Alþýðublaðið - 31.08.1926, Side 3

Alþýðublaðið - 31.08.1926, Side 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 hrifnmgin fór að streyma út, að allir sungu bezt: Alt af bezt á hezt ofan. Pegar um lof er að ræða, fer oft svo, að einhver einn fær drýgst á diskinn sinn. Og pað var Hanna Granfelt, sem nú hefir orðið lang-fengsælust með lof og lófaklapp. Nú kom það fyrir- brigði, að lófatökin urðu að dynj- andi brimgný, þegar pau snertu vota jþokuna í loftinu. Ungfrúnni fataðist þá svo í íslenzkunni, að framburðurinn í lofsöngnum: „Ó, guð vors lands“, varð ramskakk- ur. Þegar hann kom þannig í eyru áheyrenda, fóru þeir að aka sér og yppa öxlum. Við samtal og bollaleggingar komust þeir aÖ svo feldri niðurstöðu: Sá sannleiki verður að tilkynn- ast, að Islendingar geta sjálfir látið sönglög sín hljóma án í- hlutunar erlendra söngvara. Og „gullhálsar" þeirra verða senni- lega daufir hljómgjafar, þegar Þorri garnli gengur í garðinn næst. Og ef einhver á óvin, verð- ur bezta keyrið á hann að syngja yfir honurn: „Ó, guð vors lands“, með hreinum hljóm íslenzkrar tungu. — Allar vögguvísur mega bíða. J. J. Innlend fíðmdi. Akureyri, FB., 30. ágúst. Heyskaðar. í óveðrinu og vatnavöxtum siðast liðinn þriðjudag urðu hey- skaðar víða, og flæðiengi eyðilögð- ust. í hólmunum innan Akureyrar ílutú út um 400 hestar af heyi, en i Svarfaðardal sópaði Svarfaðar- dalsá burtu um 700 hestum. í Húnavatnssýslu urðu einnig tals- verðir skaðar. Sildvelðin. í Akureyrarumdæmi hefir orðið síðustu viku: 2402 tunnur af salt- síld og 108 af kryddsíld, alls yfir vertíðina 16000 tn. af saltsíkl og 2200 af kryddsíld. Veðrátta. Hrakviðri í gær. I dag snjóaði í fjöll. Næturvörður . er þessa viku í lyfjabiið Lauga- vegar. Sacco og Vánzetti. 1921 voru tveir ítalskir verka- menn, SacCo og Vanzetti, teknir höndum í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum, sakaðir um morð á bankagjaldkera. Þeir voru dæmdir til dauða, enda þótt eng- ar sannanir væru fyrir hendi gegn þeim, en i dómnum var sagt, áð encla pótt peir hefðu ekki gert pað sjálfir, myndu peir sem stjórnleysingjar reiðubúnir til að fremjci slíkan glœp. Vegna ein- dreginna mótmæla hvaðanæfa úr hinum siðaða heimi, hafa þeir þó ekki verið líflátnir enn þá. Fyrir 2 árum hafðist sarnt upp á morð- ingjanum, Itala, Macleros 'að nafni, sem hefir játað á sig glæp- inn, en samt hefir fylkisstjórinn í Mass. ekki viljaö sleppa föng- unum, og yfirvöldin neita samt að taka málið til nýrrar með- ferðar. Mótmæli gegn þessu réttar- hneyksli drífa nú til fylkisstjórans frá öllum frjálslyndum mönnum hvarvetna i heimi. Fulltrúaráð verklýðsfélaganna í Einar skálaglam :Húsið við Norðurá. En Johnson skelti sér upp í ,cab‘ og bað hann aka til Old Crompton Road. Hefði þetta nokkurn tima verið flókið mál, þá var það nú hálfu verra en áður. John- son vissi eiginlega varla, hvað hann vildi ekkjunni í Old Crompton Road. Hann fór þangað nánast, svo að einskis væri ófreistað. Auðvitað gat hún ekki sagt honum annað en að Maxwell hefði fallið í ófriðnum mikla. Eina ljósglætan var sú, að það var ekki þessi maður, sem drepinn hafði verið í hús- inu við Norðurá. En hver var hann? Var það þriðji Maxwell, kann ske skyldur þess- um? Ef til vill gat ekkjan leyst úr því. Old Crompton Road liggur í Soho, sem er lakasti borgarhlutinn í Lundúnum, og Old Crompton Road er lakasta gatan í þeim horgarhluta. Þar býr fólk, sem þjóðfélagið í skammsýni sinni hefir snúið við bakinu. Þetta fólk vinnur ekki né spinnur, af því að þjóðfélagið vill ekki nýta verk þess, en þegar það getur, safnar það í hlöður því, sem það með slægð og afli getur náð af ,i,góðu“ borgurunum, sem búa í skrautlegu götunum. Það eru þjófar og skækjur, sem þar búa; að vísu er það mest gamalt upp- gjafafólk. En fátæktin þar sannar, hvað hið marglofaða einstaklingsframtak er lélegur grundvöllur undir farsæld manna, því að fáar atvinnur eru jafn-einstrengdar við ein- staklingsframtakið og þjófnaður og óskírlífi. En „af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá“. Þarna veltu gamalmenni og börn sér hálf- nakið og aldrukkið hvað innan um annað og beið þéss, að hungurdauðinn læddist yfir þau. Johnson hafQi sitthvað séð í New York, en honum blöskraði, þegar hann sá þetta, og lá við að verða ilt af lyktinni. Húsið nr. 117 virtist vera eitthvað skárra en hinir kumbaldarnir. Johnson steig úr vagninum og spurði hálf- nakinn og sóðalegan krakka, hvort Mrs. Max- well byggi þar. Krakkinn játaði því og rétti fram höndina. Johnson lét pening í lófann, og barnið fylgdi Húsið við Norðurú, leynilögreglusagan íslenzka, eftir Einar skálaglam kemur út í haust Gerist áskrifendur á afgr. AIpýðubL

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.