Alþýðublaðið - 06.09.1926, Side 1
AlÞýðublaðSð
Sefið úf af Mpýðuflokksium
1926.
Mánudaginn 6. september.
206. tölublað.
Erlend símskeyti.
Khöfn, FB., 4. sept.
Frá Þjóðabandalaginu.
Þátttaka Spánverja og Þjóð-
verja.
Frá Genf er símað, að fulítrúi
Spánar hafi verið kallaður heirn.
Þykir sennilegt; að Spánverjar
taki ekki þátt í starfsemi Þjóða-
bandalagsins framvegis, a. m. k.
ekki fyrst um sitín, þótt þeir verði
í þvi áfram, en pað er enn vafa-
samt. Líklegt þykir, að formleg
úrsögn komi ekki frá þeim. Pól-
verjar láta sér nægja þingkjörið
sæti í ráðinu. Nefnd sú, er kjör-
in var til þess að koma fratn með
tillögur viðvíkjandi ráðssætamál-
inu, mælir einum rómi með því,
að Þjóðverjar fái fast sæti í ráð-
inu. Er nú talið áreiðanlegt, að
Þýzkaland verði meðlimur Þjóða-
bandalagsins.
Khöfn, FB., 5. sept.
Frá Genf er síniáð, að ráð
Þjóðabandalagsins hafi samþykt í
einu hljóði, að Þýzkaland fái inn-
göngu í bandalagið samkvæmt til-
lögum ráðssætanefndarinnar. —
Ótal tilraunir eru gerðar til þess
að koma í veg fyrir, að Spánn
segi sig úr bandalaginu. Menn
eru algerlega óvissir um, hver
áform Rivera eru í því máli.
Spánakonungur styður and-
stæðinga Rivera.
Frá París er símað, að Alfons
Spánarkonungur styðji andstæð-
inga Rivera í því að krefj-
ast þess, að um miðbik þessa
mánaóar verði þjóðaratkvæði lát-
ið skera úr, hvort framhald skuli
veröa á einræðisstjórn Rivera.
Sáttatilraun í koladeilumálinu.
Frá Lundúnum er sjmað, að
Churchill hafi gert sáttatilraun í
kolamálinu. Gerði hann tilraunina
að beiðni Cooks.
Hllómlelkar. *
Hermann Diener.
Því oftar sem ég hlýði á þenna
ágæta listamann, fæ ég á honum
meiri niætur, — og víst mun svo
vera um marga áheyrendur hans
aðra. i hvert sinn koma fram
nýir og nýir kostir, og alt af virð-
íst enn af gnægð að taka. Og
lélegar myndu verða heimtur og
illa launað erfiði þess, sem farav
vildi . í smámunaleit að veilum
eða göllum á meðferð viðfangs-
efna eða verklegri kunnáttu Die-
ners. — Það var óblandin nautn
að heyra til hans í fríkirkjunni.
Þó naut hann sín enn betur í
kvikmyndahúsinu. Tónninn fagri
varð enn fegurri og bjartari og
fjóminn yfir leikni haijs enn að-
dáanlegri.
Beethovens-„konsertinn“, sem
var aðalviðfangsefnið og er eitt
hinna tilkomumestu stórverka
meistarans rnikla, lék Diener syo
snildarlega, að ég get varla hugs-
að mér þá tónsmíð betur túlkaða.
Það var auðfundið, hve' djúpa
lotningu Diener ber sjálfur fyrir
hinni sígildu list, og hve eigin-
legt honum er að bera hann svo
fram; að til hins ítrasta njóti sín
göfgi hennar og hinn hátignar-
legi stíll. — Fjögur lög önnur
smærri voru á efnisskránni, en
svo voru mikil fagnaðarlæti á-
heyrendanna, að Diener varð að
leika tvö aukalög, og enn hefðu
menn víst viljað heyra miklu
meira. Síðasta lagið, sem hann
lék, var Preludium eftir Reger,
— ofurlíti11 glitrandi gimsteinn,
sem snöggvast var brugðið upp,
en marga mun fýsa að fá að —
sjá aftur.
Frú Valborg Einarsson fórst
undirspilið prýðilega úr hendi, —
mun þó hafa liaft mjög takmark-
aðan tínta til undirbúnings, en
samleikurinn var víða frábærlega
góður.
Útsala
50,000 nálar
seldar á 75 aura askjan
(200 stykki).
300 plðtur
fiðlu, orkester, harmoniku og
nokkuð af íslenzkum plötum
áhr.3,25»o 3,75 hver
Nokkrir
grammófónar
seldir íyrir nálega
hálfvlrðl.
Komið, meðan úrvalið er.
Hijóðfærataúsið.
Diener fer héðan með .„Lýru" á
fimtudaginn. Hann lætur vel af
dvölinni hér og hafa þó viðtök-
urnar verið í daufara lagi, —
treg aðsókn að hljómleikunum,
■svo að förin hefir sízt verið til
ífjár, og leiðinleg veðrátta, nema
núna síðustu dagana. En héðan
fylgja honum hugheilar árnaðar-
óskir aðdáenda hans um frægð og
frama. Og margir myndu víst
fagna því að fá að heyra til hans
enn einu sinni, áður en hann fer.
Rvík, 5. sept. 1926. ’
T. Á.