Alþýðublaðið - 02.07.1926, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 02.07.1926, Qupperneq 2
2 [alþýðublaðið j í kemur út á hverjifm yirkum degi. ► 1 ———■--—- --------=. j } Afgreiðsla í Aiþýðuhúsinu við > | Hverfisgötu 8 opin frá kl. 9 árd. I } til kl. 7 síðd. f ] Skrifstofa. á sama stað opin kl. > < 9s/g—■ 10 Va árd. og kl. 8—9 síðd. [ ) Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 > (skrifstofan). í Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á f mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 í ! hver mm. eindálka. > « Prentsmiðjá: Alpýðuprentsmjðjan » j (í sama húsi, sömu simar). f < > Kosníngin í gær. Af 6114 manns, sem- kosningar- rétt höfðu hér í Reykjavík, kusu «» eða yfir 3700. Á Akureyri kusu 670 af um 900 kjósendum. I Hafnarfirði kusu 530 af á 9. hundraði á kjörskrá. í Vestm.eyj- um kusu 550 af 880. Á Isafirði kusu á,5. hundrað. — Á Hellis- sandi notaði kjörstjórnin pað ó- þokkabragð að slíta kjörfundi kl. 4, á meðan fjöldi sjómanna var úti á sjó. Þar kusu pví að eins 40—50. Frá stórstúkuþinginu. Helztu samþyktir auk þeirra, er áður hafa verið birtar hér í blað- inu: Stórstúkuþingið samþykkir: I. að skora á framkvæmdanefnd sína að krefjast þess af ríkis- stjórninni að h ifa fullkomið eftir- með áfengisverzlun ríkisins, svo að trygt verði, að starfsmenn við verzlunina geti ekki misbrúkað stöðu sína eða að áfengi sé af- hent frá verzluninni á nokkurn annan háít en til er ætlast sam- kvæmt fyrirmælum laga. II. að fela framkvæmdanefnd- inni að fá þvi framgengt, að komið veröi á opinberu eftirliti með ölgerð í landinu, svo og með innfluttum öltegundum, og III. að fela henni að fá því til vegar komið, að sett verði í lög um veitingasölu og gistihússhald ákvæði Urn, að beita skuli, — þeg- ar brotið er í þriðja sinn á sama stað, — sem refsingu við ólög- legum áfengisveitingum banni gegn því, að vínveitingar fari fram a. m. k.' 12 næstu mánuði í ALÞÝÐUBLAÐIÐ því húsnæði, og að veitingamaður missi rétt. til veitingaleyfis eftir fyrsta brot á áfengislöggjöfinni. IV. Stórstúkan krefst þess, að ákvæðum bannlaganna um inn- siglun áfengis í skipum, er koma til landsins, sé stranglega fylgt, og felur framkvæmdanefndinni að veita málinu sérstaka athygli. V. Að gefnu tilefni skorar stór- stúkan alvarlega á ríkisstjórnina, að senda ekki drykkjumenn til annara landa í erindum ríkisins. Áskorun var samþykt, þar sem stórstúkuþingið krafðist opinbers eftirlits til hindrunar vínveiting- um á opinberum samkomum, -svo sem í réttum. Jafnframt voru samþykt mót- mæli gegn því, að íslenzkum strandvarnaskipum verði heimilað að þafa vínforða. Fyrirspurn barst stórtemplar. Var hún þess efnis, hvort templurum væri leyfi- legt að vinna opinberlega að kosningu andbanninga til bæjar- stjórnar eða þings. — Svar stór- templars: Yfirleitt ekki. íþróttamál. FB., 28. júní. Aðalfundur íþróttasambands ís- lands var haldinn hér 19. þ. m. í húsi Eimskipafélags íslands. Ynis íþróttamál voru til umræðu, t. d. um undirbúning næstu Olym- píuleika og þúsund ára hátíðina á Þingvöllum 1930. Forseti fþróttasambandsins, Axel V. Tulinius framkvæmdarstjóri, baðst úndan endurkosningu, en í hans stað var kosinn Benedikt G. Waage. Axel-V. Tulinius hefir verið forseti J, S. I. frá stofnun þess (22. jan. 1912) og hefir starfað mjög mikið fyrir íþrótta- níálin. Enn frernur voru kosnir tveir meðstjórnendur, og hlutu kosningu Halldór Hansen læknir og Magnús Kjaran kaupmaður. En fyrir voru í stjórninni: Guðm. Kr. Guðmundsson bókhaldari og Pétur Sigurðsson bókavörður. Æfifélagar í. S. I. hafa nýlega gerst: Steindór fimleikakennari Björnsson fi á Gröf, Pétur Sigurðs- son bókavörður og Ólafur Sveins- son vélsetjari. Æfifélagar íþrótta- sambandsins eru nú orðnir 35. fslandsglíman verður tiáð hér um miðjan júlímánuð, þegar glímuflokkur sá, sem nú er í Ðan- mörku, er kominn heim aftur. Innlend tlðindi« Vestmannaeyjum, FB., 28. j’úní. Skípafregnir. Brezkt herskip, Godetia, kom í gær úr eftirlits ferð og heimsókn- ar i kringum land. Það nýbrigði bar við hér í dag, að timbur- skonnorta, hlaðin tímbri til Gísla Johnsens, lagðist upp að bryggju, og er það í fyrsta skifti, að haf- sldp legst hér að bryggju. Bryggj- an er eign Gísla Johnsens. Um liaginn og veginn. Næturlæknir er i nótt Árni Pétursson, Upp- sölum, sími 1900. Listaverkasafn Einars Jónssonar verður frá 1. júlí til 1. september opið daglega kl. 1—3. Aðgangur er 1 króna, en ókeypis á sunnudögum og miðviku- dögum. Jarðarför Jóns heitins Magnússonar forsæt- isráðherra fór fram í dag. Hersktpið „Geysir“ kom hingaö í nótt, Veðrið. Hiti 15—11 st. Átt suðlæg og vestlæg, hæg. Útlit: I dag suðlæg átt, hægur á Austurlandi, dálítii úr- konia á Suður- og Vestur-landi. 1 nótt sunnanátt, úrkoma sunnanlands. Alþýðubókasafnið ’verður lokað þennan mánuð. Skorað er á 'þá, sem bækur hafa að láni, að skila þeim sem fyrst. Pálmi Hannesson hefír lokið meistaraprófi í nátt- úrufræði við háskóiann í Kaup- mannahöfn. Stúdentsprófi hafa lokið 43 nemendur við mentaskólann. Er skólanum var sagt upp í fyrru dag, gáfu 25 ára og 40 ára stúdentar j.Bræðrasjóði" sínar 1000 krónurnar hvorir. Trúlofun sína hafa nýlega opinberað ung- frú Valgerður Gísladóttir Hverfis- götu 91 og Einar Oestsson frá Norð- urkoti á Miðnesi,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.