Alþýðublaðið - 26.06.1926, Page 1
Gefið út af AlþýðuflokknuiD
1926.
Laugardaginn 26. júní.
listin er listi
146. tölublað.
Áskorun.
SjoMiaiBiiafélaff Reykjavfkur,
Fundur
í Bárunni mánudaginn 28. þ. m. kl. 8 síðdegis.
Til umræðu: 1. félagsmál. 2. síldveiðakaupið.
3. landskjörið.
Þess er vænst, að allir, sem til síldveiða hyggja,
sem og aðrir félagsmenn, mæti á fundinum,
Sýnið félagsskírteini við innganginn!
St jÓFnin.
Verkamenn og verkakonur sunn-
an og vestan lands!
Nú fara í hönd mjög erfiðir
tímar fyrir verkalýðinn hér heima.
Togaraflotinn sunnlenzki liggur
bundinn við hafnargarðinn, og
þeir, sem við hann unnu, ganga
atvinnulausir. Á Norðurlandi er
i'itlit fyrir litla síldarútgerð og því
einnig iitla atvinnu þar. Neyðin
kreppir því víða að verkalýðnum,
og þess vegna er þörf á, að hann
treysti nú betur samtök sín en
nokkru sinni fyrr og noti sér nú
til hlítar reynslu þá, er hann hefir
af gildi samtakanna.
Norðlenzki verkalýðurinn skil-
úr vel, hvílíkt gerræði það er
af atvinnurekendunum gagnvart
þjóðarheildinni og þó einkum
verkalýðnum að leggja togaraflot-
anum nú upp og valda með því
hinu ógurlegasta atvinnuleysi. Það
er engum efa bundið, að í skjóli
atvinnuleysisins munu atvinnurek-
endur gera tilraun til þess að
lækka kaupiö. Ofan á það að hafa
liíla sem enga vinnu á það að
bætast að fá þá litlu vinnu, er
gefst, hörmulega borgaða. At-
vinnurekendur munu sérstaklega
reyna að beita þessu við síldar-
útgerðina í surnar, því að þeir
búast við, að aðstreymi atvinnu-
lauss verkalýðs til síldarstöðvanna
verði svo mikið, að þeim verði
hægur vandi að vinna bug á sam-
tökunum. Þessirverður að afstýra,
og verkalýðurinn getur hindrað
þetta, ef hann er samtaka. Að
hann getur verið það, kom svo
greinilega í ljós, sem frekast mátti
Verða, í hinum ággætu samtökum
verkakvenna á Siglufirði á síð-
asta sumri. Þá var þó enginn
félagsskapur verkakvenna til þar.
Nú er hann myndaður, og verka-
kvennafélagið þar hefir þegar
auglýst kauptaxta sinn hér í blað-
inu. Því auðveldara ætti nú að
vera að standa vel saman.
Verkamenn og verkakonur, sem
ætlið noröur _til síldarstöðvanna!
Gætið þess að fara helzt ekki,
nema þið séuð ráðin og séuð viss
í því, að þið verðið ekki til þess
óviljandi að spilla kaupi verka-
iýðsins! Ráðið ykkur að eins upp
á kjör, sem ekki eru lakari en þau,
sem verkalýðsfélagsskapurinn
nyrðra hefir sett sem lágmark!
Og, er þið komið norður, komist
þá fljótt í samband við félög
verkalýðsins þar til að geta staðið
sem bezt saman, ef til kaupdeilna
kemur!
Nú ríður á að -láta ekki atvinnu-
rekendum takast að spilla sam-
tökum verkalýðsins nieð hinni
stórhættulegu verkstöðvun sinni
og atvinnuleysi því, er þeir skapa.
Síldartíminn er aðalatvinnutími
norðlenzka verkalýðsins, sumarið
oft eini tíminn, sem norðlenzkir
verkamenn geta unnið fyrir fjöl-
skyldum sínuni. Fyrir sunrdenzka
verkalýðinn er síldarvinnan að
Ágætt saltkjðf
at sauðum og vetrargömlu fé úr
Dalasýslu. Va kg. að eins 75 aura.
Ódýrara í heilum tunnum.
Kaupfélagið.
Simar 1026 og 1298.
eins aukavinna, lítill hluti af árs-
vinnu hans. Því treystir nú norð
lenzki verkalýðurinn á alla verka-
menn og verkakonur, er norður
koma til að stunda þennan at-
vinnuveg, að reynast sem sam-
herjurn ber, að hjálpa honum af
fremsta megni til að halda uppi
viðunanlegum kjörum fyrir at-
vinnu þá, er líf hans og atvinna
að mestu leyti byggist á.
Verkamenn og verkakonur!
Hindrið það, að atvinnurekendum
takist með neyðinni, er atvinnu-
leysinu fylgir, að eyðileggja eina
vopn verkalýðsins, samtökin! Eflið
heldur samtök hans og samheldni,
því að nú er meiri þörf að treysta
þau vopn en nokkru sinni fyrr!
Akureyri, í júní 1926.
Stjórn Verkalýðssambands
Norðurlands.