Alþýðublaðið - 12.05.1926, Síða 3

Alþýðublaðið - 12.05.1926, Síða 3
'9Z61 }Biu z\ ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 sú till. var feld. — Þingsál.tilJ. um kaup á snjódreka og bifreið- am var endanlega sampykt. Einn- ig „Esju“-ferðatillagan og till. um rannsóknarferðastyrkinn til dr. Reinsch (til e. d.), en síðari hlutinn (til byggingar laxastiga) feld. Póst- afgreiðslustaðatill. var vísað til stjórnarinnar (með 13 gegn 12). Kvað M. G. póststjórann ekki vera á móti pví, að afgreiðsia yrði bæði á Einarsstöðum og Grenjað- arstað. Með því að margir deildarmanna voru fjarstaddir, tókst J. A. J. að fá minnihlutasampykt til að skora á Magnús Guðmundsson að gera breytingu á iðgjaldsgreiðslu hlutar-sjómanna, sem þö er ekki framkvæmanleg, ef stjörnin ætiar að halda slysatryggingarlögin, pví að þingsályktanir og reglugerðir geta ekki breytt lögum. Á pað benti líka Jón Baldv. Sams konar till. í frv.formi hafði og deildin áður fyrr á pinginu, pegar fleiri voru við staddir, vísað frá sér að samþykkja. Við umræðurnar minti M. T. á útgerðarhlutina eða „dauðu“ hlutina, sem útgerðar- menn báta taka sem gjald fyrir skip og veiðarfæri og benti á, að af peim skyldi gjaldið greiða, en ekki af óskiftum afla, eins og J. A. J. vill vera láta. 1 sömu ræðu lýsti M. T. áhættumun peirra bát- eigenda, sem róa sjálfir, og hinna, sem taka hlut sinn á purru landi. Efri deild. 1 fyrra dag var í e. d. pál.till. »m rýmkun landhelginnar endan- lega sampykt, og afnám löggild- inga baðlyfja og frv. um skip- strönd og vogrek og björgun strandmanna, skipa og góz af- greidd sem lög, fossavirkjunarfrv. endursent n. d. og verðtollsfrv. og helgidagafrv. vísað til 3. umr. Fjárhagsnefnd e. d. var öll sam- mála um að leggja til, að verð- tollurinn skyldi ekki festur lengur en til 1. marz 1928. Þegar svo var komið, sá Jón Þorl., að ekki myndi tjá að krefjast takmarka- lausrar festingar tollsins, en pá lagði hann til, að hann haldist til 1. jan. 1929, og var pað samp. Samp. var að undanþiggja víð- boðsáhpld tollinum. Þær breytingar voru gerðar á fossavirkjunarfrv., eftir tillögum Bj. Kr., Gunnars og Jóhanns, aö mannvirki pau, sem gera parf vegna starfrækslunnar, purfi ekki að vera fullger fyrr en 10 árum eftir að leyfið er veitt (frestinn síðasta árið getur ráðherra veitt), og að 50 pús. kr. trygginguna purfi fossafélagið ekki að setja fyrir efndum á virkjun og sér- leyfisskilyrðum. Þá kom og til umr. pál.till. Jónasar um aðstöðu málfærslu- manna við undirrétt. Kvaðst J. Magn. ékki reiðubúinn að svara því, hver kostnaður hafi orðið af skipun setudómara í stað bæjar- fógetans hér sökum pess, að son- ur hans hefir sótt eða varið mál fyrir réttinum, en vísaði í landsreikninga og skjöl í stjórnar- ráðinu. Jóhann lagði til, að máli þessu væri vísað til stjórnarinnar og var svo gert með 10 atkv. gegn 4 (Jónasar, Einars, Guðm. og Ingvars). — Síðar deildu peir Jónas og Jóhann lengi um gróða- skattsfrv. Jónasar. Var peirri umr. svo frestað. í gær var í e. d. útsvarsfrv. end- ursent n. d. með peirri breytingu einni, að konum sé skylt að taka við kosningu í niðurjöfnunar- nefndir. Aðrar br.till. voru feldar. — Verðtollsfrv. var einnig endur- sent n. d. — Frv. um útrýmingar- böðun fjárkláðans var vísað frá með dagskrártill. frá landbn., og fylgdi með ósk um, að stjórnin leiti umsagna sýslunefndanna um málið. Fjárhagsn. klofnaöi um bæði happdrættisfrv. og vörutollsfrv. Voru íhaldsmennirnir með báðum, .en Jónas og Ingvar á móti. Eftir allhvassar deilur voru bæði samp. ti) 3. umr. — Gróðaskattsfrv. Jón- asar var felt með 8 atkv. gegn 3 (Jónasar, Einars og Agústs, en Ingvar var pá veikur og Guðm. ekki viö né heldur J. Magn.). Landsbankafrv. dagaði uppi. Leitað var afbrigða til að taka Landsbankafrv. til umræðu, en peim var neitað með 9 atkv. gegn 2, og er pað þar með dagað uppi. - Slíkt er afl og dugnaður íhalds- stjórnarinnar við áð koma fram þeim frv., er betur væru sampykt, en um að varpa álögum á alpýð- una er stjórnin sú í essinu sínu. Lewrótting. 1 dagskrártill., sem samþ. var í gengismálinu, er hin viðskeytta óljósa ósk um að geng- isröskun verði afstýrt. 35 ára leikaraafmæli á Friðfinnur Guðjónsson prentari í dag. Minnist Leikfélagið pess með pví að leika „Þrettánda-kvöld“ Shakespeares- til ágóða fyrir hann. Verður sú ágóðasýning vafalaust fjölsótt, pví að Friðfinnur nýtur að verðleikum mikilla vinsælda sakir listar sinnar. Hefir hann leikið talsvert á annað hundrað hlutverka af margvíslegasta tagi og með pví lagt drýgri skerf til íslenzkrar leikmenningar en metið verði til hlítar í skyndi. Mýjustu tíðindi erlend. Khöfn, FB., 11. maí. Norðurför Amundsens. Frá Kingsbay er símað: Búist er við pví, að loftskip Amundsens fari af stað á priðjudagsmorgun. Byrd kominn aftur örlítið kalinn á höndum og nefi. Sérfræðingar eiga erfitt með að ákveða, hvort hann hafi komist á heimskautið, og líta svo á, aÖ ná- kvæm vísindaathugun hafi verið ókleif úr flugvélinni á hreyfingu. Flug Byrds pykir einstæð íþrótta- frammistaða. Hann hafði mat til tveggja daga. Hefði honum hlekst á, pótt að eins hefði verið lítils háttar, var dauðinn vís. (Klausa pessi er lítið eitt lengri í skeyt- inu, en svo afbökuð, að ógerning-* ur er að ráða í, hvað við er átt.) Frá Washington er símað, að Coolidge forseti og flotamálaráð- herrann hafi sent Byrd hamingju- óskir. Mikil gleði er meðal þjóð- arinnar. « Marokkðstriðið. Frá París er símað, að ófriður sé endurnýjaður í Marokkó. Þjóðrembings-óeirðir. • Frá París er símað, að þjóð- ernissinnar hafi haldið kröfugöng- ur á Jeanne d’Arc daginn prátt fyrir, að stjórnin bannaði flokk- unum það og tileinkun pjóöar- dýrðííngsins. Tvö hundruð settir

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.