Alþýðublaðið - 01.09.1926, Síða 3

Alþýðublaðið - 01.09.1926, Síða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ 3 menn, þrí.r kosnir af flokksstjórn jafnaðarmanna, einn kosinn af sambandsstjórn verklýðsfélaganna og einn af erfingjum Brantings fyrst um sinn. Arðinum af sjóðn- um á að verja til að styrkja ungt fólk, karia og konur, er áhuga hafa fyrir framgangi al- pýðuhreyfingarinnar, til að afla sér nauðsynlegrar mentunar í þeim efnum, til styrktar félags- málarannsóknum, sérstaklega á- hrærandi verkalýðshreyfinguna og jafnaðarstefnuna og til útgáfu rita um árangur slikra rannsókna. Mikill fjöldi sænskra alþýðufé- laga styrkir sjóðinn með tillög- um. Sjóðurinn var 31. júlí s. I. orðinn kr. 100536,96 sænskar. EJm dacfÍBm og veglnn. Næturlæknir er í nótt Ölafur Gunnarsson, Laugavegi 16, sími. 272. Grátt af snjó gerði í fyrra dag lengst niður í fjallahlíðar — nærri niður að engj- um — vestur i Önundarfirði. Úr síldarvinnunni nyrðra er fólkið nú þegar farið að koma heim aftur hingað. Hefir lítið orðið í aðra hönd hjá mörg- um, sem hana hafa stundað, svo að allmargir koma tómhentir heim eða með sáralítinn afgang, Hins vegar lítur út fyrir gott verð á síldinni. ísfisksaia. Togarinn „Belgaum“ seldi afla sinn í Englandi í gær fyrir 1327 sterlingspund. Síðan fór hann til Belgíu til að fá kol. Gengi erlendra mynta i dag: Sterlingspund..........kr. 22,15 100 kr. danskar .... — 121,24 100 kr. sænskar .... — 122,27 100 kr. norskar .... — 100,14 Dollar.................— 4,571 4 100 frankar franskir. . . — 13,64 100 gyllini hollenzk . . — 183,31 100 guilmörk þýzk. . . — 108,87 56 ár eru í dag síðan Napóleon 3. gafst upp fyuir Prússum við Sedan. Yfirritari Hjálpræðishersins i Danmörku, A. J. Benwell, er á ferð hér á landi og nú staddur á Austfjörðum. Hans er von hingað með íslandi. Dánarfrétt. Ingimundur Sveinsson fiðluleikari andaðist hér í bæhum í fyrri nótt. Áheií tii Strandarkirkju, afhent Alþýðublaðinu: Frá S. A. kr. 10,00. Veðrið. Hiti 10—7 stig. Átt víðast austlæg. Snarpur vindur í Vestmannaeyjum. Annars víðast hægviðri. Regn syðra. Annars staðar þurt. Loftvægislægð fj'rir suðvestan land. Otlit: Hægviðri Ferðatðsknr allar stærðir, mjög ódýrar verzl. ,,AIfa“ Bankastræti 14. Simi 1715. Simi 1715. og þurt á Norðausturlandi. Annars staðar regn. AUhvast á Suðvestur- landi. Framhaidandi regn í nótt, all- hvöss austanátt á Suðvestur- og Suðaustur-landi. Vigsla sjúkrahúss kaþólska trúboðsins í Hafnarfirði fer frant á sunnudaginn kemur kl. 4 síðd. Jón Þorláksson ætlar bráðlega að flytja í ráð- herrahúsið, en Sigurður Eggerz verður að víkja þaðan. „Dýraverndarinn". Grétar Fells er orðinn ritstjóri hans í stað Jóns heitins Þórarins- sonar fræðslumálastjöra. M. a. flyt- ur síðasta tbl. æfintýri eftir Sigur- jón Jónsson skáld. Heitir það „Fjallaálfurinn". Ósæmileg aðdráttun. „Mgbl.“ dróttar því að Veðurstof- unni, að þar fari veðurspár eftir því, sem á veðurfræðingunum liggur í það og það skiftið. Einar ská'aglam: HúsiP. við Norðurá. honum úpp á fimta- loft og benti á dyr. Johnson barði og gekk inn. Þar stóð kona við borð og var að sterkja lín. Hann þekti hana aftur; pað var konan á myndinni, og til frekari fullvissu stóð sama myndin í umgerð á arinhyllunni. „Þér eruð Mrs. Maxwell," sagði Johnson. Konan játaði pví, en Johnson sagði til sín og erindi sitt. Þegar hann fór að tala um lát mannsins hennar, fór hún að gráta og sagði svo hálf- kjökrandi frá, hvernig það hefði að höndum borið. ,^Herdeildin, sem Maxwell var í, lá hjá Dinant. Höfuðsmaðurinn hét Owen,“ sagði konan. Goodmann Joþnson hrökli í harða kút, þegar hann heyrði nafnið Owen. Það glaðn- aði yfir honum. Nú var kann ske að rofa til. rtOwen?“ hváði hann. «Já? Owen,“ sagði hún. „Maðurínn minn sálugi var skósveinn hans. Svo var það 9. nóvember 1917, að herdéildinni var skipað til atlögu á þýzka skotgröf. Meðan á at- lögunni stóð, kom þýzk sprengikúla, og Ow- en og maðurinn minn urðu fyrir henni og féllu báðir." Gleðin, sem hafði brugðið fyrir á andliti Johnsons, þegar hann heyrði Owen nefndan, stóð þar ekki lengi við. Þegar hann heyrði, að Owen væri fallinn, var henni lokið. Þetta hlaut að vera einhver alt annar Owen en sá, sem hafði skrifað plöggin, sem hann hafði fundið uppi í Borgarfirði, og Maxwell þessi var auðvitað alt annar en sá, sem drukkn- pði í Borgarfirði. Hann hlaut að vera/’hlaup- inn í gönur. Alt var því að kenna, að til- viljunin hafði fundið upp á því að láta nöfn mannanna flækjast svona skrítilega saman. Og honum lá við að kasta öllu frá sér. En því hafði þá myndin af þessum Max- wéll, sem var morðinu í húsinu vrð Norðurá Húsið við Norðurá kemur út sérprentað í haust. Gerist áskrifend- ur strax á afgreiðslu blaðsins.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.