Alþýðublaðið - 09.12.1926, Side 1

Alþýðublaðið - 09.12.1926, Side 1
Alþýðublaðlð Gefið út af Alþýðuflokknunt 1926. Fimtudaginn 9. dezember. 287. tölublað. Erlend símskeytí. Khöfn, FB., 8. dez. Bretar leyfa kolaútflutning. Frá Lundúnum er símaö, að framvegis verði engar hömlur lagðar á útflutning kola, og sé nú eigi nauðsynlegt að fá sérstök útflutningsieyfi á neinum kolum nema gljákolum. ítalir og Jugoslavar. Frá Berlín er símað, að stjórnin í Jugo-Slavíu hafi sagt af sér, þar eð ógerningur sé fyrir hana að halda áfram hinni sömu vinveittu stefnu sinni; í garð ít- ala, vegna samnings þess, er ít- alir og Albanir hafa gert sín á milii. Vinátta með Rússum og Þjóðverjum? Frá Berlín er símað, að Tjitje- rin sé á ferðalagi í T>ýzkalandi, og virðist tilgangurinn með ferðalagi hans vera sá, að efla vináttu á milli Þjóðverja og Rússa. Kvað hann haida ])ví fram, að enska stjórnin sé að reyna til að koma á bandalagi í Vestur-Evrópu gegn Rússum. Aívinnubæíiimar. Þegar atvinnubæíur stjórnar- Innar eru komnar í verk, starfa þar 25 atvinnulausir, og ef bæjar- stjórnin veitir 50 atvinnu, þá eru það 75 manns, sem hrifnir hafa verið úr gini bráðasta hungursins, og kann sumum að virðast pað vel gert og drengilega. En gyll- ingin fer þó nokkuð af þeirri góðmensku, þegar þess er gáð, að atvinnulausir menn í bænum eru sjálfsagt alls um 750, svo að það er ekki nema einn tíundi hluti, sem náðarinnar verður að- njótandi. Miskunnsemi hins op- inbera er eftir þessum bókum 90o;» of lítil, og er það því að því leyti minna en hálfur maður. Hinu op- inbera hlýtur að vera svipað inn- anbrjósti, þegar það er að tína tíunda hvern mann úr hinum sveltandi hópi, eins og bónda, sem í sláturtíðinni er að velja úr fénu sínu, hvað sé á vetur setjandi. Það hlýtur að vera ógeðsleg tilfinn- ing, þegar um menn er að ræða. flTengáamamma“ Alþýðusýningin í kvöld verður síðasta sýning leiksins hér að þessu sinni. Frá sambandsþinginu. Svohljóðandi þingsályktunartil- laga var sanrþ. í einu hljóði, eftir tillögum laganefndar: 7. þing Alþýðusambands Islands skorar á sambandsstjórn þá, er valin verður nú á þinginu, að skipa nefnd manna hæfiiega löngum tíma fyrir næsta sam- bandsþing, er hafi það nreð hönd- um að útvega fulltrúum þeim, er næsta sambandsþing sækja ut- an af landi, ódýra eða ókeypis dvöl hér í bænum, á meðan sam- bandsþing stendur yfir. Frá ftalfiu. Hann er sarnur við sig enn þá hann signor Mussolini. Fyrir skömmu bannaði hann kirkju- stjórnunum að láta bóka þau nöín skírnarbarna, sem kæmu i bága við „alment skipulag, stofnanir ríkisins eða góða siðu.“ Ástæð- an er sú, að margir foreidrar láta börn sín bera nöfn ýmissa for- vigismanna frjálslyndu flokkanna. ítalir eiga nýlendu eina á Rauðahafsströnd í Afríku. Þar hafa nokkrir sænskir trúboðar dvaiið um skeið og stofnað þar og rekið skóla. .Kaþólskum klerk- um hefir lengi verið illa við þá starfsemi, enda er öll mentun al- þýðu eitur í þeirra beinum, og nú hafa þeir fengið Mussolini til þess að skipa að loka skólunum, og sumir kennaranna iiafa verið hneptir í varðhald. ítalska blaðið „Corriere della Sera“ birti nýlega lagafrumvarp, sem Mussolini hefir lagt fyrir þingið. Þetta er þar 6. grein: „Sá borgari eða útlendingur, sem er- lendis hefir gert sig sekan í ein- hverju því, sem tilgreint er í síðustu grein (þ. e. a. s. hefir unnið að því, á hvaða hátt sem er, að útbreiða ósannar, ýktar eða hlutdrægar fréttir eða frásagnir, sem snerta hið innra ástand ít- alíu o. s. frv.), skal hegningu hljóta eftir því, sem þessi lög ákveða.“ — Minsta hegning er 5 ára fangavist, en getur vel verið líflát, ef sakir þykja miklar. Og þegar þess er gætt, að svartliðar úrskurða sjálfír, hvað eigi að telj- ast „ósatt, ýkt eða hlutdrægt", þá er ekki ólíklegt, að frjálslynd- um mönnum og sannorðum þætti ilt að eiga mál sitt fyrir þeim rétti. Til viðbótar frásögn Alþbl. á föstudaginn um „frægðarverk" Mussolinis má geta þess, að svart- liðar hafa ráðist á 200 hús í Mila- no, skemt alt innan stokks og jafnað sum við. jörðu. Margir helztu menn frjálslyndu flokkanna eru horfnir með öllu, og leikur grunur á, að þeir hafi sætt sömu örlögum og Matteotti. Einn þeirra er vefaraforinginn Sthiawellos. Svipað er háttalagið í Feneyj- um. Þar hafa verið reistir upp fjölda-margir, nýir gálgar. Til hvers? Marinelli, einn af aðal- mönnum Matteotti-morðsins, ræð- ur þarna mestu. Þessu líkar eru fréttirnar ails staðar að úr ítalíu: Það er ekki að furða, þótt „Mgbl.“ tali unr bjargráð til viðreisnar italíu. En hvernig lízt íslenzkum verkalýð á þau bjargráð? Halda þeir, að svipuð stjórn hér heima yrði okk- ur greiðasta leiðin „út úr ógöng- unum“? Það er. ekki að ósekju, að stjórnmálagarpur Suðurslava, Ste- fán Raditsj, sagði nýlega í ræðu, að allur heimurinn hefði skönnn á ítalíu, enda væri hún nú miklu verri en Rússland hefði verið á dögum keisarastjórnarinnar, og er þá langt jafnað. Hvenær skyldi „Mgbl.“, þessi auðmjúki aðdáandi Mussolinis, viðurkenna opínberlega þessi aug- ljósu sannindi? Banniagabrlótar dæmdir. ■ Upp úr herferð lögreglunnar í haust á hendur áfengisbannlaga- brjótum og leynivínsölum hafð- ist það, að þessir menn hafa ver- ið kærðir og dæmdir fyrir slíkt athæfi: Ölafur Lárusson Fjeldsted, Tage Möller, Franz Andersen, Sigurður Berndsen, Bergstaða- stræti 8A, Guðrún Jónsdóttir, Bergþórugötu 11, Ásgrímur Jóns- son, Jósef Sigurðsson, Lækjartorgi 2, Axel Daldstedt, veitingamaður í kaffihúsinu „Fjallkonan", Ras- musseri í „Hamri“, Ingvar Sig- urðsson, Vegamótastíg, Guðmund- ur Jónsson, Bergstaðastræti 53, Hjörleifur Þórðarson frá Háisi, Klapparstig 38, Hjörleifur, sonur hans (fyrir aðstoðun við ólög- lega áfengissölu), Helgi Nikulás- son, Hveríisgötu, Hinrik Alne, bryti á skipinu „Bru“ og Þórar- inn Guðmundsson, Laugavegi 111. Gísli Björnsson, Skíðastöðum, var dæmdur fyrir ölsölu. Hjá sumum þessara manna var nm ítrekað bannlagabrot að ræða, en aðrir þeirra voru nú dæmdir í fyrsta sinni. i Heillrlgt, bjart hðrunA; ei* eStirsóknarverðapa en Sriðleikurinn einn. ; Menn geta fengið fallegan litar- ; < hátt og bjart hörund án kostnað- arsamra fegrunar-ráðstafana. Til ; ; þess þarf ekki annað en daglega • umönnun og svo að nota hina dá- samlega mýkjandi og hreinsandi ; í TATOL-EIAISOSAiPU, [ ! sem er búin til eftir forskrift ; ; Hederströms læknis. í henni eru I eingöngu mjðg vandaðar olíur, f svo að í raun og veru er sápan * alveg fyrirtakshörundsmeðal. ► __ ► ► < Margar handsápur eru búnar til ; úr lélegum fituefnum, og visinda- j legt eftirlit með tilbúningnum er I ekki nægilegt. Þær geta verið hörundinu skaðlegar, gert svita- : < holurnar stærri og hörundið gróf- ; < gert og Ijótt. — Forðist slikar I j sápur og notið að eins j < TATOL-HAMBSAPU. < [ j Hin feita, flauelsmjúka froða sáp- < unnar gerir hörund yðar gljúpara, | skærara og heilsulegra, ef þér notið hana viku eítir viku. j tatol-hanbsapa < fæst hvarvetna á íslandi. f a*T Verð kr. 0,75 stk. “fgd J Heildsölubirgðir hjá I I.Brpjólfssos!$IvÆ,an | Eteykjavák. < < Stækkaðap myndir eftir gömlum myndum, .filmum og plötum, er ávalt mjög kærkomin jélagjöf, Athugið þetta ogfinnið migaðmáli. Cas*l ÖlaSssoia, ljósm. Lækjartorgi 2 (Thomsenshús). Sími 1413. Sími 1413. Mme G. le Seime heldur hljómleika í Nýja Bió í siðasta sinn í kvöld kl. 7 7s>. Operuhlutverk. Niðursett verð.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.