Alþýðublaðið - 17.11.1926, Blaðsíða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
I
<
3
3
4
4
i
*
i
<
3
i
3
4
3
4
4
4
4
4
3
4
3
4
4
4
JILPÝiglJIBLmfilIS |
kemur út á hverjum virkum degi. I
■■■■ - —--:-=■■■==-...■■■ I .- ►
Afgreiðsla í Alþýðuhiisinu við t
Hveríisgðtu 8 opin frá k! 9 árd. (
til kl. 7 síðd. i
Skrifstofa á sama stað opin kl. ►
Q Va —10'/3 árd. og ki. 8 — 9 siðd. !:
Simar: 988 (afgreiðslan) og 1294 [
(skrifstofan). »
Verðlag: Áskriftarverð kr. 1,00 á ►
mánuði. Auglýsingaverð kr. 0,15 t
hver mm. eindáika. J
Prentsmiðja: Afþýðuprentsmiðjan t
(í sama húsi, sömu símar). {
Hverjum er æílað að
* borga?
Ólafur Thors vill lækka tekju-
og eigna-skatí á gróðafélögam.
Um síðustu helgi flutti mið-
stjórnar-„Vörður“ l’naldsins þá
orðsendingu frá Ólafi Thórs, aó
hann ætli að berjast fyrir lækk-
un tékju- og eigna-skatts. Það
kemur skýr't í 1 jós í skrifinu, að
hann á við hátekjur og rniklar
eignir .og að hann ber hlutafé-
lögin einkum fyrir brjósti. Það
er skattgjald þeirra til ríkisins,
sem hann ætlar að nota ping-
mensku sína tii að lækka. Hann
sér, að til þess að koma pví í
kring, er pingstyrkur íhaldsflokks-
ins ekki nógu mikill. Þess vegna
er hann að biðla tii pingmanna í
öðrum flokkum og mælast til, að
peir leggi hlutafélögunum og
pessu tilvonandi frumvarpi sinu
lið. í petta skifti snýr hann sér
til Jónasar frá Hriflu.
„Því fátækari og tekjuminni,
sem pjóðin er, pví vægar verð-
ur að beita beinum sköttum",
skrifar Ól. Th. Ætli ekki væri
meira vit í að segja, ef tekið er
tillit til þjóðarinnar, en ekki
fárra auðugustu einstaklinganna:
Því fátækari og tekjuminni, sem
þjóðin er, því vægar verður að
beita óbeinum sköttum? Hingað
til hefir íhaldinu verið ósárt um
álagningu óbeinna skatta, toll-
anna. Það eru þeir, sem koma
þyngst niður á' peim, sem minst
hafa gjaldþolið, fátækri alpýðu,
einkum barnafjölskyldum. Það er
síður en svo, að hjá Ól. Th. komi
í Ijós stefnubreyting í álögum
þeirra. Hann leggur ekki til, að
tollarnir séu lækkaðir. Síður en
svo. Hins vegar vill hann láta
lækka hátekjuskatt og eignaskatt.
Það á að verða þingmál hans.
Nú er pað víst, að ef skattur
af miklum tekjum og eignum
verður lækkaður, þá verður að
taka féð á annan hátt; og það
verður pá svo sem að sjálfsögðu,
sem íramhald sömu steínu, tek-
ið með auknum tollum. Eða býst
nokkur við, að Óí. Th. eða aðrir
íhaldsmenn leggi til, að pví fé
verði aftur náð með gróða á rík-
isrekstri eða þjóðnýtingu? Um
slíkar tillögur er engin von úr
peirri átt.
Hér er um það ei'tt að ræða,
af hverjum eigi að taka pag fé,
sem Ól. Th. vill láta spara hiuta-
félögunum greiðslu á. Á að láta
alþýðuna borga pað í viðbót við
aðra töllskatta, til pess að stór.
útgerðarmennirnir losni við pann
gjaldalið að mestu leyti? Hér er
eingöngu stéttabaráttan að verki,
ólíkir hagsmunir, — tilraun burg-
eisa til að seilast enn lengra of-
an í vasa alþýðu, tií þess að
hlífa sínum eigin pyngjum. Þetta
er það verkefni, sem Ólafur Thors
hefir valið sér á þinginu. Hann
hefir tilkynt laúnin, sern hann ætl-
ár að greiða fátækum sjóporpabú-
um, sem glæptust á að kjósa
hann á ping. Nú er peim bezt að
fylgjast vel með pvi, hvorir eiga
ineira í þingmanninum peim, þeir
eða „Kveldúlfur“, hvorum þing-
menska hans verður meiri pyngju-
fyllir, „Kveldúlfi" eða þeim.
ÖII alpýða parf að gefa glöggv-
ar gætur að pví, hverjir ping-
manna fylgja ÓI. Th., pegar hann
flytur frumvarpið um Iækkun
skatts af háum tekjum og eign-
um, og hvernig peir leggja til,
að ríkissjóður fái tekjur í stað-
inn.
Bannlagabrfótar sektaðir
Ólöglegt áfengi fanst nýlega í
verzlun Hjörleifs Þór.ðarsonar frá
Hálsi. Er hún í skúr við Haínar-
stræti. Var Hjörleifur settur í
gæzluvarðhald á laugardaginn
var og heíir hann síðan verið und-
ir rannsókn. Hann hefir áður tví-
vegis verið sektaður fyrir bann-
lagabrot.
Við ítarlega rannsókn, er lög-
reglan gerði á mánudaginn vax í
kolaskipinu „Bru“, fann hún par
á milli 15 og 20 flöskur af whiskyi
og „ákavíti", sem brytinn átti.
Var hann sektaður um 600 kr.
Þá heíir Tage Möller kaupmað-
ur nýlega verið dæmdur í 800 kr.
sekt fyrir innfluíning áfengis,
Franz Andersen, sem nú mun vera
skrifstofumaður, í 400 kr. sekt
fyrir ólöglega áfengissölu og
Hjörieifur Hjörleifsson (frá Hálsi,
Þórðarsonar) í 400 kr. sekt fyrir
aðstoðun við ólöglega áfengis-
sölu.
Sektarákvæði bannlaganna eru
óhæíilega Iág. Þyrfti a. m. k. að
tífalda þau.
Svo nefnist nýútkomin bók eftir
Ágúst H. Bjarnason dr. phil., há-
skólakennara. Er hún 1. bók í
fyrsta flokki ritsafnsins „Lýðment-
un“, er bókaverzlun Þorsteins M.
Jónssonar gefur út. Á þessi fyrsti
flokkur að heita „Heimssjá“, en
pessi bók er eiginlega fyrsta bindi
af fjögurra binda riti um sögu
vísindanna, og „ræðir pað“, eins
og höfundurinn segir í formál-
anum, „um himingeiminn og Iýs-
ir því, hvers menn hafa orðið á-
skynja um alheiminn frá fyrstu
tíð og fram til vorra daga.“ Hef-
ir höfundurinn farið eftir ágæíum
ritum um efnið, og mun parna
lcomið saman alt pað, sem al-
me'nningi má að gagni koma til
að fá fróðleik og hugmynd um
hið tigna djúp himinsins. Ritið er
prýtt myndum til skýringar og
skilningsauka, og frásögn virðist
svo einföld, að hverjum manni,
sem á annað borð er læs á slíkt
efni, sé auðvelt að skilja.
Það er víst, að mörgum mann-
inum, sem nú er kominn til full-
orðinsára, en langaði tii að fræð-
ast um himininn á æskuárum sín-
um, hefði pótt ekki lítið varið í,
ef hann hefði pá átt kost á slíku
riti sem þessu. Má því vænta, að
ritinu verði vel tekið af alpýðu,
ef svo rætist úr fyrir henni, að
hún megi sjá af eyri til bóka-
kaupa handa sér og börnum sín-
um.
Gestsson,
en ekki Gíslason, er Einar í Norð-
urkoti á Miðnesi, sem sagt er frá
kvonfangi hans hér í blaðinu í gær..