Alþýðublaðið - 24.07.1926, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 24.07.1926, Blaðsíða 1
ýðúblaðfð Gefið út af AlÞýduflokknnm 1926. Laugardaginn 24. júlí. 170. tölublað. Erlend sfmskeytí. Khöfn, FB., 23. júlí. Stjórnarmálin frönsku. Poincaré myndar stjórn? Frá París er símað, að Poincaré myndi líklega stjórn og verði ráðuneyti hans þjöðlegt sam- steypuráðuneyti með stuðningi hægri miðflokkanna og nokkurs hluta gerbótamanna. Ríkissjóður- inn hefir að eins yfir að ráða þrjátíu milljónum dollara, nefni- lega afgangi Morgans-lánsins. Ameriska auðvaldið setur Frökkum skilyrði. Frá Washington er símað, að fullyrt sé, að stjórnin hafi til- kynt Frökkum, að engin lán verði fáanleg, nema varanleg stjórn verði mynduð og skuldasamning- urinn samþyktur. ByoginDar-hneyksli. Margra vikna verk ónýtt. Það er komið upp h^ldur lag- iegt stand með byggingu lands- spítalans. Það hefir komið í ljós, að mikill hluti af steypunni í kjallarahæð spítalans hefir ekki harðnað nema dálítið að utan, en þegar komið er inn úr skelinni, má klóra steypuna niður. Menn vita ekki, hvernig í þessu iiggur, og haida sumir, að þetta stafi af slæmu sementi, en aðrir fullyrða, að sandinum, sem not- aður hafi verið, sé um að kenna. Sé það jarðsandur, og muni vera í honum jarððsýrur, er varni hörðnuninni. Þetta er enn ekki útkljáð, og er verið að leita orsakarinnar með rannsókn á steypuefninu, en ó- vandlega virðist hafa verið til steypunnar stofnað, hvernig sem í þessu liggur, og dýrt verður jietta vafalaust ríkissjóði. Vonandi er, að gengið verði vel frá rannsókn á þessu, svo að slík slysni endurtakist ekki. Innlend tíðindi. Akureyri, FB., 23. júlí. Árferði. Votviðrasamt undanfarið. Ligg- ur taða víða undir skemdum. I nótt snjóaði í fjöll. Sildveiði sára- lítil síðustu dagana vegna óhag- stæðrar veðráttu. Gestakoma. „Fylla“ er hér með landvarnar- ráðherra Dana og nokkra þing- menn. Fóru þeir til Mývatns í morgun. fsl. Dægurflugur eftir Þorstein Gíslason. (Reykjavík, Prentsmiðjan Acta, 1926.) II. Flugur þessar kunna þá list að vera í samræmi við umhverfið. Þær suða á dönsku, þegar það á við. Haab og Skuffelse. Saa tror jeg, at vi kan magte den islandske Politik. For Isefjord skriver vi særskilt, for der er jeg Bolsjevik. Man siger, vi kan ikke skrive, og Abonnementerne*) gaar. Jeg er saa ganske forbavseL og mister mit sidste Haar. Vel sé þeim flugum, sem lyfta sér frá jörðu og hefja augu sín í himnana. —. Dægurflugur gera það, og er þá dýrð þeirra mest. Á Þorláksmessu. Löng er nótt, en ljósin björt langt fyrir ofan ský. Saltarinn er sunginn sólna höllum í. Heyrist vítt unt vetrarbraut veizlugleðin hó. Sætir söngvar óma sjöstjörnunni fró. Englar fljúga’ um allan heiin út með Þorláks hrós. Fyrir sálmasöngvum sveiflast norðurljós. Allir saman síðar meir syngjum við með þeiin, þvi við ætlum allir í þann fagra heim. III. Þannig kemst skáldið að orði í f ormála 1 jóða'nna: — — „Vil ég heldur gefa þær V (vísurnar) út sjálfur en að þær yrðu síðar, ef til vill, fleiri eða færri, gefnar út meira eða minna afbakaðar. Allar hafa þessar gam- anvísur verið sungnar — þegar þær voru nýortar, sumar oft, og hafa upphaflega ekki verið til annars gerðar en' að skemta mönnum í svip. — Fer því fjarri að ætlun mín sé að styggja nokkurn með birtingu kvæðanna, enda munu allir sjá, að hér hefir aldrei verið um ann- áð en græskulaust gaman að ræða.“ Skýringar fylgja kvæðunum, og eru þær nauðsynlegar ungu fólki, sem ekki þekkir atburðina. — Flugur að flugum vega fljúg- andi alt í kring; en hver einasta fluga ábyrgjast verður sinn sting. Hallgrlmttr Jónsson. Til sildveiða. Búist er viö, að togarinn Austri fari síðdegis í dag vestur til síld- veiða. Hann á að leggja veiðina upp á Onundarfirði. *) Kaupendurnir,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.