Alþýðublaðið - 01.09.1926, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
menn, þrí.r kosnir af flokksstjórn
jafnaðarmanna, einn kosinn af
sambandsstjórn verklýðsfélaganna
og einn af erfingjum Brantings
fyrst um sinn. Arðinum af sjóðn-
um á að verja til að styrkja
ungt fólk, karia og konur, er
áhuga hafa fyrir framgangi al-
pýðuhreyfingarinnar, til að afla
sér nauðsynlegrar mentunar í
þeim efnum, til styrktar félags-
málarannsóknum, sérstaklega á-
hrærandi verkalýðshreyfinguna og
jafnaðarstefnuna og til útgáfu
rita um árangur slikra rannsókna.
Mikill fjöldi sænskra alþýðufé-
laga styrkir sjóðinn með tillög-
um. Sjóðurinn var 31. júlí s. I.
orðinn kr. 100536,96 sænskar.
EJm dacfÍBm og veglnn.
Næturlæknir
er í nótt Ölafur Gunnarsson,
Laugavegi 16, sími. 272.
Grátt af snjó
gerði í fyrra dag lengst niður í
fjallahlíðar — nærri niður að engj-
um — vestur i Önundarfirði.
Úr síldarvinnunni
nyrðra er fólkið nú þegar farið
að koma heim aftur hingað. Hefir
lítið orðið í aðra hönd hjá mörg-
um, sem hana hafa stundað, svo að
allmargir koma tómhentir heim eða
með sáralítinn afgang, Hins vegar
lítur út fyrir gott verð á síldinni.
ísfisksaia.
Togarinn „Belgaum“ seldi afla
sinn í Englandi í gær fyrir 1327
sterlingspund. Síðan fór hann til
Belgíu til að fá kol.
Gengi erlendra mynta i dag:
Sterlingspund..........kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 121,24
100 kr. sænskar .... — 122,27
100 kr. norskar .... — 100,14
Dollar.................— 4,571 4
100 frankar franskir. . . — 13,64
100 gyllini hollenzk . . — 183,31
100 guilmörk þýzk. . . — 108,87
56 ár
eru í dag síðan Napóleon 3. gafst
upp fyuir Prússum við Sedan.
Yfirritari Hjálpræðishersins
i Danmörku, A. J. Benwell, er á
ferð hér á landi og nú staddur á
Austfjörðum. Hans er von hingað
með íslandi.
Dánarfrétt.
Ingimundur Sveinsson fiðluleikari
andaðist hér í bæhum í fyrri nótt.
Áheií tii Strandarkirkju,
afhent Alþýðublaðinu: Frá S. A.
kr. 10,00.
Veðrið.
Hiti 10—7 stig. Átt víðast austlæg.
Snarpur vindur í Vestmannaeyjum.
Annars víðast hægviðri. Regn syðra.
Annars staðar þurt. Loftvægislægð
fj'rir suðvestan land. Otlit: Hægviðri
Ferðatðsknr
allar stærðir, mjög ódýrar
verzl. ,,AIfa“
Bankastræti 14.
Simi 1715. Simi 1715.
og þurt á Norðausturlandi. Annars
staðar regn. AUhvast á Suðvestur-
landi. Framhaidandi regn í nótt, all-
hvöss austanátt á Suðvestur- og
Suðaustur-landi.
Vigsla sjúkrahúss
kaþólska trúboðsins í Hafnarfirði
fer frant á sunnudaginn kemur kl.
4 síðd.
Jón Þorláksson
ætlar bráðlega að flytja í ráð-
herrahúsið, en Sigurður Eggerz
verður að víkja þaðan.
„Dýraverndarinn".
Grétar Fells er orðinn ritstjóri
hans í stað Jóns heitins Þórarins-
sonar fræðslumálastjöra. M. a. flyt-
ur síðasta tbl. æfintýri eftir Sigur-
jón Jónsson skáld. Heitir það
„Fjallaálfurinn".
Ósæmileg aðdráttun.
„Mgbl.“ dróttar því að Veðurstof-
unni, að þar fari veðurspár eftir
því, sem á veðurfræðingunum liggur
í það og það skiftið.
Einar ská'aglam: HúsiP. við Norðurá.
honum úpp á fimta- loft og benti á dyr.
Johnson barði og gekk inn.
Þar stóð kona við borð og var að sterkja
lín. Hann þekti hana aftur; pað var konan
á myndinni, og til frekari fullvissu stóð sama
myndin í umgerð á arinhyllunni.
„Þér eruð Mrs. Maxwell," sagði Johnson.
Konan játaði pví, en Johnson sagði til sín
og erindi sitt.
Þegar hann fór að tala um lát mannsins
hennar, fór hún að gráta og sagði svo hálf-
kjökrandi frá, hvernig það hefði að höndum
borið.
,^Herdeildin, sem Maxwell var í, lá hjá
Dinant. Höfuðsmaðurinn hét Owen,“ sagði
konan.
Goodmann Joþnson hrökli í harða kút,
þegar hann heyrði nafnið Owen. Það glaðn-
aði yfir honum. Nú var kann ske að rofa til.
rtOwen?“ hváði hann.
«Já? Owen,“ sagði hún. „Maðurínn minn
sálugi var skósveinn hans. Svo var það 9.
nóvember 1917, að herdéildinni var skipað
til atlögu á þýzka skotgröf. Meðan á at-
lögunni stóð, kom þýzk sprengikúla, og Ow-
en og maðurinn minn urðu fyrir henni og
féllu báðir."
Gleðin, sem hafði brugðið fyrir á andliti
Johnsons, þegar hann heyrði Owen nefndan,
stóð þar ekki lengi við. Þegar hann heyrði,
að Owen væri fallinn, var henni lokið. Þetta
hlaut að vera einhver alt annar Owen en sá,
sem hafði skrifað plöggin, sem hann hafði
fundið uppi í Borgarfirði, og Maxwell þessi
var auðvitað alt annar en sá, sem drukkn-
pði í Borgarfirði. Hann hlaut að vera/’hlaup-
inn í gönur. Alt var því að kenna, að til-
viljunin hafði fundið upp á því að láta
nöfn mannanna flækjast svona skrítilega
saman. Og honum lá við að kasta öllu frá
sér.
En því hafði þá myndin af þessum Max-
wéll, sem var morðinu í húsinu vrð Norðurá
Húsið við Norðurá
kemur út sérprentað í haust. Gerist áskrifend-
ur strax á afgreiðslu blaðsins.