Alþýðublaðið - 14.09.1926, Síða 2

Alþýðublaðið - 14.09.1926, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ jALÞÝÐUBLAÐIÐ | < kemur út ú hverjum virkum degi. | IAfgreiðsla í Alpýðuhúsinu við > Hverfisgötu 8 opin frá kl, 9 árd. ► . til kl. 7 síðd. \ } Skrifstofa á sama stað opin kl. ; 1 QVa-lOVa árd. og kl. 8-9 síðd. { * Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 ; (skrifstofan). ; Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á ; mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 * } hver mm. eindálka. < Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan I } (í sama húsi, sömu simar). ; < » Skrúður. Enginn, sem ferðast um Vest- firði, og unun hefir af fögrum gróðri, ætti að láta hjá líða að skoða skrúðgarðinn Skrúð, ef hann getur meÖ nokkru móti komið pví við. Skrúður er trjá- og blóm-garður við Núp, þar sem Núpsskólinn ter, unglingaskóli Vestfirðinga, og er hvorttveggja verk séra Sigtryggs Guðlaugsson- ar, prestsins á Núpi, sem nú er kominn á efri ár, bæði skólinn og skrúðgarðurinn. Skrúður ber nafn ineð rentu og er lifandi vottur pess, hve rnanns- höndin getur prýtt og ummyndað umhverfið, þegar rækt er við það lögð. í trjágarðinum er gosbrunn- ur, sem eykur á prýðina og gróð- urinn fær vökvun frá. Er svo frá gengið, að vatnsbunurnar eru með ýmsu móti til tilbreytingar. Ný- lega hefir verið reist vermihús í garðinum fyrir inniblóm, og hafa þau dafnað þar fljótt og vel í sumar. Séra Sigtryggur á skilið að fá þjóðarviðurkenningu fyrir starf sitt. Skólinn hans og skrúðgarð- urinn hafa mörgum orðið tiJ gagns og gleði. Það ætti alþingi að kunna að meta og veita ríf- legan sty'rk til skólans og einnig til eflingar skrúðgarðinum fagra. Fishl Færejringa við Grænland. 10 færeysk skip eru nú komin heim frá Grænlandi, öll drekk- hlaðin feitum reginþorski. Öll veiddu skip þessi í salt, og flest þeirra höfðu, eftir að lestin var orðin full, saltað mildð á þil- farið. Flyðru og úrgangsfiski öll- um urðu þau að fleygja í sjóinn. Gleði mikil er á Færeyjum yfir þessum nýju miðum við Græn- land, er Færéyingar segja miklu uppgripameiri en nokkurn tíma vetrarmiðin við Suður-ísland. Ástand útgerðarinnar á Færeyj- um var orðið ærið „svart“, áður en Færeyingar tóku upp á Græn- landsveiðumað dæmi Norðmanna, er vorvertíðinni við tsland var lokið, en nú virðast veiðarnar við Grænland vera að koma fótum undir þá aftur. Það eykur á beiskju Færey- inga til Dana, að Danir skuli halda höfnum Vestur-Grænlands lokuðum fyrir þeim. Rúmlega 20 færeysk skip ætl- uðu að stunda veiðar við Græn- Iand i sumar, en sum urðu að setjast aftur vegna féleysis. X. llllómlelkar. Heriiiann Dieni'. Hermann Diener fór heimleiðis með „Lyru“ á fimtudaginn. Á miðvikudagskvöldið hélt hann kveðjuhljómleika í dómkirkjunni, og voru þeir mun betur sóttir heldur en hinir fyrri hljómleikar, og hlýddu áheyrendur með milulli andagt og athygli á hinn ágæta listamann. Viðfangsefnin voru öll flóknar fiðlusmíðar, margraddað- ar án undirieiks, — eftir Reger, Raasted (danska organleikarann, sem hér var um daginn), Tartini og Bach. Eru slík verk sem þessi erfiðust viðfangs allra fiðlutón- smíða, og ráða ekki við þau aðrir en afburðasnillingar. En eins og áður hefir verið sagt, þá virðast engir „tekniskir" erfiðjeikar vera til fyrir Diener; — maður verður þess aldrei var, að hann taki sér neitt nærri að komast yfir torfær- urnar; allur leikur hans er svo sléttur og feldur — og meistara- legur á alla lund. Það var hátíðleg „stemning“ í kirkjunni. Menn lögðu við hlust- irnar og stóðu á öndinni, og svip- ur margra áheyrenda var svo, sem væru þeir í öðrum heimi. — Sigfús Einarsson dómkirkju-org- anisti lék þrjú „forspil" á orgelið — til tilbreytingar —, smekklega og prýðilega, sem honum er eig- inlegt. Diener lét mjög ótvírætt í ljósi gleði yfir því að hafa haft tæki- færi til þess að kynnast reyk- víkskum hljómlistaráheyröndum og leika fyrir þá. Ðáðist hann að þVí, hve óspiltur smekkur manna væri hér, og með hve mikilli at- hygli áheyrendur hlýddu á tón- smíðar hinna gömlu meistara. — Er ekki ósennilegt, að hann komi hingað aftur, og eflaust myndi honurn þá verða vel fagnað. — En i sumar hefir verið svo mikið um hljómleika hér og fólk eytt miklu fé til þess að hlýða á hina erlendu gesti, — en Diener var svo óheppinn að verða síðastur, — að ekki er nema eðlilegt, þó að menn séu farnir að horfa í aurana, — því að víða mun nú vera af iitlu að taka. — En leitt er að hafa ekkert í handraðanum, þegar okkar eigin listamenn fara að kveða sér hljóðs. — T. Á. Utsi daffÍDD o«f vegÍKtn. Næturlæknir er í nótt Konráð R. Konráðsson, Þingholtsstræti 21, sími 575. Veðrið. Hiti 8—3 stig (par sem til hefir frézí). Átt austlæg á Suðurlandi, annars staðar ýmisleg, hæg. Loft- vægislægð fj'rir suðvestan land. Út- lit: Dálítið regn á Suðvesturlandi og Vestfjörðum. Hægviðri og purt á Norður- og Austur-landi. Suð- austanátt á Suðvesturlandi og hvess- ir 1 í nótt. Jón Hj. Sigurðsson héraðslæknir er nýlega farinn utan til Nor- egs. Friðrik Björnsson læknir gegn- ir læknisstörfum fyrir hann, á með- an hann er í förinni. *' Svo mikil aðsókn var í gær að skyndisölu Haralds Árnasonar, að loka varð .við og við. í síldveiðaför fór togarinn „Skallagrímur“ í nótt norður á Húnaflóa. Þar hef- ir veriö fult af síld nú síðustu daga, og eru sagðar paðan fréttir af uppgripaafla. Síldarverðið er hátt sökum pess, hve lítið hefir veiðst í sumar fram undir petta. Þetta er fyrsta síldveiðaför „Skalla- gríms“ á pessu sumri. Til fermingarbarna. Þau börn í frikirkjusöfnuðinum, sém fermast eiga í haust, eru beð- in að koma í fríkirkjuna kl. 5 á morgun (miðvikudag) til viðtals við séra Árna Sigurðsson. Einnig eru börnin í dómkirkjusöfnuðinum, sem fermast eiga í haust, beðia

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.