverfingar, kórsöngur, gamanleikur ö. fl.
Þriðjudaginn 11. mai kluakan 8
verður skemtun
í Góðtemplarahúsinu, sem foreldrum og vanda-
mönnum féiaga Æskunnar er vinsamlegast
boðið á. — Félagar Æskunnar vitji ókeypis
aðgöngumiða i Templarahusið kl. 5 - 8 i dag.
Gæzlumenn Æskunnar.
Skemtun i Nýja Bló
lauijarday kl. 7j4.
I. Barnasöngflokkur syngur, undir stjörn hr. Aðalst. Eirikssonar.
II. Sr. Ragnar Kvaran: Stutt ræða.
III. Frú Guðrún Sveinsdöttir: Einsöngur.
IIII. Hr. Friðfinnur Guðjönsson: Upplestur.
Aðgöngumiðar kosta kr. 2,00 og verða seldir i
Nýja Bið frá kl. 4, laugard., og við innganginn.
Sumargjðfin.
Veðrið.
Hiti um alt land, 7—1 stig. Átt
helzt við austur, mjög hæg, víða
logn. Útlit: I dag hægur á vestan
á Vesturlandi, logn annars staðar;
þoka og lítils háttar úrkoma fram-
an af á Norðaustur- og Austur-Iandi,
sennilega þurt fram undir kvöldið
á Vesturlandi, þurt á Suðurlandi. í
nótt sennilega fremur hægur á út-
sunnan á Vesturlandi, logn á Austur-
landi; ef til vill úrkoma á Vestur-
landi.