Alþýðublaðið - 28.02.1920, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 28.02.1920, Qupperneq 1
Gelið út aí Alþýðuflokknum 1920 Laugardaginn 28. febrúar 46. tölubl. jispih a|tur á þiif. Khöfn 26. febr. Asquith hefir verið kosinn til bings við aukakosningu í Pensiey, einni útborg Glasgowborgar, með stórum meirihluta. Austurriki og boisivikar. Khöfn 26. febr. Símað er frá Berlín að austur- tiskir socialdemokratar (jafnaðar- aðarmenn) styðji það, að samband sé sem fyrst tekið upp aftur við Sovjet-Rússland (bolsivíka). Erzfoei?0©F dp@gup sig í hié. Khöfn 25. febr. Prá Berlín er sírnað, að með skjölum, sem stolið hafi verið [til i>eirrar nótkunar], megi sanna, að Erzberger fjármálaráðherra hafl svikið um skatt, en að hann hafl sjálfur beðið um réttarrannsókn í •háliuu, og hafl dregið sig í hlé sem fjármálaráðherra, meðan á heirri rannsókn stendur. Blöðin segja, að hann muni þar með al- Veg farinn frá völdum. Khöfn, 26. febr. Blaðið Lokal Anzeiger segir að ^rzberger muni naumast hafa farið frá af fúsum vilja. Fráförin vekur mikla eftirtekt. Plótts ^orðurherstjórnarinnar. Khöfn, 26. febr. ^rá Kristíaníu er símað, að ^jórn norðurrússneská hersins sé 0lhin til Hammerfest (nyrst í °l'egi) ásamt 1600 manna. Ifnáffi Msaleigulagaasa. Jakob Möller flytur í þinginu, með aðstoð Bjarna Jónssonar frá Vogi, Sveins Björnssonar og Gunn- ars frá Selalæk, þingsályktunar- tillögu þess efnis, að Alþingi álykti að skora á landsstjórnina að nema úr gildi, frá 1. okt 1920 að telja, 2. og 3. gr. húsaleigulaganna (laga nr. 24., 12. sept. 1917) og við- bætir þann við lögin, er felst í lögum nr. 45, 28. nóv. 1919. Þetta á stjórnin að gera „að fengnum tillögum bæjarstjórnar- innar í Reykjavík“, en ekki sést á tillögunni, hvort flutningsmenn ætlast til þess að stjórnin fari eftir áliti bæjarstjórnarinnar, ef hún verður á móti því að afnema lögin. 2. og 3. grein húsaleigulaganna hljóða svo sem hér segir: 2. gr. Eigi má segja leigutaka íbúðar upp húsnæði hans, nema eiganda sé þess brýn þörf til eigin íbúðar og hann hafl vorið orðinn eigandi hússins 14. maí 1917. Þó heldur leigusali óskertum rétti sinum til að slíta leigumálanum vegna van- skila á húsaleigu, eða annara sam- göngurofa af hálfu leigutaka. Verði ágreiningur milli leigusala og leigu- taka um þetta, sker húsaleigu- nefnd úr. Málinu má skjóta til dómstólanna, en úrskurði nefndar- innar skal hlíta, unz fallinn er dómur. Uppsagnir á húsnæði, sem hafa farið fram, skulu ógildar, nema húseigandi sanni fyrir húsaleigu- neínd, að hann hafi, áður en lög þessi voru sett, samið um leigu á húsnæði við einhvern húsnæðis- lausan, eða hann þurfl á húsnæð- inu að halda til íbúðar fyrir sjálf- an sig. 3. gr. íbúðarherbergi má ekki taka ti) annarar notkunar en íbúðar, og íbúðarhús má ekki rífá, nema heil- brigðisnefnd banni að nota þau til íbúðar. Bæjarstjórnin getur þó veitt sérstakt leyfi til þessa, og sett það skilyrði, að húseigandi sjái um jafnmikla aukningu á hús- næði til ibúðar annarsstaðar í bænum. íbúð telst í lögum þessum hvert það húsnæði, sem notað er til íbúðar, eitt herbergi eða fleiri. Það, sem eftir verður af húsa- leigulögunum, verður þá þetta: Húsaleiguneínd verður eftir sem áður, og það verður hægt að láta hana setja hámark á húsaleigu, en það verður vitanlega algerlega gagnslaust, þegar húseigandi getur sagt leigjanda upp, þegar honum sýnist. Að nema úr gildi 2. og 3. grein húsaleigulaganna, er því í raun og veru sama sem að af- nema lögin, enda hafa flutnings- menn réttilega kallað tillögu sína tillögu „um afnám laga um húsa- leigu í Reykjavík". í gær var þingsályktunartillagan til umræðu í neðri deild, og töl- uðu með henni: Jakob Möller, Sv. Björnsson og Bjarni frá Vogi, en enginn á móti, og var hún síðan samþykt og send til efri deildar, sem nú á eftir að sýna, hvort hún verður jaín fljótfær í þessu máli og neðri deild. Sem dæmi upp á flaustur og flumósahátt þingmanna, skal hér sagt þetta dæmi: Jakob Möller las upp álit1) húsnæðisnefndar bæj- arstjórnarinnar um málið. Fer það alt 1 þá átt fremur að gera strang- ari en vægari þær reglur, sem nú gilda, en samt endaði Jakob upp- lesturinn með þeim ummælum, að það færi í sömu átt og þingsál.- tillagan(!), og ertginn þingmaður mötmœlti þui. Einstaka þingmaður skildi þó hvað hér fór franp,, svo sem sjá mátti af þeim fáú at- 1) Alþbl. mun síðar skýra nán- ar frá innihaldi þess.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.