Alþýðublaðið - 27.09.1926, Page 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Úr „Braiítimiia
Sá flokkur í neyð yfir firnindin brauzt,
pví frelsið er alt, sem hann varðar;
þá kveður við loksins sú kröftuga raust,
sem kailar sitt föðurland viðstöðulaust
af harðstjórum himins og jarðar.
Að vísu kann ferðin að verða. þeim dýr,
en verður það þá ekki gaman,
er sveitin að landinu sólfagra snýr,
þar sannleiki ríkir og jöfnuður býr
og syngur þar hósanna saman.' ...
eftir Þorstein Erlingsson.
Og þó að þú hlæir þeim heimskingjum að,
sem hér muni í ógöngum lenda,
þá" skalíu’ ekki að eilífu efast um það,
að aftur mun þar verða haldið af stað,
unz brautin er brotin til enda. ...
Og kvíðið þið engu, og komið þið þá,
sem kyrrir og tvíráðir standið,
því djarfmannlegt áræði er eldstólpi sá,
sem eyðimörk harðstjórnar leiddi ykkur frá,
og guð, sem mun gefa ykkur landið.
LandkJðBftð.
Métl íhaleil ogg auðualdi.
Við landskjör á einúm manni,
sem fram á að fara fyrsta vetr-
ardag, verður um tvo lista að
velja, A-lista og B-Iista. A-list-
inn er listi þeirra, sem andstæðir
eru stjórn íhalds og auðvalds,
sem nú hefir að vísu yfirráðin
í landinu, en síðasta landskjör
hefir sýnt ótvírætt að er í minni
hiuta í landinu og hefir því ekki
rétt til yiirráðanna. Á lista þess-
um eru ungir menn og efnilegir,
og á annar heirna í sveit, Jón
Sigurðsson, bóndi á Yztafelli, en
hinn í kaupstaó, Jón Guðmunds-
son, endurskoðandi Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga. Hafa þeir
því skílyrði til að þekkja hag
fólks í hvorum tveggja byggðar-
lögum landsins og dæma um af-
leiðingarnar af ihaldsstjórn auð-
valdsins fyrir alþýðu manna til
sjávar og sveita, en höfuðkostur
þessara manna og sá, er mestu
skiftir við þessa kosningu, er, að
þeir eru báðir eindregnir andstæð-
ingar íhaldsstjórnarinnar, og fái
listinn meiri hluta atkvæða, eru
miklar líkur til, svo sem örlög
hafa nú til stilt um skipun og
aðstöðu stjórnarflokkanna, að þar
með sé ráðið niðurlögum íhalds-
ins til langframa; það verði til
frambúðar í minni hluta í efri
deild. Listi þessi er borinn fram
af Framsóknarflokknum með
stuðningi Alþýðuflokksins, og
bókstafur hans er A, — stafurinn,
sém auðkent hefir lista Alþýðu-
flokksins um hríð og sigursæld
fylgt, og öll alþýða mun óska
þess, að stafur hennar megi enn
sem fyrr sigri ráða og verða
bending og tákn þess, að alþýðu
beri yfirráðin.
Hinn listinn, sem borinn er
fram af íhaldinu og auðvaldinu
í landinu, er B-Iisti, og bendir
listabókstafurinn þegar á upprun-
ann. Að baki honum standa burg-
eisar, fámenn stétt síóreigna-
manna, sem vill haldct í yfirráðin
yfir meirihlutastéttinni til þess að
verja eignir sínar framlögum til
almenningsþarfa þjóðinni til auk-
innar menningar. Þeirra flokkur
er íhaldsflokkurinn, sem og vil!
hcdda í hvert það skipulag, sem
er í þann og þann svipinn, af því
að það gegnir betur hag þeirra.
Einkennum slíks flokks hefir nú
verandi forsætis- og fjármála-ráð-
herra lýst vel og réttilega áður
en hann varð rikur; hefir sú lýs-
ing áðuf verið birt hér í blaðinu,
og er hún ófögur í augum fram-
faramanna og mannvina. Að vísu
hafa íhaldsmennirnir að þessu
sinni sett flekklitla menn á lista
sinn, þar sem eru þeir Jónas
Kristjánsson læknir og Einar
Helgason garðyrkjustjóri, en það,
að þeir hafa nú látið bendlast
\jiö íhaldsflokkinn, bendir greini-
lega á, að þeir muni ekki, hversu
fúsir sem þeir kynnu að vilja,
hafa þrek til að rísa gegn álög-
um og harðrétti við aiþýðu, er
íhald og auðvald er jafnan víst
til að leggja á hana. Enginn mað-
ur, hversu myndarlegur sem vera
kann, á nokkru sinni að geta náð
trausti .alþýðustéttarinnar til full-
trúastarfs, ef hann velur sér
pyngjur burgeisa að bakhjarli,
því að vita má, að þær eru þá
jafnframt stjóri á hann, að hann
sinni ekki alþýðuhag.
Valið við landskjörið er auð-
velt. Það er ekki nema um tvent
að velja, annaðhvort að styðja
íhaldið til harðréttis-yfirdrottnun-
ar þess eöa rísa gegn áþján íhalds
og auðvalds með tollaáþján þess
á þeim, sem stóreignir skortir sér.
til varnar í barátíunni. Enginn
vafi ætti að leika á því, að aílir
hugsandi n:enn velji síðari kostinn
og kjósi A-lisíann til þess að
létta af þjóðinni oki íhalds og
auðvalds.
Móti íhalcli og aiiÖvaldi á að
vera sameiginlegt kjörorð allra
framfaramanna og mannvina við
landkjörið fyrsta vetrardag.
Om dsaggmss og vegkia,
Næturlæknir
er í nótt Friðrik Björnsson (í
sta'ð Jóns Hj. Sigurðssonar), Thor-
valdssensstræti 4, símár 1786 og
553.
Þórstina Jackson
kom frá Austfjörðum með „Gull-
fossi“. Hefir hún haldið 24 fyrir-
lestra með skuggamyndum við góða
aðsókn á Austurlandi. Hér ætlar
nún að halda fyrirlestur, áður en
hún fer vestur. Verður hann um
annað efni en síðast.
Ársfundur Guðspekifélagsins
stendur yfir um þessar mundir.
í kvöld verður umræðufundur kl.
81/2, en annað kvöld flytur formaður
félagsins, séra Jakob Kristinsson, er-
indi um guðsdýrkun í Adyár í Ind-
Jandi.
Skipafréttir.
„Goðafoss“ kom í morgun norð-
an um land frá útlöndum.
Gengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund..........kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 121/24
100 kr. sænskar .... — 122,15
100 kr. norskar .... — 100,20
Dollar..................— 4,57
100 frankar franskir. . . — 12,97
100 gyllini hollenzk . . — 183,31
100 gullmörk þýzk. . . — 108,87