Alþýðublaðið - 10.08.1926, Blaðsíða 1
AlÞýðnblaðÍð
Gefid út af /Upýd
1928.
Þriðjudaginn 10. ágúst.
183. tölublað.
lanna Granfelt.
Frikirkjan var troðfull áheyrenda
í gærkvöldi, og er pað vel farið,
að sem flestir geti átt kost á að
njóta slíkra yndisstuhda eins og
þar var. Svo var að heyra sem á-
heyrendurnir stæðu gjörsamlega á
öndinni meðan lögin voru sungin
og leikin. Söngskráin vmr líka á-
gætlega valin og hvert lagið var
öðru blíðara og fegurra af vörum
ungfrúarinnar, og pað svo, að —
merkiiegt /má lieita um jafn feikn
voiduga ópérurödd sem Hanna
Granfelt hefir. Bliðsöngur frk.
Granfelt og frábært undirspil Páls
ísóifssonar fyiti fríkirkjunagöfugum
unaði, sem flestir myndu óska sér
að heyra aftur.
Fiest lögin voru fólki hér kunn
og sum söng ungfrúin með ís-
lenzkum texta. Nýtt, fallegt lag er
„Vöggu-vísa“ eftir Pál ísólfsson.
Hygg ég, að pað gæti notið sín
Ibetur með meiri æfingu, og svo
®r um fleiri af pessum lögum.
Kirkjusöngur Hönnu Granfelt
var yndislegur. En iang-glæsi-
Jegust, tilkomumest og áhrifarik-
ust er hún samt í voldugum
óperu-aríum, par sem hún getur
jöfnum höndum iátið skapþrung-
inn brimgný og fossanið sinnar
glæsilegu háraddar hijóma ó-
þvingað og hlífðarlaust inn í höf-
uð áheyrendanna. R. J.
Edend simskeyti.
Khöfn, FB., 8. ágúst.
Mótmæltar uppreisnarfréttir.
Frá Bukarest er símað, að víð-
tæk uppreisn geisi í Ukraine.
Svartahafsflotinn hefir hertekið
tyær borgir á Krímskaganum.
Ráðstjórnin hefir fyrirskipað her-
væðing.
Khöfn, FB., 9. ágúst.
Frá Moskva er símað, að ráð-
stjórnin hafi lýst pví yfir, að
uppreistin sé hreinasti uppspuni.
Frá Varsjá er símað, að blöðin
þar flytji nýjar fregnir af upp-
reistinni gegn ráðstjórninni. Sagt
er, að herinn sé harðóánægður
með útnefning Unschlichts her-
foringja. Margar herdeildir hafi
óhlýönast honum. Morðtilraun
gegn Stalin hafi misheppnast.
Reynt að myrða Pangalos.
Frá Aþenuborg er símað, að
gerð hafi verið tilraun til þess
að myrða Pangalos. Var skotið
á hann, en einræðisherrann sak-
aði ekki. Morðinginn er talinn
geggjaður.
Litlar birgðir.
Nokkru eftir að stríðinu lauk
bar svo við í þorpi einu hér á
landi, að margir komust í sykur-
þrot, og var sykur lítt eða ekki
fáanlegt í verzlunum þar um
skeið. Skipið „Sterling“ var þá
í förum og var von á því þangað.
Bjuggust margir við, að þá myndi
rætast úr sykureklunni, en lítt var
einn verzlunarstjórinn þar á þvi
máli, því að hann kvaðst að eins
eiga von á hundrað pundum af
sykri. Snemma morguns einhvern
næstu daganna voru nokkrir
menn á fjallgöngu þar í sveit-
inni. Rann þá „Sterling“ inn að
höfninni og blés. Þá vár þetta
kveðið:
Döggu er slungin hin græna
grund,
en gægist tungliö um heiðasund.
Líðum við upp á fjallsins fund.
Þá frýsar „Sterling“ með hundrað
pund
af sykri.
Hafnarfjarðarhlaupið
á sunnudagiun var rúmlega 13 ktn.
langt.
Rasmus Rasmussen
leikhússtjóri
syngur norsk þjóðlög og
skemtivísur í Nýja Bíó
fimtudaginn 12. ágúst kl:
7 V2. Páll ísólfsson aðstoðar.
Aðgöngumiðar á 3 kr. í
Bókav. ísafoldar, Bókav.
Sigf. Eym., hjá Katrínu
Viðar og í Hljóðfærahúsinu.
Barnaskóli
Ásgr. Magnússonar
Bergstaðastræti 3.
Skólinn byrjar 1. október.
í skólann verða tekin börn
á aldrinum 6—10 ára.
tsleifur Jéusson.
Innlend tíðincfi.
Akureyri, FB., 9. ágúst.
Sildaraflinn nyrðra.
Saltað í Akureyrarumdæmi vik-
una 1.—8. ágúst 5123 tunnur af
síld, en kryddað í 1065 tunnur.
Alls mun nú saltað og kryddað á
öllum veiðistöðvum norðanlands
tæp 40 þúsund tunnur, en á sama
tíma í fyrra rúm 100.000.
Isl.
Skakkarlsvísa.
Drjúgt er einatt drengjum hjá,
sem draga á skútum.
Aðdrættirnir eru í klútum,
með einum og tveimur rernbi-
hnútum.
(Vísan er rétt þannig, en var
áður prentuð dálítið úr lági
færð.)