Alþýðublaðið - 18.08.1926, Page 2

Alþýðublaðið - 18.08.1926, Page 2
2 • 1 ^ j ALÞÝBUBLABIB j < kemur út á hverjum virkum degi. í ÍAfgreiðsla í Alpýðuhúsinu við { Hverfisgötu 8 opin irá kl 9 árd. j 3 íil kl. 7 síðd. í | Skrifstofa á sama stað opin kl. j j 9 Va — lO’/a árd. og kl. 8 — 9 síðd. í j Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 > j (skrifstofan). í 1 Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á í j mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 í j hver mm. eindálka. [ j Prentsmiðja: Alpýðuprentsiniðjan ( j (í sama húsi, sömu símar). ► Fyrsta tilraunin. Fyjjsta tilraunin, sem málgagn auðvaldsins, „Mgbl.“, gerir til þess að vita, hvort ekki sé unt að sundra alþýðu borgarinnar við kosningarnar hér í haust, birtist í því í gær. Er þar fylgt þeirri reglu, sem frá því í fornöld hefir verið hel/ta bragð fáiiðaðrar yfirr ráðastéttar tii þess að halda í völd- in gegnvilja fjölmennrar, undirok- aðrar stéttar. Reglan er: „Tvístr- aðu, og drotuiaöu!“ En „Mgbl." er ekki heldur en fyrri daginn sérlega hittið, ef það heldur í alvöru, 'að það geti sundrað al- þýðu um fræðilegar hugleiðingar um þingræðið. I’að er líka áreið- anlega tvíeggjað vopn fyrir það, því að það hefir í seinni tíð blaða mest unnið að því að gera lítið úr þingræði. Þarf ekki að minnast annars en greina Guðmundar Hannessonar, sem sýndu greini- lega, að það er heklur en ekki óþægileg rauf í íylgi yfirráða- stéttaiinnar við þingræðisregiuna. Flokkaskiftingin stendur þannig engan veginn um þingræðiö. Alþýða gín því ekki við þessari flugu. Hvort sem svo reynist eða ekki, að þingræðið dugi henni til þess að skifta um skipulag til íuilnusíu i þjóðfélaginu, þegar þar að kemur, afnema auðvalds- skipulagið og setja í staðinn skipuiag jafnaðarmanna, — það liggur því miður ekki fyrir við kosningarnar í haust —, þá mun öll aiþýða á eitt sátt um það aö neyta þingræðisins til hins ítrasta til að vinna bug á þvj, sem nú háir henni mesf, óstjói'n og áþján íhaidsins, dýrtíð, atvinnuleysi,. misrétti um mannréttindi, tolla- kúgun og okurvaxtaféflettingu, og ' ALÞÝÐUBLAÐIÐ til þess að vinna á í þvi efni ríð- ur alþýðu á að standa saman unt fram alt. Þetta er það, sem fyrir liggur, og það er af þvi, að „Mgbl.“ veit, að þar er hætta fyrir stétt þess, að gerir lilraun tii þess að þreifa fyrir sér um, hvort ekki sé unt að koma alþýðufólkinu í hár saman urn eitthvað, sem ná skiftir ekki máli. Eitt er þó gott við þessa tilraun „Mgbl.“. „Fátt er svo ilt, að einu- gi dugi.“ Alþýða veit af endur- tekinni reynslu, að þegar „Mgbl.“ þykist legggja eitthvað til mál- anna af- umhyggju fyrir aiþýðu, þá hugsar það sér áreiðanlega að vinna henni tjón. Þarf ekki annað en minna á þá „umhyggju“, sem „Mgbl.“ hefir þózt bera fyrir al- þýðu í kaupdeiiumálum, þegar það hefir lagt sig mest í iíma.tii að spilla fyrir því, að verkafólk- ið fengi nauðsynlega erfiðisvinnu þoianlega borgaða. Hugrakkur íslendingur. Hindraði einsamall bankarán. Föstudaginn 16. júlí var reynt að freinja bankarán í Winnipeg, Islendingur einn hætti Jífi sínu til að hindra það. Segir „Heims- kringla“ svo frá þvi: „Kl. 11 fyrir hádegi komu þrír vopnaðir ræningjar inh í útibú Royal bankans. Óð einn þeirra að gjaldkeranum og skipaði honum að rétta upp hendurnar og snúa sér ,að veggnum, meðan þeir fé- lagar léíu greipar sópa. Hinir tveir gerðu útibússtjóra og bók- haldara sömu kosti. Hlýddu þeir allir umsvifalaust. En ræningjarnir höfðu ekki reiknað með íslendingi, Jóni Mat- heson húsamálara, sem staddur var í bankanum tiJ þess að taka út peninga. Jafnskjótt og ræn— ingjárnir Jitu af honum eitt augnablik, réðst hann á þann, sem stóð fyrir framan gjaldkera- borðið. Ræninginn skaut strax og lil ryskinganna kom, og kom kúl- an í smáþarmana á Jóni. Samt varð ræningjanum laus skamm- byssan,' og kom svo mikið fát á hann bg félaga hans við þessa óvæntu mótstöðu, að þeir flýðu jafnskjótt án þess að hafa náð nokkru af peningunum. En aðrir viðstaddir yoru hvorki eins snar- ráðir né. fífldjarfir eins og Jón, og komust ræningjarnir því í Jbíl- inn‘, er þéir höfðu komið í, og óku í brott á fljúgandi ferð, og höfðu allir mist sjónar á þeim, er lögreglan kom á vættvang fá- um mínútum síðar. ,Bílinn‘ fann Jögreglan síðar um daginn, en ræningjarnir auðvitað allir á bak og burt, og hefir ekkert spurst til þeirra síðan. Jón mæddi þegar blóðrás, og var hann fluttur á almenna Sjúkrahúsið. Lá hann þar með- vitundarlaus í meira en sólar- hring og var talinn af. Þó hrest- ist hann, fékk rænu og er nú talinn úr hættu að miklu eða öilu leyti. Jón Matheson er sonur Matthí- asar kapteins Þórðarsonar frá Selkirk, og hefir sjálfur verið lengi í siglingum um öli höf. Það er efalaust, að tiltæki hans var fífldjárft. En karlmannlega var það afráðiö engu að síður, og ekki hsfir sá maður úrgangs- negg í brjósti, er svo fer að. Maður sagði, er hann heyrði, að Jón væri islendingur: — ,Það lá að; svo óskelfdir eru ekki aðrir en vitfirringar og íslendingar‘.“ Innlend tfðindi. FB„ 14. ágúst. Innflutningurinn. Fjármálaráðuneytið tilkynnir: innfluttar vörur í júlímánuði hafa numið alls kr. 4.112.725.00, þar af til Reykjavíkur kr. 1.656,- 896.00. Akureyri, FB., 14. ágúst. Tíðarfar. Stöðugir óþurkar. Víða fram til dala er taða enn þá óhirt og stórskemd orðin. Sérstaklega eru brögð að þessu á instu bæjum í Öxnadal og Svarfaðardal. Adam Poulsen kominn. Leikíélagið æfir nú kappsam- iega „Ambrosius* undir stjórn A’dam Poulsen, sem hingað kom með „lslandi“ síðast. Verður að öllu forfailalausu leildð um miðja næslu viku. Adam hefir ákveðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.