Alþýðublaðið - 31.07.1926, Page 5

Alþýðublaðið - 31.07.1926, Page 5
ALÞÝÐUBLABIÐ 5 Ó. G. Eyjólfsson heldur því fram, að Leví hafi átt upptök að þes'sum leiðinlega og óforsvar- unlega rithætti með útgáfu á nið- pésa sínum, — að hann (ó. G. E.) hafi svarað þessum pésa með húgvœrri grein (fylgibl. með „Lögréttu") til þess að verja hend- ur sínar, — að Leví hafi nýiega útgefið níðrit fult af rógi og ó- sannindum, sem sé alveg einstætt í íslenzkum bókmentum, og að í þessari deilu sé ékki um annað að ræða en skrif brjálaðs manns. Hann gat þess enn fremur, að al- þýðumenn, sem hefðu haft við- skifti viö hann, myndu ekki bera honum ilia söguna, og áliti hann því ekki, að hann stæði berstríp- aður gagnvart þeim. Blaðið spurði, hvort Ó. G. Eyjólfsson ætlaði ekki að svara síöari grein Levís; en því þverneitaði hnnn, kvaöst ekki vilja mannspilla sér á því, en ekki væri óhugsandi að hann myndi reka réttar síns á annan hátt. IJm s!ac;insi og veginn. Næturlæknir er í riótt Magnús Pétursson. Grundarstig 10, sími 1185 (i stað Guömundar Guðfinnssonar) og aðra nótt Friðrik Björnsson, Thorvaldsens- stræti 4, sími 1786. Sunnudagslæknir er á morgun Fiiðrik Björnsson, Thor- \ aldsensstræti 4, símar 1786 og 553, Næturvörður er næstu viku i lyfjabúð Lauga- vegar. Messur á morgun: 1 dómkirkjunni kl. 11 séra Friðrik Hallgrímsson. I frí- kirkjunni kl. 5 Haraldur prófess- or Níeisson. I Landakotskirkju kl. 9 f. m. hámessa. Engin síðdegisguðs- jjjónusta í henni né dómkirkjunni. Sóra Árni Sigurðsson frikirkjuprestur fer burt úr bæn- um í dag austur yfir fjail og kemur aftur 11. ágúst eða þar um bii. Bið- ur hann pess getið, að í fjarveru sinni annist séra Ólafur Ólafsson fríkirkjuprestur ■ og prestar dóin- kirkjusafnaðarins embættisverk lians eftir því, sem þörf krefur. Heilsuhæli N *>rðlendinga í Kristnesi við Eyjafjörð var kom- ið það áleiðis nú fyrir viku, að lokið var að steypa kjallara húss- ins, neðri hæð og gólf efri hæðar. Sími hefir einnig verið lagður að Kristnesi. Þórbergur Þórðarsson rithöíundur hefir fengið styrk úr Carlsbergssjóði, lil þjóðfræðasöfn- unar hér á landi. Þórbergur er væntanlegur hingað heim með „Gullfossi" 19. ágúst. Listasýningin verour opiri á morgun (sunnudag) og mánudag frá kl. 10 f. h. til 8 e. h. Qrsölt eldsins, sem kom upp í húsinu nr. 24 á Vesturgötu í fyrradag, var sú, að því er frá gasstöðinni er haft eftir, slökkviliðsstjóranum, að kviknað tiafi í tréspónakassa, sem .staðið hafi undir gasáhaldi, og hafi þvi bráðn- að tinið úr gasmælinum. Alþýðublaðið er sex síður í dag og kemur næst út á þriðjudaginn, því að 2. ágúst er hvíldardagur prentara. Talning landskjörsatkvæðanna byrjar ki. 10 á þriðjudagsmorg- uninn, eins og áður hefir verið aug- lýst hér í blaðinu, og fer hún fram i lestrarsal alþingis. Alþýðublaðið lætur birta atkvæðatölurnar á hálfr- ar stundar- fresti í gluggum á þess- um stööum: i Alþýðuprentsmiðj- unni, Alþýðubrauðgerðinni á Lauga- vegi 61 og Baldursgötu 14, kaup- félaginu í Aðalstræti 10 og á Laugavegi 43, í Hljóðfærahúsinu í Austurstræti 1, á Vesturgötu 29 og. í bókaverzlun Ársæls Árnasonar á Laugavegi 4. Fyrirspurnum um at- kvæðatölur verður svarað í a}- (jreicslusíma Alþýðublaðsins 988. Skipið með sementsslattann, — sbr. greinina „Sementsleysið", — kom í nött. Veðrið. Hiti 12—9 stig. Átt suðlæg og austlæg, fremur hæg. Sums staðar hægt regn. Loftvægislægð fyrir suð- vestan land. Otlit: Suðlæg átt, all- hvöss hér í nándinni og í nótt senni’ega einnig á Vesturlandi. Új- koma víða, einkum .sunnanlands og í nött á Vesturlandi. Laust Rasmussen, varnarmálaráðherra i jafnaðar- mannastjórninni dönsku, kom hing- þð með „Fyllu“ í gærkveldi. AI- þýðublaðið býður hann velkominn hingað. Skipafréttir. Fisktökuskip kom til Coplands í gærk\’eidi eða í nótt. Þýzkur tog- ari kom í gærkveldi með bilaðan ketil. Varðskipið „Fylla“ kom kl. 6 í gærkveldi. Búðum verður lokað kl. 4 í dag og alian mánudaginn, öðrum en brauðsölu- búðum, þvi að 2. ágúst er hvíldar- dagur verzlunarmanna. Hanna Granfeldt syngur á þriðjudaginn kemur kl. 71/2 e. m. í „Nýja bíó“, en Emil Thoroddsen spilar. Ekki þarf þess að spyrja hvað „Mgbl.“ vill um kaup verka- manna. Það vita allir, að það vill kauplækkun þeirra, en um kaup- lækkun hjá t. d. framkvæmdastjór- um togarafélaga og bankastjórum talar það ekki. Það hefir jafnán sýnt, uin hvora því er annara, verka- menn eða eignainenn, alþýðu eða burgeisa. Um hitt þarf heldur ekki að spyrja, hverjum Valtýr fylgir. Hann var með „Framsóknar“-fIokks- mönnum meðan hann var ráðunaut- ur, en með íhaldinu eftir að til mála kom, að það klíndi á hann rit- stjóranafninu. — „Þar sem hræið er, þangað munu ernirnir safnast", stendur þar. — Hins vegar er hægt að fræða Valtý um það, að Alþýðu- flokkurinn stendur sameinaður gegn árásum á verkamenn, og að „Mgbl.' þarf ekki að vonast tii að geta sundrað honum. Billjón. Hvað er billjón mikið? Því getur hvert skóiabarnið svarað. Þaö er auðvitað milljón sinnum milljón. Það er fljótlegt að segja þetta og skrifa það, en taiið getur það enginn maóur. Flýti maður sér duglega, þá getur hann talið 160 - 170 á mínútu, í hæsta lægi 200 á mínútu. Hann telur þá 12 þúsund á klukkustund, 228 þúsund á dag með því að hafa ekki nema 6 stundir til svefns og matar á sólarhring, en vinna nær 18 stundir, og með því getur hann talið 105 120 000 á árinu. Setjiun svo að Adam gamli lifði enn þá og hefði byrjað að telja undir eins og hann vaknaði tii lífsins og hefði aldrei doskað eða fráskákað sér neitt; þá ætti hann þó mikið eítir enn, þvi tiþþess að telja biiljón, þarf 9512 ár, T -rtiánuö og 20 minútur. En ef við lofum nú þessum vesa- lings talningsmanni að fá 12 stundir á sólarhring til svefns, hvíldar og máltiða, og það verður ekki kallað ósanngjarnt, þá nægir honuin ekki minna en 19 þúsund 24 ár, 2 mánuðir, og 40 mínútur til að telja billjónina. Ætti maður billjón í 1 kr. peipng- um og tæki sér fyrir hendur að raða hverri ofan a aðra, þá hefði maður nóg i 3 súlur, sem næðu frá jörðinni til tunglsins, og hefði þö svo mikinn afgang, að engin hætta væri á því, að maður fáeri á sveitina. „Arnfiröingur.“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.