Alþýðublaðið - 24.08.1926, Side 1

Alþýðublaðið - 24.08.1926, Side 1
1926. Þriðjudaginn 24. ágúst. 195. tölublað. Fulltrúaráðsfnndur Verður á miðvikudaginn 25. p. m. kl. 8 Va' siðd. í Iðnó uppi. Fundarefni: Nefndartillögur. Fulltráar mætí stundvfslena. Erlend simskeyti. Khöfn, FB., 23. ágúst. Gagnbylting í Grikklandi. Frá Apenuhorg er símað, að stjórnarbylting hafi verið gerð par undir forystu Kondylis hers- höfðingja með tilstyrk hersins. Pangalos hefir verið handtekinn, og stjórnarbyggingarnar eru í höndum byllingarmanna. Engar blóðsúthellingar hafa farið fram, svo að kunnugt sé. Konduriotis aðmíráll sezt í sæti ríkisforset- ans, en Kondyris verður stjórnar- forseti. Kondyris hefir lofað ping- bundnu stjórnarfari. Rivera leitar „hrossakaupa“. Frá Madrid er símað, að Rivera vilji sleppa tilkalli til Tangers fyrir tilslakanir viðvíkjandi séet- um í ráði Þjóðabandalagsins. Englendingar eru mótfallnir pví, að ráössætunum og Tangermál- inu sé blandað saman. Maaaita Oraiafelt söng í gærkveldj í dómkirkjunni, og flest tökst par vel að vanda. Rödrl Hönnu Granfelt hljómar yndislega vel, hvort^sem er á háum eða lágum, sterkum eða veikum tónurn. Þar er ekkert lát á og enda engin tilviljun, af pví að ungfrúin kann með röddina að fara. Æskilegt væri, að Hanna Granfelt gæti komist nær íslenzka framburðinum en orðið er. Það skemmir áhrif hennar yndislegu raddar að heyra áberandi mis- bresti á framburðinum. Samæf- ing söngkonunnar og orgelleik- arans var mun betri en á fyrri kirkjuhljómleiknum, og mátti pö betri vera. Hanna Granfelt er pegar orðin vinsæi hér á landi, og verður pað betur, ef hún kæmi hingað oftar. Hún hefir alt pað til að bera, sem íslending- um líkar í söng. Iiún á bæði hásumarsblíðu og brimstyrk í rödd sinni. R. J. E s p erantoþlngið. Eftir Ól. Þ. Kmtjánsson. 1. Inngangur. Þegar pað var fastráðið orðið, að ég sækti hið 18. alheimsping esperantista, er haldið skyldi í Edinborg á Skotlandi dagana 31. júlí til 1. ágúst, pá samdist mér svo við ritstjóra Alpýðublaðsins, að ég segði nokkuð frá för minni pangað. Fyrir allra hluta sakir pykir mér skylt aö efna petta. En par sem tími minn er nokkuð takmarkaður nú sem stendur, pá hefi ég kosið að skifta sögunni í smærri undirkafla sérstæða, og segi ég pá fyrst frá pinginu sjálfu í aðaldráttunum, en síðar frá ýmsu srnærra, sem og frá pví markverðasta, er fyrir augun bar í Skotlandi. En pó mega lesend- urnir ekki láta sér koma pað á óvart, að ýmsir atburðir frá ping- inu vefjist innan um frásögnina alt til enda, og ber peim að líta á allar greinarnar sem eina heild. (Frh.) Stauning í Færeyjum. Þegar Stauning fór héðan áleiðis til Danmerkur, stóð skipið, sem hánn var á, 2 tima við í Færeyjum. Á meðan hélt Stauning að tilhlut- un jafnaðarmannafélagsins ping- málafund, og var ræðu hans tekið með dynjandi lófataki. N. 0. Raasted (organisti við Frúarkirkjiu í Kaupmannahö€n> heldur hljómleika í fríkirkjunni miðvikudaginn 25. p. m. kl. 9. Hermann Diener aðstoðar Aðgöngumiðar á 2 krónur fást í bókaverzlun ísafoldar, Sigf. Ey- mundssonar, Hljóðfærahúsinu, sími 656, og hljöðfæraverzlun Katrínar Viðar. N. O. Raasted, organisti viö Frúarkirkju í K.höfn, var meðal farþega á Botniu hingað og nreð honum H. Diener, fiðluleikari frá Heidelberg. Þeir halda hljömleika ú miðvikudaginn kl. 9, eins og aug- lýst er á öðrum stað í blaðinu. Raasted er álitinn fremsti organisti Dana. Alþbl. vill ráða öllu söng- elsku fólki að sækja þessa hljómleika. Veðrið. Hiti 9—4 stig. Átt víðast austlæg, hvöss surns staðar. Djúp loftvægis- lægð yfir Norðausturlandi, iireýfist til norðausturs.vÚtlit: Hvass á norð- austan og rigning á Norðvestur- og Norður-landi. Norðlæg og norðvest- læg átt og þurt veður að mestu á Suðvestur- og Suðaustur-landi, breyti- leg vindstaða og rigning á Austur- landi. í nótt norðlæg átt, hvöss á Norður- og Norðvestur-landi, allhvöss á norðan á Suðvesturlandi, rigning á Norðurlandi, þurt sunnanlands. Rasmus Rasmussen leikhússtjóri skemtir í kvöld ltl. Sþo í Iðnó. Skipafréttir. „Lyra“ kom í gærkveldi. Togar- inn „Belgaum'* kom af fiskveiðum í ís með 1000 kassa í morgun og fer til Englands. „Botnía" fer í dag kl. G vestur og norður.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.