Alþýðublaðið - 31.07.1926, Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLABIÐ
5
Ó. G. Eyjólfsson heldur því
fram, að Leví hafi átt upptök
að þes'sum leiðinlega og óforsvar-
unlega rithætti með útgáfu á nið-
pésa sínum, — að hann (ó. G. E.)
hafi svarað þessum pésa með
húgvœrri grein (fylgibl. með
„Lögréttu") til þess að verja hend-
ur sínar, — að Leví hafi nýiega
útgefið níðrit fult af rógi og ó-
sannindum, sem sé alveg einstætt
í íslenzkum bókmentum, og að í
þessari deilu sé ékki um annað
að ræða en skrif brjálaðs manns.
Hann gat þess enn fremur, að al-
þýðumenn, sem hefðu haft við-
skifti viö hann, myndu ekki bera
honum ilia söguna, og áliti hann
því ekki, að hann stæði berstríp-
aður gagnvart þeim. Blaðið
spurði, hvort Ó. G. Eyjólfsson
ætlaði ekki að svara síöari grein
Levís; en því þverneitaði hnnn,
kvaöst ekki vilja mannspilla sér
á því, en ekki væri óhugsandi að
hann myndi reka réttar síns á
annan hátt.
IJm s!ac;insi og veginn.
Næturlæknir
er í riótt Magnús Pétursson.
Grundarstig 10, sími 1185 (i stað
Guömundar Guðfinnssonar) og aðra
nótt Friðrik Björnsson, Thorvaldsens-
stræti 4, sími 1786.
Sunnudagslæknir
er á morgun Fiiðrik Björnsson, Thor-
\ aldsensstræti 4, símar 1786 og 553,
Næturvörður
er næstu viku i lyfjabúð Lauga-
vegar.
Messur
á morgun: 1 dómkirkjunni kl. 11
séra Friðrik Hallgrímsson. I frí-
kirkjunni kl. 5 Haraldur prófess-
or Níeisson. I Landakotskirkju kl.
9 f. m. hámessa. Engin síðdegisguðs-
jjjónusta í henni né dómkirkjunni.
Sóra Árni Sigurðsson
frikirkjuprestur fer burt úr bæn-
um í dag austur yfir fjail og kemur
aftur 11. ágúst eða þar um bii. Bið-
ur hann pess getið, að í fjarveru
sinni annist séra Ólafur Ólafsson
fríkirkjuprestur ■ og prestar dóin-
kirkjusafnaðarins embættisverk lians
eftir því, sem þörf krefur.
Heilsuhæli N *>rðlendinga
í Kristnesi við Eyjafjörð var kom-
ið það áleiðis nú fyrir viku, að
lokið var að steypa kjallara húss-
ins, neðri hæð og gólf efri hæðar.
Sími hefir einnig verið lagður að
Kristnesi.
Þórbergur Þórðarsson
rithöíundur hefir fengið styrk úr
Carlsbergssjóði, lil þjóðfræðasöfn-
unar hér á landi. Þórbergur er
væntanlegur hingað heim með
„Gullfossi" 19. ágúst.
Listasýningin
verour opiri á morgun (sunnudag)
og mánudag frá kl. 10 f. h. til 8
e. h.
Qrsölt eldsins,
sem kom upp í húsinu nr. 24 á
Vesturgötu í fyrradag, var sú, að
því er frá gasstöðinni er haft eftir,
slökkviliðsstjóranum, að kviknað
tiafi í tréspónakassa, sem .staðið hafi
undir gasáhaldi, og hafi þvi bráðn-
að tinið úr gasmælinum.
Alþýðublaðið
er sex síður í dag og kemur næst
út á þriðjudaginn, því að 2. ágúst
er hvíldardagur prentara.
Talning landskjörsatkvæðanna
byrjar ki. 10 á þriðjudagsmorg-
uninn, eins og áður hefir verið aug-
lýst hér í blaðinu, og fer hún fram
i lestrarsal alþingis. Alþýðublaðið
lætur birta atkvæðatölurnar á hálfr-
ar stundar- fresti í gluggum á þess-
um stööum: i Alþýðuprentsmiðj-
unni, Alþýðubrauðgerðinni á Lauga-
vegi 61 og Baldursgötu 14, kaup-
félaginu í Aðalstræti 10 og á
Laugavegi 43, í Hljóðfærahúsinu í
Austurstræti 1, á Vesturgötu 29 og.
í bókaverzlun Ársæls Árnasonar á
Laugavegi 4. Fyrirspurnum um at-
kvæðatölur verður svarað í a}-
(jreicslusíma Alþýðublaðsins 988.
Skipið með sementsslattann,
— sbr. greinina „Sementsleysið",
— kom í nött.
Veðrið.
Hiti 12—9 stig. Átt suðlæg og
austlæg, fremur hæg. Sums staðar
hægt regn. Loftvægislægð fyrir suð-
vestan land. Otlit: Suðlæg átt, all-
hvöss hér í nándinni og í nótt
senni’ega einnig á Vesturlandi. Új-
koma víða, einkum .sunnanlands og
í nött á Vesturlandi.
Laust Rasmussen,
varnarmálaráðherra i jafnaðar-
mannastjórninni dönsku, kom hing-
þð með „Fyllu“ í gærkveldi. AI-
þýðublaðið býður hann velkominn
hingað.
Skipafréttir.
Fisktökuskip kom til Coplands í
gærk\’eidi eða í nótt. Þýzkur tog-
ari kom í gærkveldi með bilaðan
ketil. Varðskipið „Fylla“ kom kl.
6 í gærkveldi.
Búðum
verður lokað kl. 4 í dag og alian
mánudaginn, öðrum en brauðsölu-
búðum, þvi að 2. ágúst er hvíldar-
dagur verzlunarmanna.
Hanna Granfeldt
syngur á þriðjudaginn kemur kl.
71/2 e. m. í „Nýja bíó“, en Emil
Thoroddsen spilar.
Ekki þarf þess að spyrja
hvað „Mgbl.“ vill um kaup verka-
manna. Það vita allir, að það vill
kauplækkun þeirra, en um kaup-
lækkun hjá t. d. framkvæmdastjór-
um togarafélaga og bankastjórum
talar það ekki. Það hefir jafnán
sýnt, uin hvora því er annara, verka-
menn eða eignainenn, alþýðu eða
burgeisa. Um hitt þarf heldur ekki
að spyrja, hverjum Valtýr fylgir.
Hann var með „Framsóknar“-fIokks-
mönnum meðan hann var ráðunaut-
ur, en með íhaldinu eftir að til
mála kom, að það klíndi á hann rit-
stjóranafninu. — „Þar sem hræið
er, þangað munu ernirnir safnast",
stendur þar. — Hins vegar er hægt
að fræða Valtý um það, að Alþýðu-
flokkurinn stendur sameinaður gegn
árásum á verkamenn, og að „Mgbl.'
þarf ekki að vonast tii að geta
sundrað honum.
Billjón.
Hvað er billjón mikið? Því getur
hvert skóiabarnið svarað. Þaö er
auðvitað milljón sinnum milljón.
Það er fljótlegt að segja þetta og
skrifa það, en taiið getur það enginn
maóur. Flýti maður sér duglega, þá
getur hann talið 160 - 170 á mínútu,
í hæsta lægi 200 á mínútu. Hann
telur þá 12 þúsund á klukkustund,
228 þúsund á dag með því að hafa
ekki nema 6 stundir til svefns og
matar á sólarhring, en vinna nær 18
stundir, og með því getur hann talið
105 120 000 á árinu.
Setjiun svo að Adam gamli lifði
enn þá og hefði byrjað að telja undir
eins og hann vaknaði tii lífsins og
hefði aldrei doskað eða fráskákað
sér neitt; þá ætti hann þó mikið eítir
enn, þvi tiþþess að telja biiljón, þarf
9512 ár, T -rtiánuö og 20 minútur.
En ef við lofum nú þessum vesa-
lings talningsmanni að fá 12 stundir
á sólarhring til svefns, hvíldar og
máltiða, og það verður ekki kallað
ósanngjarnt, þá nægir honuin ekki
minna en 19 þúsund 24 ár, 2 mánuðir,
og 40 mínútur til að telja billjónina.
Ætti maður billjón í 1 kr. peipng-
um og tæki sér fyrir hendur að raða
hverri ofan a aðra, þá hefði maður
nóg i 3 súlur, sem næðu frá jörðinni
til tunglsins, og hefði þö svo mikinn
afgang, að engin hætta væri á því,
að maður fáeri á sveitina.
„Arnfiröingur.“