Alþýðublaðið - 23.08.1926, Side 1

Alþýðublaðið - 23.08.1926, Side 1
Gefid út af Alþýduflokknnot 1926. Mánudaginn 23. ágúst. 194. tölublað. Hér með tilkynnist, að sonur minn Ásmundur Guðnason andaðist á Vifilsstððum að morgni pess 22. þ. m. — Likið verður flutt til Eyrarbakka og jarð- arförin ákveðin síðar. .Pt. Reykjavik, 22. ágúst 1926. Sigriður Vilhjálmsdóttir. Erlend sfimskeyti. Khöfn, FB., 21. ágúst. Frakkar mótfallnir afhendingu á Eupen og Malmedy. Frá París er símað, að Frakkar séu mótfallnir pví, að Pjóðverj'ar fái Eupen og Malmedy aftur, og telji hvers konar breytingu á landamærum Pýzkalands og Be!- gíu brot á friðarsapiningunum í Versölum og gagnstæða ioforð- um, gefnum í Locarno. Rivera tilkynnir innlimun Tangiers. Frá Madrid er símað, að blöðin fullyrði, að Rivera hafi tilkynt Englendingum og Frökkum, að Spánverjar óski að innlima Tan- gier í Marokkó-svæði Spánverja. Khöfn, FB., 22. ágúst. Verðlagsráðstafanir í Frakk- landi. Frá París er símað, að stjörnin hafi gert strangar ráðstafanir til þess að hindra verðhækkun á nauðsynjavörum, og hefir hún skipað svo fyrir, að allir, bæði ríkið og einstaklingar, verði að gæta hinnar mestu sparsemi. Á matsöluhúsum má að eins selja tvo rétti rriatar í einu. Þá á að takmarka brauðeyðsluna rnikiö til þess að minka hveitiinnflutning- ana. Afhending Eupens og Malmedys strönduð. Frá Berlín er símað, að Þjóð- verjar hafi boðið Belgíu 120 milljónir marka fyrir Eupen og Malmedy, en málið virðist komið í strand vegna mótspyrnu Poin- carés. Rasmus Rasmussen leikhússtjóri hélt skemtun hér á föstudags- kvöldið var. Var hún hin ágæt- asta í alla staði. Las hann upp valda kafla úr „Kongsefnunum“ og „Víkingunum á Hálogalandi" eftir Ibsen. Úr „Kongsefnunum" las hann upp og lék viðtal þeirra Skúla hertoga og vofu Nikulásar baglabiskups, þegar Skúli heríogi er á leið til Heigiseturs, og hann þuldi upp drápu Örnólfs úr „Vík- ingunum". Var gerður að hinn bezti rómur, sem vonlegt var, því að upplesturinn og svipbrigðin voru frábær. Síðan lék hann tvo þætti úr „Jeppa á Fjalli“ eftir Holberg, með aðstoð þeirra Ind- riða Waage og Bryrijölfs Jóhann- essonar. Er það sagl, að leikur- um vorum ólöstuðum, að sjaldan heíir sést hér betri leikur, enda ætlaði alt um koll að keyra af fagnaðarlátum og hlátrasköllum áhorfenda. Svo að fleirum gefist kostur á að sjá Jeppa, endurtekur Rasmussen skemtunina á þriðju- dag, en les þá ekkert upp, heldur syngur i stað þess keskni-þjóð- vísur. br. Gin- og klaufa-veikin. Landbúnaðarráðherra jafnaðar- mannastjórnarinnar stofnar til rannsóknar á orsök hennar. (Tilkynning frá sendiherra Dana.) 1 umboði allrar stjórnarinnar hefir landbúnaðarráðherrann fengið samþykki formanna flokk- anna í ríkisþinginu danska fyrir fjárveitingu til leitar að orsök gin- og klaufa-veikinnar. Rann- Rasmns Rasmnssen heldur kvöldskemtun í Iðnó þriðju- dagskvöld 24. þ. m. kl. 8 Vs'. Vegna fjölda áskoraná. f sfðasta sinn. Til skemtunar: 1. Norskar þjóðvísur. 2. „Jeppi á Fjalli", 1. og 2. þáttur, Aðgöngumiðar á 2 krónur í Bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar. sóknin á að fara fram á eynni Lindhólma, sem verður einangr- uð, og stjórnar dýralæknirinn prófessor C. O. Jensen rannsókn- inni. Byggingarkostnaður rann- sóknarhúsa og tilraunalnisa fyrir skepnur er áætlaður 200000 kr„ en rekstrarkostnaður 70000 lcr. Veikar skepnur verða geymdar í einangiunarhúsum og hleypt sam- an við heilbrigðar sképnur undir eftirliti, og rannsakað verður, hvort fuglar beri veikina. Enn fremur verður m. a. rannsakað fóður, rrijólk og mykja. Verður einskis látið ófreistað til að finna orsök sjúkdómsins. Ensk yrelfafrú gefur ættar- óðal sitt untlir verkainanna- háskóla. Lady Warwick, ensk greifafrú, sem hefir verið um 30 ár í jafnað- armannaflokknum, hefur gefið öðals-höll sína, „Easton Lodge', undir verkamanna-háskóla. Skyldi Mgbl. vilja flytja þá fregn?

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.