Alþýðublaðið - 31.07.1926, Qupperneq 1
ýðúblaðið
Gefid út af Aipýduflokktnim
1926.
Laugardaginn 31. júlí.
176. tölublað.
Viðurkenning
islenzka rikisins á alþýðulýð-
veldinu rússneska.
Ákveðið hefir verið, að íslenzka
ríkið viðurkenni fyrir sitt leyti
alþýðulýðveldið rússneska. Hefir
sú ákvörðun dregist hiægilega
lengi. Nýlega spurði Alþbl. Jón
Þorláksson, núverandi forsætis-
ráöherrá, um, hvað pessu rnáli
liði, og kvaÖ hann viðurkenning-
una verða gefna, en hvort athöfn-
in væri komin í formlega fram-
kvæind eða ékki, kvaðst hann ekki
geta sagt um að svo stöddu.
Stauning
segir frá Aljjýðuflokknum.
(Tilkynning frá sendiherra Dana.)
I framhaldsviðtali við „Social-
Demokraten'1 gerir Stauning for-
•sætisráðherra grein fyrir jafnaðar-
mannaflokkinum íslenzka (Al-
Jrýðuilokkinum), aðstöðu hins og
mönnum og segir frá samfundum
sínum við íslenzka skoðanabræð-
ur. „Þetta hefir“, lýkur forsætis-
ráðherrann frásögn sinni, „verið
ferð, sem við munum geyma í
endurminningunni.“
Erlend sfmskeyti.
Khöfn, FB„ 31. júlí.
Frumvörp um skatt á útlend-
inga i Frakklandi.
Frá París er símað, að sennilega
samþyidu , þingiö fjárlögin nú.
Hafa þau náð samþykt fjárhags-
nefndar. Poincaré stingur upp á
l'iunahækkun handa þingmönnum.
Frumvarp um skatt á útlendinga
hefir verið lagt fyrir þingið. Sam-
kværnt því á hver útlendingur,
sem kemur inn í landið, að greiða
200 franka í skatt.
Hanna GranfeMt
syngur í Nýja Bíó priðjud. 3 águst kl. 7 V2. Hr.
Emll Thoroddsen spilar á hljóðfærið. Aðgöngu-
miðar seldir í MlJóðfæraSitísinti.
Ákæra á ýmsafnorska f jármála-
og stjórnmála-menn auðvalds-
flokkanna.
Frá Osló er símað, að sameign-
arsinni, sem var í nefnd þeirri,
er ákærði Bergeráðuneytið, hafi
opinberað nöfn fjármála- og
stjórnmála-manna, er kunnugir
voru hag bankans (Handelsban-
ken), og tekið höfðu út inneignjr
sínar, eftir að ríkisstyrkurinn
hafði verið greiddur bankanum.
Á meðal hinna nafngreindu er
Edte bankastjóri með 1/4 milljón-
ar, og Holst forstjóri með hálfa
milljón.
Mikiil fornmenjafundur
í Danmörku.
(Tilk. frá sendiherra Dana.)
Við malargröft við járnbrautar-
hgningu ,í Faardal fyrir austan
Vébjörg hefir komið upp mikill
bronzigripafundur: stór og smá,
skreytt hengiker, bringudjásn og
hálshringur, alt góðir gripir og í
góðu standi, og enn fremur tveir
hlutir, óþektir til þessa, sem helzt
má kalia fánamerki. Eru þeir flöt
bronzibönd ofan til og á bringa
og höfuð. Þá er og mynd af
knéfallandi konu, sem ef til vili
er eftirgerð mynd, ormsmynd og
ophluti af sverðslíðrum. Enn hafa
fundist tveir breiðir armsmokkar,
tveir undnir armhringar, tvær nál-
ar, digur stöng, hnappur, steypu-
hlunkur og ýmislegar leifar með
hnöppum. Allir hluíirnir lágu í
hengikerunum og eru með einni
undantekningu eldri frá miðju
Hið ágæta franska
alklæði,
sem allur bærinn þekkir, er nú
aftur komið.
Verðið esan lægra en
áðnr.
Að eins kr. 11,50, 12,90,
15,75 metr.
bronzitímabilinu síðara, sem sé
frá áttundu og níundu öid fyrir
Krists burð. Könumyndin er einlt-
um áliiin mjög merkileg.
Smáskriftarmet.
Stúdent í Glasgow, sem fyrir
nokkru hafði tekist að skrifa 11000
orð á bréfspjald, hugði sig meö því
hafa náð heimsmeti í smáskrift, en
maður í British Columbia haföi af
honum þennan heiður með því að
skrifa 1000 orðum fleira á bréf-
spjald. Betur þykir þó enskur stú-
denl liafa gert, sem tókst að skrifa
600 orð aftan ú frímerki, og er hann
nú talinn hafa rnetið.
Engin almenn verzlunarmanna-
skemtun verður 2. ágúst.