Alþýðublaðið - 25.05.1926, Page 1
Oefið út af Alf>ýðuflokknum
Þriðjudaginn 25. mai.
118. tölublað.
Tll verkafól
Samkvæmt ályktun bæjarstjórnar Siglufjarðar
frá 3. p. m. er aðkomufólk aðvarað að koma
til Siglufjarðar öráðið til vinnu í sumar.
Skrifstofa Siglufjarðarkaupstaðar, 4. maí 1926.
ite lisiBiiiessoifio
1926.
Kolanámuverkfallið
í Englandi.
FB., 23.-25. maí.
Stjórnin aðgeröalaus.
Verkfallið verður langvint.
Frá Lundúnum er síma’ð, að
síðan báðir samningsaðilar í kolá-
námumálinu neituðu að fallast á
miðlunartillögu stjórnarinnar, hafi
hún verið athafnalaus í þessu
máli. Almenningur álítur, að verk-
follið verði langvarandi. Sultur og
neyö ríkir víða í kolanámuhéruð-
unum; einkanlega er hagur námu-
fóiksins bágur í Waies. Fjöldi
kolaskipa er á leiðinni frá rikinu
Virginíu í Ameríku. Námumenn
hafa skorað á hafnarverkamenn
og járnbrautarverkamenn að sýna
sér hliðhollustu.
Togarar hætta veiðum.
I Grimsby eru margir togarar
stöðvaðir vegna kolaskorts.
Erlend sfimskeyfi.
FB., 22. maí.
Verðlaunum heitið fyrir
kornrækt.
Frá Osló er símað, að óðals-
þingið haíi samþykt afnám korn-
einkasöiunnar. Verðlaun verða
gefin íyrir kornrækt, er nema 4
aurum á kílóið. Áætluð útgjöld
vegna þessa 6 milljónir, en tekjur
af hveititolli eru áætlaðar svipuð
upphæð.
Verzlunarjöfnuður Banda-
rikjanna.
Frá Washington er símað, að
' síðustu mánuði hafi verið flutt
inn mun meira í landið en út úr
því, en áður námu útflutningarnir
langtum hærri upphæð en inn-
flutningarnir.
Marokko-stríðið.
Frá París er símað, að Frakkar
hafi unnið sigur í Marokko og
tekið Targuiitj ?)-hæðirnar.
Byrd ætlar til suðurskautsins.
Frá New York er símað, að
Byrd hafi í huga að fljúga til
suðurheimskautsins.
Verkbannið í Noregi.
Frá Osló er simað, að tilraunir
til umflutnings á cementi hafi ver-
ið stöðvaðar af hafnarverkamönn-
um.
FB.j 23.—25. maí.
Frá Osló er símað, að sáttaum-
leitanir milli verkamanna og at-
vinnurekenda hefjist á miðviku-
dag.
Fall frankans stöðvað.
Frá Paris er símað, að ráðstaf-
anir stjórnarinnar hafi stöðvað
fall frankans. Ekkert hefir verið
tilkynt opinberlega um, hverjar
þessar ráðstafanir eru, en sá orð-
rómur leikur á, að stjórnin hafi
fengið erlent lán gegn veði í g'ull-
forða þjóðbankans, en bankinn
hefir lúngað til þverneitað að
fallast á slíkar ráðstafanir, þar eð
álit bankastjórnarinnar hefir vefið,
að gullforðinn væri seinasta fót-
festan.
Rikisstjórakjör i Póllandi.
Frá Varsjá er símað, að þíngið
só kallað saman 31. dag þessa
mánaðar. Pilsudski hefir samþykt
að verða í kjöri við ríkisstjóra-
kosninguna, en því að eins, að
Gagga Ltmd
syngur i Nýja Bio þriðjud.
25. þ. m. klukkan V1 j.
Mý söiagskrá.
Frakkneskir, þýzkk, danskir og
islenzkir söngvar. — Aðgöngu-
miðar fást i bókaverzl. Sigf. Ey-
mundssonar og ísafoldar i dag.
vald ríkisstjórans gagnvart þing-
inu verði aukið, og hafi liann
m. a. rétt til þingupplausnar.
Samskotaboði hafnað.
Frá Osló er símað, að Norð-
Snieínn í Ameríku hafi tjáð sig fúsa
til þess að vinna að samskolum
til þess að greiða ríkisskuldir ætt-
landsins. Ríkisstjórnin í Noregi
hefir afþakkað boðið.
Ólgan i Þýzkalandi.
Frá Berlín er símað, að sam-
eignarsinnar úr öllu landinu
flykkist þangað í þúsundatali í
því skyni að efna til óeirða. Mikill
viðbúnaður er til þess að hindiet
óeirðir. öll ferðaleyfi hermanna
og lögregiuþjóna hafa verið aft-
urkölluð. Eitt hundrað og tuttugu
þúsundir keisarasinna halda
kröfugöngur í Dússeldorf.
Taugavéikin á ísafirði.
(Eftir shntali við landlækninn).
Símskeyti frá Vilmundi lækni á
hvítasunnudag: Heimilin 20, sjúk-
lingarnir 30 eða 31.