Alþýðublaðið - 14.06.1926, Qupperneq 1
1926.
Mánudaginn 14.
júní.
134. tölublað.
Erlemfil samskeyti.
FB., 11. júní.
Þjóðabandalagið.
Nýtt Vesturálfu-bandalag?
Frá Genf er símað, að Þjóða-
bandalagið hafi afnumið eftirlit
með fjármálum Austurríkis.
Frá Washington er símað, að
mikið sé ræ'tt um að setja á
stofn þjóðabandalag Ameríku, er
í séu öll rí.ki í vesturálfu, ef
Braziiía segi sig úr Þjóðabanda-
iaginu.
Deilan um furstaeignirnar.
Frá Berlín er símað, að miklar
æsingar hafi orðið á fundi í rík-
isþinginu. Marx hótar þingrofi,
verði fjárgreiðslur til furstanna
feldar. Hann varði bréf Hinden-
fourgs, en jafnaðarmenn ásaka
Hindenburg um hlutdrægni. Lýð-
valdssinnar og miðflokkurinn eru
andvígir kanzlaranum í bréfmál-
inu. í prússneska þinginu neydd-
ist forseti til að slíta fundi vegna
móðgana sameignarsinna í garð
Hindenburgs.
FB., 12. júní.
Kolanámuverkfallið.
Stórkostleg hjálp frá Rússum.
Frá Lundúnum er símað, að
tnnanríkisráðherrann hafi sagt í
ræðu í þinginu, að stjórnin hafi
sannanir fyrir því, að verkfalls-
menn séu styrktir með rússnesku
.fé, svo að skifti hundruðum þús-
unda punda.
Sundrungin í pjóðabandalaginu.
Frá Genf er símað, að í lok
fundar ráðs Þjóðabandalagsins
hafi Brazilía afsalað sér sæti í
ráðinu, þar sem ekkert útlit um
fast sæti sé fáanlegt. Búist er
við því, að Spánn geri hið sama.
FB., 13. júní.
Hindrun gengissveiflna.
Frá Osló er símað, að stór-
þingið hafi samþykt að styrkja
Noregsbanka til þess að koma í
veg fyrir skaðlegar gengissveifl-
ur. Ætlar ríkið að greiða tvo
þriðju af þar af leiðandi gengis-
tapi bankans.
Auðvaldsstjórnin brezka mót-
mælir hjálp til brezkra
verkamanna.
Frá Lundúnum er símað, að
stjórnin hafi sent Rússastjórn
mótmæli gegn því að hafa heitið
fjárstyrk tii allsherjarverkfallsins,
þar eð slíkt verði að skoðast sem
tilraun til byltingar, og fjárstyrk-
urinn sé rof á loforðum Rússa-
stjórnar um afskifti af innanríkis-
málum Bretlands.
Brazilía gengur úr pjöðabanda-
lagínu.
Frá Genf er símað, að Brazi-
lía hafi sént úrsögn sína til Þjóða-
bandalagsins.
Bæjarverkamenn í Osió svara
kaupiækkunarkröfu með
verkfalli.
Frá Osló er símað, að verka-
menn í þjónustu bæjarins hafi
neitað Jaunalækkun. Á miðviku-
dag hefst verkfall á meðal spor-
vagnamanna, rafmagns- og gas-
manna og vatnsleiðslumanna.
Frá islenzku glimumönnunum
i Danmörku.
Svendborg, FB., 12. júni.
íslenzki gíímuflokkurinn sýnir
enn glímuna við ágæta sókn og
Líöa í Danmörku. Er almenningur
mjög hrifinn af henni, og virðist
áhugi manna fyrir glímusýning-
unum fara sífelt vaxandi. Flokk-
urinn hefir verið beðinn að koma
á svo marga staði, að hann getur
ekki sint nándarnærri öllum þeim
beiðnum. Flokknum héfir verið
boðið í margar skemtifarir, t. d.
til Himinfjallsins og Möens
Klint. Niels Buhk hefir boðið þeim
að halda glímusýningu, er sund-
höllin í Ollerup verður vígð, og
er ráðgert, að konungur verði þar
við staddur.
Bystander.
SjSrgnn.
Selveiðaskipið „Staalisen“ frá
Bodö í Noregi kom hingað í gær-
morgun með brotið stýri. Hingað
kom það norðan úr íshafi eftir
rúml. mánaðar útivist. Höfðu
skipverjar veitt 500 seli. Þeir
kbmu með skipshöfn af öðru
selveiðaskipi, „Taakeheimen", sem
einnig var frá Bodö. Hafði það
farist í ísnum, en mennirnir kom-
ist upp á hann. Þeir eru 12. Voru
þeir 12 stundir á ísnum, þangað
ti) „Staalisen" kom og skipverj-
ar þess björguðu þeim.
Jén Þórarínssnn,
SræðslumálastlÓFÍ,
varð bráðkvaddur í fyrra kvöld.
Hneig hann niður úti.á götu niðri
í bæ. Var hann þó með lífsmarki,
þangað til búið var að flytja hann
heim til sín. Banameinið var æða-
kölkun. — Hann var fæddur 1854,
• var fyrsti skólastjóri Fiensborgar-
skólans, sem faðir hans gaf skóla-
setrið tii, og fræðslumálastjóri frá
1908. Hann var tvíkvæntur, og
voru báðar konur hans dánar á
undan honum.
Söngmennirnir
Helge Nissen frá Kaupmannahöfn
og Henrik Dahl frá Osló koniu með
„Islandi". Þeir eru báðir mjög róm-
aðir söngmenn, einkum fyrir söng
sjnn á „Gluntarne“, hinum frægu
stúdentasöngvum Wennerbergs hins
sænska. Ætla þeir að skemta fólki
með þeim söngvum hér, og syngja
’þeir í fyrsta sinni í kvöld i Nýja
Bíó kl. 7y2.