Alþýðublaðið - 18.09.1926, Síða 1

Alþýðublaðið - 18.09.1926, Síða 1
©refið ilf af AlpýHssflökkBHMSíi 1926. Laugardaginn 18. september. 217. tölublað. Ujá Haraldi Alt seit ssiieð lágga veFðiiaas. Blá Cheviot í fermingarföt kr. 7,25 mtr. Regnfrakkar og Fatnaður með tækifærisverði. Handklæðadreglar 0,55 mtr. Tvistar 0,60 mtr. Léreft bleijuð 0,70 mtr. Gluggatjaldaefni 0,75 mtr. Morgunkjólátau margar teg. 1,00 mtr. Uilarkjólatau 2,90 mtr. Fatatau 3,00 mtr. Káputau 3,50 mtr. Kjólar og Prjónadragtir selt ódýrt. Prjónagarn fyrir^lítið. ATH. Sængurdúkar^ [selt^með ábyrgð. ^“og^ Fiðurhelt Léreft Efiesid isiniskeyti. Khöfn, FB., 17. sept. Samtök milli Rúmena pgf ítala. Frá Rómaborg er símað, að Rú- menía og Italía hafa gert vináttu- samning sín á milli. Blöðin i Rómaborg telja þetta vott þess, að ítölsk áhrif á Balkanskagamim séu að aukast. Frakkar senda hér að landa- mærum Ítalíu. Frá Rómaborg er símað, að vegna æsinganna í ftalíu í garð Frakka, hafi franska stjórnin skip- að svo fyrir, að sex herdeildir verði þegar sendar til ítölsku landamæranna. Khöfn, FB„ 18. sept. Kosið í ráð Þjóðabandalagsins. Frá Genf er símað, að é þingi Þjóðabandalagsins hafi farið fram kosning meðiima í ráð bandalags- ins, og urðu þessi ríki fyrir val- inu: Pólland, Tékkóslóvakia, Rú- menía, Belgia, Holland, Kína, Col- umbia, Chile og Salvador. Sví- þjóð, sem áður átti sæti í ráðinu, baðst undan endurkosningu í þíað. íslenzkur sjómaður á eriendu skipi meiðist íil tiansB. Danskur félagi hans drukknar. 1 danska blaðinu „Pölitiken" frá 12. f .m. er sagt frá því, að skipið „Ellen“, eign Maríusar Nielsens, yar á Berð í Norðursjónum seint í júlímánuði. Veður var hvast. Einn hásetanna, sem var íslenzkur, og þar er nefndur Gúdmundsen, var sendur um nótt til að vekja skips- menn þá, er taka skyldu varð- stöðu, en þegar hann var korninn miðskipa, féll hann og meiddist svo mjög, að hann andaðist skömmu síðar. Var hann jarðaður í Brenneyjarbæ (Burntisland) á Skotlandi, norðan við Forthfjörð- inn. Einnig segir blaðið frá því, að nokkrum döguni áður, 17. júlí, var þetta sama skip við Stettin á Þýzkalandi. Þá stakk einn skipsmanna sér fyrir borð og ætl- aði að baða sig. Hann var kynd- ari, Johan Madsen að nafni, danskur maður, 43 ára gamáll. Félagar hans höfðu aðvarað hann og ráðið honum frá að kasta sér í sjóinn, en það kom fyrir ekki. Hann steinsökk þegar og skaut ekki upp aftur, en líkið fanst daginn eftir. Alþbl. hefir spurst fyrir í stjórnarráðinu um íslenzka háset- ann og fengið þar uþplýsingar, sem koma heirn við frétt þessa. Fékk 'stjórnarráðið lilkynningu 16. f. m. um lát íslenzks sjómanns, sem var í förum erlendis. Hafði 'ræðismaður Dana í Leith gefið skýrsluna. Sjómaðurinn hét Guö- leifur Jón Guðmundsson og var frá Isafirði, fæddur þar 29. des- ember 1891. Hann audaðist 26. júlí.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.