Alþýðublaðið - 11.11.1926, Blaðsíða 3
ALPÍ oudLáB!3
3
ákvæ&unum i kreppufrumvarpi
stiörnarinnar eða felt þau lýsti
Stauning forsætisráðherra yfir
þvi, að ráðuneytið gæti ekki tekið
á sig ábyrgðina á því að halda
áfram nieð frumvarpið, heldur
myndi fara fram á þingrof.
Með opnu bréfi síðar verður
þjóðþingið rofið 1. dezember.
Samkvæmt tilkynningum frá
stjórninni fara kosningar fram 2.
dezember.
Um daglnn og veglnn.
Nœturlæknir
er í nótt Halldór Hansen, Tbor-
valdsensstræti 4, sími 1580.
Kveikja ber
á bifreiðum og reiðhjólum í dag
kl. 4, 15 min. e. m., en á morgun
kl. 4 e. m.
„Dagsbrúnar“-fundur
verður í kvöld kl. 8 í G.-T.-hús-
inu. Félagar! Fjöhnennið!
Símabilanir
eru einhverjar enn á kaflanum frá
Skriðulandi vestan við Heljardais-
heiði að Skjálfandafijóti. Símasam-
þandið er í lagi þar fyrir austan að
Seyðisfirði. Einnig er síminn í lagi
héðan að Sauðárkróki, svo og til
ísafjarðar og Stykkishólms, og
skemdir hafa ekki orðið á Suður-
landssimanum. Síminn á Hjaltlands-
eyjum er kominn í lag; en sökum
simabilananna nyrðra er skeytasam-
band héðan við útlönd að eins loft-
leiðina. (Eftir símtali i dag við
Gisla J. Ólafsson símastjóra.)
Veörið.
Hiti 4—1 stig. Átt austlæg. Stinn-
jpgs kaldi í Vestmannaeyjum. Ann-
ars staðar hægur. Deyfa á fsafirði
og Seyðisfirði. Annars staðar þurt
veður. Ófrétt af Norðurlandi. Loft-
vægislægð fyrir sunnan land. Otlit:
Austlæg átt, viða hæg, nema senni-
lega allhvöss á Suðvesturlandi (Suð-
urlandsláglendinu) í nótt. Purt veð-
ur og frostlítið hér í grend. Frost-
laust á Suður- og Austur-landi.
Sums staðar dálítil úrkoma í öðr-
um landsfjórðungum.
Marteínsmessa
er i dag, gamall minning'ardagur
kaþólsku kirkjunnar um Martein frá
Tours, er dó mn 400. Það var greftr-
unardagur hans. Marteinn Lúther
var skírður þenna dag, dagimi eftir
að hann fæddist, og hlaut því nafn
dýrlingsins.
Togararnir.
„Ólafur“ kom frá Englandi í gær.
„Gyllir“ kom í morgun af veiðum.
„Belgaum'* var með 2000 kassa, þeg-
ar hann kom inn í ífyrra dag.
Skipafréttir.
„Esja“ fer síðdegis á morgun vest-
ur og norður um land í hringferð.
í kviknaði
í morgun lítils háttar á Laugavegi
'46, í fötum, sem verið var að þurka
við ofnpípu. Slökkviliðið slökti
fljótlega, og urðu engar skemd-
ir, sem teljandi væru.
Orgelhljómleikur
Páls Isólfssonar í gærkveldi var
fjölsóttur, sem maklegt var. Siðasta
lagið varð Páll að hætta við að
leika sökum lasleika. Hann er enn
talsvert lasinn í dag.
„Sex verur leita höfundar“
verður leikið í fyrsta sinn hér í
kvöld.
Gengi erlendra mynta i dag:
Sterlingspund. . .
100 kr. danskar . .
100 kr. sænskar . .
100 kr. norskar . .
Dollar..............
100 frankar franskir.
100 gj'llini hollenzk
100 gullmörk þýzk.
ísfisksala.
. kr. 22,15
. — 121,64
. - 122,12
. — 114,70
■ - 4,578/,
. — 14,90
. — 183,18
. — 108,62
„Skúli fógeti“ seldi í gær i Eng-
landi hluta af afla sínum fyrir 1070
sterlingspund.
R ImÍ
OB i Nýkomið: j
■ 1
í Brefsefm j
8 i möppum og kössum. 1
1 Mikið úrval, lágt.verð. i
Bókaverzlun
Arinbf. Sveinbjarnarsonar
V BBlIIBnillBBIIIB &
Lauprdagnrinn
er siðasti dagur útsol-
unnar.
Notið tækifærið til að kaupa ódýrt.
PostuIEns', leir-, gler-, og
aluminiums-vörur.
Dömutöskur, Barnaleikföng og
ýmisskonar tækifærisgjafir
K. Eliarsson
& Björnsson.
Bankastræti 11.
Simi 915. Sími 915.
Að eins eitt var rétt
í frásögn „Mgbl.“ i fyrra dag mn
spritt-tunnurekann á Rauðasandi:
Tunnuna rak. Hún var ekki full,
eins og það sagði, heldur milli hálfs
og fulls. Hana rak ekki á land
Good-Templara, eins og það sagði.
Á Rauðasandi eru tveir templarar,
en ekki einn, eins og stóð í „Mgbl.“
— Þetta er að eins lítið dæmi þess,
hve nákvæmar fréttir „Mgbl.“ flyt-
ur.
Upton Sinclair: Smiður er ég nefndur.
um það? Ég geri það, og þér sjáið alla
hringana og borðana og alt mögulegt, sem
hún kaupir fyrir peningana. Hún lítur út eins
og skrautgripabúð og leikfangabúð í einní
kássu, þegar hún gengur um göturnar."
„Herra Smiður var elnmitt að gefa mér
ákúrur fyrir það,“ sagði María. „Ég held
helzt, að ef þér borgið honum kaup, þá
muni hann gefa fátæklingunum það.“
„Ef ég borga honum kaup, þá á hann það,
og hann má gefa gæsunum það mín vegna.
Hvað segið þér, herra Smiður?"
Ég beið með óþofinmæði eftir að heyra,
hverju hann svaraði, en á þessari sömu
stundu voru dyrnar að „fæðingarstofnun-
inni“ opnaðar, og madama Planchet hrópaði
inn: „Hérna er hún!“ Og holdfjallið birtist,
stutt af tveimur musterismeyjum.
XIII.
„Ó! Guð minn!“ stundi frú T—S og saup
hveljur. „Ég er að deyja!"
Eiginmaður hennar svaraði, og geislaði af
honum ánægjan: „Þú hefir þá farið og gert
það aftur!“
Frú T—S: „Eg geri það aldrei aftur.“
Eiginmaðurinn: „Þetta segir þú alt af.
Gleymdu því, -mamma! Nú er alt ágætt.
Þú þarft ekki að láta eiga við hárið á þér í
næstu sex mánuði!"
Frú T—S: „Ég verð að leggjast niður. Ég
er að deyja, Abey! Svei mér þá! Lof mér aÖ
komast að legubekknum."
Eiginmaðurinn: „En, múmma! nú verðum
við að komast til þess að borða!“
„Ég get ekkert borðað.“
„Hvað þá!“ Hræðslan var einlæg í orðum