Alþýðublaðið - 21.08.1926, Síða 1

Alþýðublaðið - 21.08.1926, Síða 1
Alpýðublaðið Getið út at AlpýOoflokknani 1926. Laugardaginn 21. ágúst. 193. tölublað. Grlend simskeyfi. Khöfn, FB., 20, ágúst. Koladeilan enska. Fundur námumanna og námu- eigenda árangurslaus. Frá Lundúnum er símað,’ að fundur námumanna og námueig- enda í gær hafi orðið árangurs- laus. Námumenn kröfðust þess, að vinnukjör yrðu í aðalatriðum óbreytt. Járnbrautarslys af glæpsamleg- uin völdum. Frá Berlín er símað, að hrað- lestin á milli Beriínar og Kölnar hafi hlauprð af teinunum. Tuttufeu biðu bana. Teinarnir voru eyði- lagðir af manna völdurn. Glæpa- mennirnir eru ófundnir. Viðtækar umbætur i Rússlandi. Frá Moskva er símað, að stjórn- in hafi víðtækar umbætur í huga til pess að spara sem mest allan stjórnarkostnað. Stjórnin mun og ætla að gera tilraunir til pess að útvega fé til pess að styrkja iðn- aðinn í landinu. Fisksalan í Gullbringusýslu. Um pessar mundir eru og hafa verið allflestir sjómannanna suð- ur með sjó, p. e. í. Gullbringu- sýslu sunnan Hafnarfjarðar, að „leggja inn“ fisk sinn, sem þeir hafa verkað og purkað. Mestan hluta fiskjarins fá Flygenring- bræður í Hafnarfirði, Ágústssyn- ir, en Geo. Copland hefir og feng- Ið talsverðan fisk í Keflavík. Fisk pann, eY Flygenring-bræður fá, er nú óðum verið að flytja til Hafnarfjarðar á bifreiðum, og Copland mun éihnig vera búinn að láta flytja sinn hluta til sín. P>að, sem athugavert er við pessa fiskverzlun, frekar en við venjuleg verzlunarviðskifti, er Jarðarför okkar hjartkæru móður, Ingibjargar Magnúsdóttur, fer fram frá heimili hennar Laugavegi Pi þriðjudaginn 24. p. m. og hefst með húskveðju kl. 1 e. h. Ólöf Benediktsdóttir. Magnea Kristjánsdóttir. Hanna Granfelt Konsert i Dómkirkjunni mánudaginn 23. ágúst kl. 9. — Hr. dómkirkjuorganisti Sigfús Einarsson aðstoðar. Aðgöngumiðar (á 2 kr.) seldir í Hljóðfærahúsinu, Bókaverzlun Isafoldar, Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, hjá K. Viðar í Lækjar- götu og við alpíngishúsdyrnar eftir kl. 7 á mánudagskvöldið. það tvent, að fiskurinn er ekki seldur fyrir ákveðið verð, — svo er a. m. k. um mikinn hluta þess, er þeir Flygenring-bræður kaupa og að hann er greiddur eftir á, en eigi við móttöku. Raunar kváðu 85 kr. vera sagðar fáan- legar fyrir skippundið af úrvali fullþurkaðs saltfiskjar (nr. 1 og 2), en 55 kr. fyrir „labra“. Hitt er þó reglan að pessu sinni, að verðið skuii ákveðið eftir á, þeg- ar kaupmennirnir hafa selt fisk- Inn út úr landinu. Þó að bent sé á hættu þá fyrir sjómennina, er liggur í pessari sölu, er með því alls engu óheið- arlegu verið að drótta að Flygen- ring-bræðrum. Hitt er jafnsatt engu að síður, að mikið eiga fiskimennirnir undir einu félagi, að lána pví aliar afurðir atvinnu sinnar, og dæmi eru til, að mönn- um hefir orðið hált á slíku. Hvar væru þeir staddir, ef slíkt félag yrði gjaldþrota? Og mjög er átt undir drengskap örfárra manna um ákvörðun fiskverðsins eftir á. Og þó að eilt fiskkaupafélag kunni að reyn'ast vel, þá getur annað, sem ekki er treystandi, synt í kjölfar þess og gert sjó- mönnunum æfamikið tjón. Það er því að vonum, að fleiri og fleiri hugsandi menn þar syðra, sem sjá, að fiskverzlun þeirra er komjn í mesta öngþveiti, hafa sannfærst og eru að sann- færast um, að ejna örugga ráðið til að kippa þessu verzlunarólagi í lag er að koma á ríkiseinkasölu ú saltfiski. Innlend tfðindi. Seyðisfirði, FB., 20. ágúst. Vélbátur sekkur. Vélbáturinn „Bliki“, eign Hall- dórs Jónssonar, sökk á þriðju- daginn á Héraðsflóa á leið til Bakkafjarðar með vörur. Leki hafði komið að bátntim. Menn- irnir höfðu ekki við að dæla og björguðust á róðrarbáti til Una- óss nauðulega. Var brim mikið og sjógangur. Seyðisfirði, FB., 21. ágúst. Síldveiði er ágæt á Eskifirði og Reyðar- firði, en annars staðar reitingur vegna skorts á veiðitækjum. Flest- ir Austfirðir eru sagðir fullir af sild. 1 . Tíðarfar. Rigningasamt undan farið í fjörðum, en góðviðri á Héraöi.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.