Alþýðublaðið - 29.07.1926, Síða 1
Alþýðiiblaðið
Gefid út af AipýAuflokknum
1926.
Fimtudaginn 29. júlí.
174. tölublað.
Erlend símskeyti.
Khöfn, FB., 28. júlí.
Fjárhagsmállð franska.
Frá París er símað, að þegar
stjórnin kom á þingfund, hafi
sameignarmenn tekið á móti
henni með ópum miklum. Sam-
pykt var tillaga, er lýsti trausti
á stjórninni, og jafnframt frest-
un á umræðu um fjárlögin með
prem fjórðu hlutum atkvæða.
Fjárlög hafa verið lögð fyrir fjár-
hagsnefnd pingsins til íhugunar.
Nýja skatta, er'nema sjö milljörð-
um franka, á að leggja á, og af
peim fer einn milljarð til launa-
uppbóta til óánægðra starfs-
manna. Skyndiafgreiðsla fjárlag-
anna var síðan sampykt mótstöðu-
laust. Lögreglan hefir sundrað
mótmælasamkomum verkamanna
og ýmissa óánægðra starfsmanna
ríkisins.
„Orðrómur“ frá Rússlandi.
Frá Moskva er símað, að : sá
orðrómur leiki á, að Sokolnikov
sé meðsekur Sinoviev, er hafi
spilt sáttum milli sveita- og
borga-búa og tjáð samningsvilja
stjórnarinnar við Evrópupjóðirnar
ósamrýmanlegan baráttunni fyrir
heimsbyltingu.
Stauning kominn heim.
(Eftir tilk. frá sendiherra Dana.)
„Island" kom til Kaupmanna-
hafnar um miðdegi á mánudag-
inn. Samdægurs íluttu kvöldblöð-
in viðtöl við Stauning forsætisráð-
herra. Kveður hann sig hafa sann-
færst um mikinn vinarhug íslend-
inga til Dana, og lýsir síðan kynn-
um sínum af landinu og ástand-
inu. „Social-Demokraten“ flutti á
priðjudaginn langt viðtal við ráð-
herrann með myndum frá ölfus-
árbrú, Þingvöllum og af andlits-
mynd Ríkharðs Jónssonar af Stau-
ning. M. a. segir ráðherrann: „Ég
vona, að danskir atvinnurekendur
fari að vinna að sölu á íslenzkum
afurðum. Það er næsta óskiljan-
legt, að ekki skuli vera talsverð-
ur markaður hjá oss fyrir hina
ágætlega vel verkuðu íslenzku
síld, og sama má segja um ýmsar
aörar fiskaíurðir, sem vér ættum
fyrst og fremst að leita eftir á
íslandi.“
lunlend tfðindi.
Akureyri, FB., 28. júlí.
Sildveiðln.
Síldveiðin hefir gengið stopult
vegna ógæfta. Einnig hefir illkynj-
uð kvefpest gengið á skipunum,
svo að sum hafa orðið að liggja
á h.öfnum niarga daga. Mest af
peirri síld, sem veiðst hefir, hef-
ir 'farið í Ibræðslu. 1 Akureyrarum-
dæmi hafa að eins verið saltaðar
1510 tunnur.
Tíðarfarið.
Fyrsti verulegur purkdagur í
hálfan mánuð er í dag, og hefir
bændum tekist að bjarga töðu
sinni, sem lá undir skemdum. 1
Öxnadal hafði taða skemst til
rnuna á sumum bæjum, og svo
mun víðar, pótt ekki hafi til
spurst enn. Ópurkarnir munu hafa
verið mestir í dölum inn til fjalla.
Einar H. Kvaran
llutti hér erindi í gærkveldi fyrir
fullu húsi. Var pað um sálar-
rannsóknir.
Innflutningsbann
vegna munn- og klaufa-veiki.
FB., 29. júlí 1926.
Atvinnu- og samgöngumála-
ráðuneytið tilkynnir:
Með pví að mjög skæð munn-
og klaufa-veiki gengur nú i Dan-
mörku og Svípjóð, er hér með
samkvæmt lögum nr. 22, frá 15.
júní p. á., um innflutningsbann á
dýrum o. fl. og með ráði dýra-
læknisins í Reykjavík bannað að
viðlögðum sektum og skaðabótum
samkvæmt lögum pessurn aö
flytja fyrst um sinn til landsins
frá löndum pessum lifandi fugla,
hey, hálm (nema umbúðahálm),
alidýraáburð, hráar og lítt salt-
aðar sláturafurðir, hverju nafni
sem nefnast, ósoðna mjólk og
notaða fóðurmjölssekki.
Auglýsing samhljóða tilkynning
pessari hefir verið' gefin út til
birtingar í Lögbirtingablaðinu.
Einstaklingsframtakið.
Undanfarió hafa tveir alpekt-
ir „heldri" borgarar, peir Ó. G.
Eyjólfsson og R. P. Leví, hnakk-
rifist í blöðum og bæklingum.
Bera peir par hvor á annan hin-
ar stórkostlegustu falsanir, fjár-
drátt og glæpi. Húðfletta peir svo
hvor annan, að báðir standa eft-
ir berstrípaðir skjálfandi í kulda
almenningsálitsins. Það er gam-
an að sjá „heldri“ borgarana
fletta hvorn ofan af öðrum og
sýna með pví hiö „guðdómlega
frjálsa einstaklingsframtak" í
sinni réttu og sönnu mynd.
En auðvaldsblöðin hrópa pó
dag eftir dag af krafti sannfær-
ingarinnar: „Lifi einstaklingsfram-
takið!" og „borgararnir" ganga
áfram götu hinnar „frjálsu sam-
keppni" hnakkakertir, ljómandi af
framtakinu og í hávegum hafðir.
En alpýðan brosir að pjóð-
skipulagi „borgaranna".
V.
Alþýðubókasafnið.
Þeir, sem hafa bækur að láni úr
Alpýðubókasafninu, eru beðnir að
skila peim ekki síðar en næstkomand
laugardagskvöld.