Alþýðublaðið - 28.02.1920, Síða 1
Gelið út aí Alþýðuflokknum
1920
Laugardaginn 28. febrúar
46. tölubl.
jispih a|tur á þiif.
Khöfn 26. febr.
Asquith hefir verið kosinn til
bings við aukakosningu í Pensiey,
einni útborg Glasgowborgar, með
stórum meirihluta.
Austurriki og boisivikar.
Khöfn 26. febr.
Símað er frá Berlín að austur-
tiskir socialdemokratar (jafnaðar-
aðarmenn) styðji það, að samband
sé sem fyrst tekið upp aftur við
Sovjet-Rússland (bolsivíka).
Erzfoei?0©F dp@gup sig
í hié.
Khöfn 25. febr.
Prá Berlín er sírnað, að með
skjölum, sem stolið hafi verið [til
i>eirrar nótkunar], megi sanna, að
Erzberger fjármálaráðherra hafl
svikið um skatt, en að hann hafl
sjálfur beðið um réttarrannsókn í
•háliuu, og hafl dregið sig í hlé
sem fjármálaráðherra, meðan á
heirri rannsókn stendur. Blöðin
segja, að hann muni þar með al-
Veg farinn frá völdum.
Khöfn, 26. febr.
Blaðið Lokal Anzeiger segir að
^rzberger muni naumast hafa
farið frá af fúsum vilja. Fráförin
vekur mikla eftirtekt.
Plótts ^orðurherstjórnarinnar.
Khöfn, 26. febr.
^rá Kristíaníu er símað, að
^jórn norðurrússneská hersins sé
0lhin til Hammerfest (nyrst í
°l'egi) ásamt 1600 manna.
Ifnáffi Msaleigulagaasa.
Jakob Möller flytur í þinginu,
með aðstoð Bjarna Jónssonar frá
Vogi, Sveins Björnssonar og Gunn-
ars frá Selalæk, þingsályktunar-
tillögu þess efnis, að Alþingi álykti
að skora á landsstjórnina að nema
úr gildi, frá 1. okt 1920 að telja,
2. og 3. gr. húsaleigulaganna (laga
nr. 24., 12. sept. 1917) og við-
bætir þann við lögin, er felst í
lögum nr. 45, 28. nóv. 1919.
Þetta á stjórnin að gera „að
fengnum tillögum bæjarstjórnar-
innar í Reykjavík“, en ekki sést
á tillögunni, hvort flutningsmenn
ætlast til þess að stjórnin fari
eftir áliti bæjarstjórnarinnar, ef
hún verður á móti því að afnema
lögin.
2. og 3. grein húsaleigulaganna
hljóða svo sem hér segir:
2. gr.
Eigi má segja leigutaka íbúðar
upp húsnæði hans, nema eiganda
sé þess brýn þörf til eigin íbúðar
og hann hafl vorið orðinn eigandi
hússins 14. maí 1917. Þó heldur
leigusali óskertum rétti sinum til
að slíta leigumálanum vegna van-
skila á húsaleigu, eða annara sam-
göngurofa af hálfu leigutaka. Verði
ágreiningur milli leigusala og leigu-
taka um þetta, sker húsaleigu-
nefnd úr. Málinu má skjóta til
dómstólanna, en úrskurði nefndar-
innar skal hlíta, unz fallinn er
dómur.
Uppsagnir á húsnæði, sem hafa
farið fram, skulu ógildar, nema
húseigandi sanni fyrir húsaleigu-
neínd, að hann hafi, áður en lög
þessi voru sett, samið um leigu
á húsnæði við einhvern húsnæðis-
lausan, eða hann þurfl á húsnæð-
inu að halda til íbúðar fyrir sjálf-
an sig.
3. gr.
íbúðarherbergi má ekki taka ti)
annarar notkunar en íbúðar, og
íbúðarhús má ekki rífá, nema heil-
brigðisnefnd banni að nota þau til
íbúðar. Bæjarstjórnin getur þó
veitt sérstakt leyfi til þessa, og
sett það skilyrði, að húseigandi
sjái um jafnmikla aukningu á hús-
næði til ibúðar annarsstaðar í
bænum.
íbúð telst í lögum þessum hvert
það húsnæði, sem notað er til
íbúðar, eitt herbergi eða fleiri.
Það, sem eftir verður af húsa-
leigulögunum, verður þá þetta:
Húsaleiguneínd verður eftir sem
áður, og það verður hægt að láta
hana setja hámark á húsaleigu,
en það verður vitanlega algerlega
gagnslaust, þegar húseigandi getur
sagt leigjanda upp, þegar honum
sýnist. Að nema úr gildi 2. og 3.
grein húsaleigulaganna, er því í
raun og veru sama sem að af-
nema lögin, enda hafa flutnings-
menn réttilega kallað tillögu sína
tillögu „um afnám laga um húsa-
leigu í Reykjavík".
í gær var þingsályktunartillagan
til umræðu í neðri deild, og töl-
uðu með henni: Jakob Möller, Sv.
Björnsson og Bjarni frá Vogi, en
enginn á móti, og var hún síðan
samþykt og send til efri deildar,
sem nú á eftir að sýna, hvort hún
verður jaín fljótfær í þessu máli
og neðri deild.
Sem dæmi upp á flaustur og
flumósahátt þingmanna, skal hér
sagt þetta dæmi: Jakob Möller
las upp álit1) húsnæðisnefndar bæj-
arstjórnarinnar um málið. Fer það
alt 1 þá átt fremur að gera strang-
ari en vægari þær reglur, sem nú
gilda, en samt endaði Jakob upp-
lesturinn með þeim ummælum, að
það færi í sömu átt og þingsál.-
tillagan(!), og ertginn þingmaður
mötmœlti þui. Einstaka þingmaður
skildi þó hvað hér fór franp,, svo
sem sjá mátti af þeim fáú at-
1) Alþbl. mun síðar skýra nán-
ar frá innihaldi þess.