Alþýðublaðið - 14.06.1926, Side 1

Alþýðublaðið - 14.06.1926, Side 1
1926. Mánudaginn 14. júní. 134. tölublað. Erlemfil samskeyti. FB., 11. júní. Þjóðabandalagið. Nýtt Vesturálfu-bandalag? Frá Genf er símað, að Þjóða- bandalagið hafi afnumið eftirlit með fjármálum Austurríkis. Frá Washington er símað, að mikið sé ræ'tt um að setja á stofn þjóðabandalag Ameríku, er í séu öll rí.ki í vesturálfu, ef Braziiía segi sig úr Þjóðabanda- iaginu. Deilan um furstaeignirnar. Frá Berlín er símað, að miklar æsingar hafi orðið á fundi í rík- isþinginu. Marx hótar þingrofi, verði fjárgreiðslur til furstanna feldar. Hann varði bréf Hinden- fourgs, en jafnaðarmenn ásaka Hindenburg um hlutdrægni. Lýð- valdssinnar og miðflokkurinn eru andvígir kanzlaranum í bréfmál- inu. í prússneska þinginu neydd- ist forseti til að slíta fundi vegna móðgana sameignarsinna í garð Hindenburgs. FB., 12. júní. Kolanámuverkfallið. Stórkostleg hjálp frá Rússum. Frá Lundúnum er símað, að tnnanríkisráðherrann hafi sagt í ræðu í þinginu, að stjórnin hafi sannanir fyrir því, að verkfalls- menn séu styrktir með rússnesku .fé, svo að skifti hundruðum þús- unda punda. Sundrungin í pjóðabandalaginu. Frá Genf er símað, að í lok fundar ráðs Þjóðabandalagsins hafi Brazilía afsalað sér sæti í ráðinu, þar sem ekkert útlit um fast sæti sé fáanlegt. Búist er við því, að Spánn geri hið sama. FB., 13. júní. Hindrun gengissveiflna. Frá Osló er símað, að stór- þingið hafi samþykt að styrkja Noregsbanka til þess að koma í veg fyrir skaðlegar gengissveifl- ur. Ætlar ríkið að greiða tvo þriðju af þar af leiðandi gengis- tapi bankans. Auðvaldsstjórnin brezka mót- mælir hjálp til brezkra verkamanna. Frá Lundúnum er símað, að stjórnin hafi sent Rússastjórn mótmæli gegn því að hafa heitið fjárstyrk tii allsherjarverkfallsins, þar eð slíkt verði að skoðast sem tilraun til byltingar, og fjárstyrk- urinn sé rof á loforðum Rússa- stjórnar um afskifti af innanríkis- málum Bretlands. Brazilía gengur úr pjöðabanda- lagínu. Frá Genf er símað, að Brazi- lía hafi sént úrsögn sína til Þjóða- bandalagsins. Bæjarverkamenn í Osió svara kaupiækkunarkröfu með verkfalli. Frá Osló er símað, að verka- menn í þjónustu bæjarins hafi neitað Jaunalækkun. Á miðviku- dag hefst verkfall á meðal spor- vagnamanna, rafmagns- og gas- manna og vatnsleiðslumanna. Frá islenzku glimumönnunum i Danmörku. Svendborg, FB., 12. júni. íslenzki gíímuflokkurinn sýnir enn glímuna við ágæta sókn og Líöa í Danmörku. Er almenningur mjög hrifinn af henni, og virðist áhugi manna fyrir glímusýning- unum fara sífelt vaxandi. Flokk- urinn hefir verið beðinn að koma á svo marga staði, að hann getur ekki sint nándarnærri öllum þeim beiðnum. Flokknum héfir verið boðið í margar skemtifarir, t. d. til Himinfjallsins og Möens Klint. Niels Buhk hefir boðið þeim að halda glímusýningu, er sund- höllin í Ollerup verður vígð, og er ráðgert, að konungur verði þar við staddur. Bystander. SjSrgnn. Selveiðaskipið „Staalisen“ frá Bodö í Noregi kom hingað í gær- morgun með brotið stýri. Hingað kom það norðan úr íshafi eftir rúml. mánaðar útivist. Höfðu skipverjar veitt 500 seli. Þeir kbmu með skipshöfn af öðru selveiðaskipi, „Taakeheimen", sem einnig var frá Bodö. Hafði það farist í ísnum, en mennirnir kom- ist upp á hann. Þeir eru 12. Voru þeir 12 stundir á ísnum, þangað ti) „Staalisen" kom og skipverj- ar þess björguðu þeim. Jén Þórarínssnn, SræðslumálastlÓFÍ, varð bráðkvaddur í fyrra kvöld. Hneig hann niður úti.á götu niðri í bæ. Var hann þó með lífsmarki, þangað til búið var að flytja hann heim til sín. Banameinið var æða- kölkun. — Hann var fæddur 1854, • var fyrsti skólastjóri Fiensborgar- skólans, sem faðir hans gaf skóla- setrið tii, og fræðslumálastjóri frá 1908. Hann var tvíkvæntur, og voru báðar konur hans dánar á undan honum. Söngmennirnir Helge Nissen frá Kaupmannahöfn og Henrik Dahl frá Osló koniu með „Islandi". Þeir eru báðir mjög róm- aðir söngmenn, einkum fyrir söng sjnn á „Gluntarne“, hinum frægu stúdentasöngvum Wennerbergs hins sænska. Ætla þeir að skemta fólki með þeim söngvum hér, og syngja ’þeir í fyrsta sinni í kvöld i Nýja Bíó kl. 7y2.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.