Alþýðublaðið - 12.08.1926, Side 1
Alpýðublaðið
Gefið út af Alpýðofloklamnt
1926.
Fimtudaginn 12. ágúst.
186. tölublað.
Eriemd símskeyti.
Khöfn, FB., 11. ágúst.
Koladeilan enska.
Sátíatillögur biskupanna feldar
Frá Lundúnum er símað, að
námumenn hafi felt sáttatillögur
biskupanna.
Stjórnarskrárbreyting sampykt
vegna skuldagreiðslna.
Frá París er símað, að báðar
pingdeildirnar hafi setið á sam-
eiginlegum fundi í Versölum og
samþykt nreð yfirgnæfandi meiri
hluta, að stjórnarfarslögunum
skuli breytt vegna stofnunar
sjóðs til afborgana á ríkisskuld-
unum.
Khöfn, FB., 12. ágúst.
Samhjálp verkalýðsins.
Frá Lundúnum er símað, að^
Samband amerískra verkamanna
hafi hafiö samskot til styrktar
enskum námumönnum.
Jafnaðarmenn andvigir stjórn-
arskrárbreytingunni frönsku.
Frá París er simað, að lögin
nýju um sjóðstofnun til afborg-
ana á ríkisskuldunum hafi verið
gerð hluti af stjórnarskránni til
tryggingar sjálfstæði sjóðsins.
Jafnaðarmenn (socialistar og
konununistar) gerðu miklar ó-
spektir á fundinum.
Snowden og „Moggiu.
„Mgbl.“getur í gærumræðu, er
Snowden, jafnaðarmannaleiðtog-
inn brezki, hafi haldið ekki' alls
fyrir löngu, þar sem hann hafi
getið þess, að gagnslaust væri
fyrir verkamenn að heimta meira
kaup, ef atvinnuvegur sá, er þeir
ynnu við, gæti ekki staðist kaup-
kröfuna.
Fyrst og fremst væri gaman að
vita, hvar og hveníer Snowden
hefir haldið þessa ræðu, sem að
anda og efni sé eins og „Mgbl.“
vitnar til, og hverjar eru heim-
ildir „Mgbl.“ Allir, sem eitthvað
þekkja til blaðamensku þeirra
„Mogga“-ritara, vita sem er, að
þeim er stundum örðugt að þýða
rétt erlend tungumál, sbr. hinar
landfrægu „krukkur“, og eins hitt,
að þeim hættir mjög við að hafa í
frammi ósvífnar blekkingar, er
þeir hafa ummæli eftir erlendum
eða innlendum jafnaðarmönnum,
sbr. viðtalið við Stauning o. m. fl.
I öðru lagi mer'kja ummæli
Snowdens, ef rétt eru eftir höfö,
ekki annað en það, að sumum
íyrirtækjum einstakra manna er
svo illa stjórnað, að þau gefa
ekki þann arð, er nauðsýniegur er
til sæmilegra verkalaunagreiðslu.
Svo er t. d. um margar brezku
kolanámurnar, að rekstur þeirra
er langt á eftir tímanum og í
megnri vanhirðu. En þá segja
brezku jafnaðarmennirnir, þar á
meðal leiðtogi þeirra, Snowden,
að ráðið sé, að þjóðnýta atvinnu-
fyrirtækin, og reka' þau bæði með
vísindalegri hagsýni og með þörf
almennings fyrir augum. Vilji
„Mgbl.“ fylgja þessum ráðlegging-
um hinna merku foringja jafnað-
arstefnunnar í Bretlandi, þá má
koma í veg fyrir launaþræturnar.
Annars vil ég ráðleggja þess-
um „Mogga“-ritara að lesa vel
„Tuttugu mótbárur gegn jafnað-
arstefnunni" eftir Snowden, sem
birtist í íslenzkri þýðingu í
„Skutli“. Bæði má reiða sig á, að
sú þýöing er rétt, og enn hitt,
að „Mgbl.“ finnur þar engan
stuðning við kenningar íslenzkra
íhaldsmanna, heldur getur það
séð þar hin veikbygðu rök þeirra
gegn jafnaðarstefnunni rifin til
grunna.
11. ágústmán.
___________ —n.
Skipafréttir.
„Tjaldur" fór utan i gær, en
„Lyra“ fer i kvöld kl. 6 til Noregs.
EIMSKIPAFJELAG
MM ÍSLANDS MS
„Esjau
fer héðan austur og norður um
land á þriðjudag 17. ágúst síðdegis.
Vörur afhendist á föstudag eða
laugardag.
Farseðlar sækist á föstudag.
„Lagarfoss^
fer héðan á mánudag 16. ágúst á
hádegi til Hull, Hamborgar og
Leith.
Kemur við í Hafnarfirði og fer
þaðan kl. 6.
Fjórði samsöngur
Hðnnu Granfelt.
Hann var í fríkirkjunni, og var
hún troðfull, svo full, að menn
stóðu bæði á gólfi niðri og með
veggjum fram uppi. Fyrir bragð-
ið var svo heitt í kirkjunni, að
stöku maður fékk aðsvif, en svo
var loftið þungt, að söngurinn
naut sín ekki fyrir þá hluti eins
og skyldi. Það verður að víta það
harðlega, að seldir eru fleiri að-
göngumiðar en sæti eru i kirkj-
Unni; það má ekki koma fyrir oft-
ar. Annars var söngurinn ágætur.
Enginn, sem hefir heyrt ungfrú
Granfelt syngja hin æstustu skap-
brigðislög skyldi hafa trúað því,
að hún gæti sungið svona mjúkt.
Undirspil Páls var glæsilegt.
Það er þægileg tilhugsun fyrir
Islendinga, að þeir eigi jafnágæt-
an listamann- og Pál, ekki mann
í tólfblaðabroti, heldur í stóru
arkarbrotu „Vögguvísa“, nýja lag-
ið, hans, var yndislegt, tilgerðar-
laust og barnslegt, en með öllum
einkennum sannrar listar. —
Meira! br.