Alþýðublaðið - 07.08.1926, Qupperneq 1
Gefið út af Aipýðuflokknnm
1926.
Laugardaginn 7. ágúst.
181. tölublað.
Heillaóskaskeyti
hefir forsætisráðherra Dana, Th.
Stauning, sent Jóni Baldvinssyni,
í tilefni af kosningasigri Alþýðu-
flokksins.
Grlend símskeytl.
Khöfn, FB., ■ 6. ágúst.
Fjárhagsmál Frakka
Frá París er símað, að þingið
hafi samþykt iögin um afborg-
anasjóðinn. Lausaskuldir nema
fjörutíu og níu milljörðum.
Tekjulindir sjóðsins verða senni-
iega ófullnægjandi. Fyrirhuguð
aukning seðlafúlgu Frakklands-
banka til kaupa á erlendum
gjaldeyri orsakaði verðfall á
frönkum í Lundúnum.
Kolanámudeilan.
Frá Lundúnum er símað, að
verkamenn í tveimur námuhéruð-
um hafi felt sáttaboð biskupanna.
— Innflutt kol nema sex hund-
ruð þúsundum smálesta.
Vatnsflóð og drukknanir i Kina.
Frá Hankow er símað, að flóð-
garðar hafi bilað vegna feikna-
vatnsflóða. f Yangtsekiangi'ljótinu
drukknuðu þrjár þúsundir í flóð-
um.
Efygert Pálsson,
alþingismaður, prófastur á
Breiðabólstað í Fljótshlíð, andað-
ist í Kaupmannahöfn í gær. Fór
hann þangað í júnímánuði til að
leita sér lækninga. Banameinið
var krabbamein. Hann var fædd-
ur 6. október 1864 á Meðalfelli í
Kjós, vígður prestur að Breiða-
bólstað 1889 og hefir verið prest-
ur þar í 37 ár. Hingmaður Rang-
æinga varð hann fyrst 1902 og
jafnan síðan, nema næsta kjör-
tímabil á undan því, sem nú er.
Notið Gold Dust við uppþvotti
búsáhÍSldum.
Annar hljúmleikur
Mönnu Granfelt.
Hann var nú ágætlega sóttur,
þó miður hafði verið í fyrra sinn-
ið, enda hefði ungfrúin varla get-
að sungið í óhentugra mund en
þegar verið var að telja upp at-
kvæðin.
Söngurinn var ágætur, með-
íerðin ágæt. Sérstaklega fór „kol-
oratur“-söngurinn ágætlega. Eng-
ar voru misjöfnur, alt jafngott.
Það verður því eindregið að ráða
Reykvíkingum til að fara og
hlusta á ungfrúna. Hún hefir
mestu rödd, sem hér hefir heyrst.
Það kemur hingað hver söng-
maður og hljómlistarmaður eftir
annan, og svo að segja allir með
óperur og svo nefnda „hærri mú-
sík“. Því fá rnenn aldrei þjóðlög;
þau eru fædd af hjarta þjóðanna,
en ekki af heila listamanna. Eða
er það eins og með næturgala
keisarans af Kína, sem þótti
skárri en lifancíi næturgalinn, af
því hann gekk fyrir vél?
Að minsta kosti vil ég skora á
ungfr. Granfelt að hafa hér eitt
finskt þjóðlagakvöld. br.
Hanna Granfelt
söng í gærkveldi viö góða aðsókn
og af þeirri óvenju snild og
kunnáttu, sern þegar er orðin al-
kunn hinu íslenzka söngeyra.
Á mánudagskvöld kl. 9 ætlar
hún að syngja í fríkirkjunni með
aðstoð Páls Isólfssonar, og verð-
ur söngskráin hin glæsilegasta.
— Má af útlendum lögum nefna
„Ave Maria“ eftir Schubert, sem
Hanna Granfelt syngur yndislega
vel. Þá syngur hún einnig þrjú
finsk kunn sálmalög og svo lög-
in: „Vor guð er borg á bjargi
traust“, „Faðir andanna" og „Ó,
guð vors lands“.
Einnig syngur hún „Vöggu-
vísu“ eftlr Davíð Stefánsson, með
nýju lagi eftir Pál ísólfsson.
Verður hér óefað um frábæra
söngnautn að ræða. R.
Islandssuudlú.
Sígurvegarinn verður sund-
kóngur íslands.
Nú á Islandssundið að fara
frarn á morgun kl. 4 síðdegis,
eftir að hafa legið niðri um
nokkurt skeið.
Sund þetta hefir átt miklum
vinsældum að fagna meðal bæj-
arbúa, enda hafa fræknustu sund-
kappar landsins alt af þreytt það.
Til mikils er líka að vinna, því
að fyrir utan Islandsbikarinn og
venjuleg verðlaun hlýtur sá, er
sigrar, nafnbótina „sundltóngur
lslands“. Erlingur Pálsson yfir-
lögregluþjónn hefir þessa nafn-
bót nú og hefir haft hanalengstaf
síðan sund þettahófst. Hlauthann
landsfrægð, er hann vann sund-
ið fyrsta sinni og hefir síðan ver-
ið sunddýrðlingur þjóðarinnar.
Nú um langt skeið hefir Erlingur
haft erfitt og umfangsmikið starf
með höndum, og því ekki haft
tækifæri til pð sinna sundinu.
Auk þess er hann nú af léttasta
skeiði og eðlilega farinn að tapa
sundhraða. Þó hefir heyrst, að
hann sé nú meðal keppendanna
og má það heita drengilega gert,
því að ekki fer það dult, að
margir fræknir og vel æfðir sund-
rnenn eru nú vaxnir upp, er full-
an hug nrunu liafa á því, að ná
kóngstigninni. En Erlingur hefir
sanna víkingslund og vill heldur
falia á vígvelii en deyja á sóttar-
sæng.
Sundvinur.