Alþýðublaðið - 17.07.1926, Page 2

Alþýðublaðið - 17.07.1926, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ | ALÞÝÐUBLAÐIÐ [ < komur út á hverjum virkum degi. > } Afgreiðsla í Alþýðulnisinu við í j Hverfísgötu 8 opin frá kl. 9 árd. t ) til kl. 7 síðd. í j Skrifstofa á sama stað opin kl. | } 91/2— lO’/a árd. og kl. 8 — 9 síðd. t J Slmar: 988 (afgreiðslan) og 1294 ► 5 (skrifstofan). } ) Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á { J rnánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 } J hver min. eindálka. [ ! Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan { ; (i sama húsi, sömu símar). [ Hússar og Þjóðverjar. ------ (Nl.) II. Hlutleysis-sáttmálinn. Vitgrennri maður en utanríkis- ráðherra Rússa hefði séð sér leik á borði, er hér var komið sögunni, enda var Tschitscherin ekki seinn að grípa tækifærið. Jafnframt Jrví, að hann markaði andstöðu sínn gegn Þjóðabandalaginu skýrar en nokkru sinni fyrr og fór um [raö harðari orðum og ótvíræðari en venja er til meðal stjórnmála- manna, leitaði hann á ný hófanna um samninga við Þjóðverja. Og í þetta skifti varð honum vel á- gengt. Stresemann, sem annars hefir ekki sýnt neina atburða,- stjórnkænsku á sínum pólitíska feili, virtist nú hafa lært eigi all- lít' ð. Augu hans höfðu opnast fyrir þeim sannleika, að einmitt samningar við Rússland myndu styrkja hann í erjunum við vest- urveldin. Hann hafði séð, að það að standa uppi aleinn og vinurn horfinn var ekki sigurvænlegt, hvorki fyrir einstakling né þjóð, og að í því efni var betra að veifa röngu tré en engu. Myndi því ráðlegast að taka við hinni framréttu hendi frá Rússa hálfu. Svo hófust samni.ngarnir og gengu bæði fljótt og vel. Voru þeir leiddir til lykta fyrir apríi- lok í ár. Hvað hefir nú sáttmáli þessi inni að halda? Hann er mjög stuttur og gagnorður, — að eins í fjórum greinum. 1 2. og 3. grein finnast þau ákvæði, er mestu máli skifta. 1 2. grein er kveðið svo á, að stjórnir beggja ríkjanna skuld- bindi sig- til að leysa öll þau vandamál, er snerta bæði ríkin, á friðsamlegan hátt. Enn freniur, komi það fyrir, að annað ríkið verði fyrir árás úr einhverri átt, skuldbindur h'tt sig til hlutleýsis, meðan á deilunni stendur. 3. greinin ákveður, að verði samtökum beitt gegn öðrum sarnn- ingsaðilja með það fyrir augum að hnekkja honum fjárhagslega, skuldbindur hinn aðilinn sig til að taka ekki þátt í þeim samtök- uin. Samningurinn er bygður á þeim grundvelli, er lagður var 1922 i Rapollo: gagnkvæm vinátta óg hlutleysi rnilli ríkjanna. Þar er um ekkert annað eða meira en hlutleysi að ræða, eklfert hern- aðarbandalag, hvorki til sóknar né varnar. Ef ráðist er á annan aðilja, hvort heldur hann er sótt- ur með vopnum eða fjárhngsleg- um samfökum er beitt, þá er hin- um skylt að sitja hjá og hafast ekki að. Aftur á inóti ef annar- hvor aðilinn sjálfur heíur ófrið gegn einhverju ríki, þá er hinn laus allra mála. Þannig er hann nú, þéssi sátt- máli, er svo mikinn úlfaþyt hefir vakið víðs vegar um heim. Hefir hann verið talinn stofna friðin- um í hættu, verið gerður aö háskalegri árás á Þjóðabandalag- ið .og þar fram éftir götunum. Einkum hafa afturhaldsblöðin frönsku verið æf: Þetta bandalag á milii Berlínar og Moskva kemur eins og kjaftshögg á allar þær þjóðir, er að Þjóðabandalaginu standa. Verði Þýzkalandi veitt upptaka, stendur Þjóðabandalagið algerlega magnlaust gagnvart Rússlandi, getur ekkert að hafst nema með samþykki Þýzkalands, en það búið að binda sig fyrir fram. Um leið og Þýzkaland gengur inn í Þjóðabandalagið, kemur Rússland með, falið að baki jress, en sjálft grímuklætt og ábyrgðarlaust. Svona hefir hljóðið verið í frönsku blöðunum. Ensk blöð hafa og að nokkru leyti telcið í sama strenginn. Er það nú ekki einkennilegt, að þessi meinlausi friðar- og hlutleysis-samningur skuli valda slíku uppþoti? Ein- hver óheilindi hljóta að búa þar undir. Litvinov, einn af fremstu stjórn- málamönnum ráðstjórnarlýðveld- annaf mun hafa komið nærri kýl- inu eitt sinn í vor, er tilrætt varð um þetta mál. Honuin fórust orð eitthvað á þessa leið: Þegar spurt er, hvort samningur þessi sé i samræmi við hinn svonefnda Lo- carno-anda, þá er svarið undir því Komið, hveit markmiá það var, er Locarno-samþyktin stefndi að. Ef markmiðið var það eitt, að tryggja friðinn* þá er alls ekki um neitt ósamræmi að ræða, og þá ætti þýzk-rússneski sáttmálinn að vera öllum gleðiefni. Hafi aft- ur á móti Locarno-samþyktin stefnt að því að einangra Rúss- land og koma ráðstjórninni fyrir kattarnef, þá stríðir samningur- inn í fylsta máta á móti andanum frá Locarno. En það, sem hér er sagt um Lo- carno-samþyktina, á alveg eins við sjálft Þjóðabandalagið, sem ungað hefir út þessari samþykt. Ef það er það, sem það þykist vera, ef hlutverk þess og markmið er að trygg.ja heimsfriðinn, — þá verður alt þetta írafár út. af þýzk- rússneska samningnum lítt skilj- anlegt. Ölium friðarvinum ætti að vera það gleðiefni, að työ ríki geri friðar- Qg sátta-samning sin á milli. Öðru máli er að gegna, ef Þjóðabandalagið skyldi ekki vera annað en klíka sigurvegaranna og markmið þess á öðru hitinu að tryggja — ekki heimsfrióinn, heldur Versalafriðinn, en á hinu leitinu að tryggja yfirráð auö- valdsstéttanna í heiminum og halda jafnaðarhreyfingunni í skefjum, — þá fer alt að verða skiljanlegra. Þá er það ekkert annað en óróleg samvizka auð- valdsins, sem talar fyrir munn hinna reiðu blaðamanna. Og þá myndi Bandalagið fáum harm- dauði meðal alþýðustétta heims- ins, þótt svo færi, að það liðaðist sundur og lognaðist út af, eins og margt bendir á, að það sé í þann veginn að gera* En gleðiefni er það fyrir verka- lýðinn, að samningar hafa tekist með Rússum og Þjóðverjum. Það er engan veginn í þágu verka- lýðsins, að Rússland verði ein- angrað og ráðstjórninni hnekt. Þrátt fyrir skoðanamun og margs konar hleypidóma og innbyrðis erjur hafa þó verkamenn um all- an heim mænt til Rússlands sem stjörnunnar í austri. Það hefir

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.