Alþýðublaðið - 17.12.1926, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 17.12.1926, Blaðsíða 1
Alpýðnblaðið Ciefið út a£ Al|>ýðy£lokkBiuni 1926. Föstudaginn 17. dezember. 294. tölublað. Verzlun Ben. S. Þörariissonar gefær 1©-2SÖ|0 afslátt tll Jéla. ¥Ið selfaiai Bajðg-géð laifiiieiillpél m lariiaenskó á sið eisis 'I19S@ ©|| 129®@. vaimliergsbræður. Beztn og ódýrustii sliísin m siffisrantaefnin eru í verzlun Augustu Svendsen. Kvensllfsin í ,JPai*i§4A eru annáluð fyrir fegurð og gæði. Franskt skúíasilki á 6,50 í skúfinn. Sími 228. Sími 228. Evlené sinaskeyti. Khöfn, FB., 16. dez. Þýzka stjórnin leitar sambands við jafnaðarmenn. Andröður herforingja gegn iýðveldinu. Frá Berlín er sírnað, að ríkis- kanzlarinn hafi boðið jafnaðar- mönnum að taka þátt í stjórn ríkisins. Tilgangur ríkiskanzlar- ans með boðinu er sá að koma í veg fyrir, að jafnaðarmenn beri frami vantraustsyfirlýsingu til hennar, sem þeir eru með á prjón- unum af þvj, að þeir óttast, að stjórnin hafi í hyggju að leita stuðnings þýzkra þjóðernissinna framvegis. Jafnaðarmenn segjast vera fúsir til að taka þátt í stjórn rfkisins, en heimta, að nú verandi stjórn segi af sér og að ný stjórn verði síðan mynduð með aðstoð þeirra. Frjálslyndir krefjast þess, að ráðstafanir verði gerðar til þess að koma i veg fyrir, að iiðs- foringjar í ríkisv,arnarliðinu styðji undirróður hægrimanna gegn lýð- veldinu, og hóta því að öðrum kosti, að taka ekki þátt í ríkis- stjórninni framvegis. Frá bæjarsíjómarfundi í gær. Fjárhagsáætlun bæjarins. Samþykt var, að dýrtíðarupp- bót starfsmanna bæjarins verði næsta ár 50o/o samkvæmt tiliögu, er fjárhagsnefndin gerði, en feld var með jöfnum atkvæðum breyt- ingartillaga frá Ól. Fr., St. .1. St. og Ágústi Jós. um, að uppbötin yrði 57.0/0. Voru jafnaðannennirnir með henni, en Pétur Halld., Jón Ól., Bj. 01., Jónatan, Hallgr. Ben. og P. Magn. á móti. Jón Ásbj., K. Z. og Guðm. Ásbj. greiddu ekki atkvæði. Þ. Sv. var veikur. — Tillaga frá J. Ói. urn að hækka laun bæjargjaldkerans um 1500 kr„ og sé það persónuleg launa- hækkun við nú verandi gjaldkera, var samþykt. Þar eð tillagan um sæmilega dýrtíðaruppbótar- greiðslu (57o/o) til starfsmanna bæjarins yfirleitt hafði þá verið feld, greiddu jafnaðarmennirnir ,ekki atkvæði um þessa iillögu. , Til viðhalds gatna og ræsa eru að eins áætlaðar 40 þús. kr„ í stað 70 þús. kr. þetta ár. Til- laga frá Héðni Váldimarssyni um ,að hækka þann lið upp í 60 þús. kr. var feld með 8 atkv. gegn 6 (jafnaðarmannanna). H. V. lagöi enn fremur til, að 40 þús. kr. yrði varið til nýrra gatna. Það var einnig felt (9 :6), og voru nú í- haldsmennirnir allir á móti, en jafnaðarmennirnir með. Enn lagði H. V. til, að 48 þús. kr. sé varið til að malbika Hafnarstræti. Var sú tillaga samjn með 13 atkv.' .gegn 2- (K. Z. og Pétur Halld.). Var hún breytingartillaga við till. frá J. Ásbj. um að verja 30 þús.. kr. til að malbika þann kafla strælisins, sem er milli Aðalstræt- is og Pósthússtrætis, er kom því ekki til atkvæða. Til ræktunar eru að eins ætl- aðar 10 þús. kr. Har. Guðm. sagði, sem er, að svo óveruleg fjárveit- ing íil ræktunar bæjarlandsins væri bænum til skammar og þess eins verð, að hlegið.væri aö henm. H. V. lagði 1i!, að hún væri hækk- uð upp í 30 þús. kr. Sú till. var feld með 7 atkv. gegn 7. Auk jafnaðar'mannanná greiddi Pétur Magnússon, forstjóri rækt- unarsjóðsins, atkvæði með henni. H. V. iagði til, að 60 þús. kr. væru áætlaðar til atvinnubóta á komandi ári. Sú tillaga var feld ineð 8 atkv. gegn 6. Jafnaðannenn einir voru með henni, en P. Magn. sat hjá atkvæðagreiðslunni. Styrkveiting til Styrktarsjóðs verkamanna- og sjómanna-félag- anna í Reykjavík, 2 kr. fyrir hvern hluttækan mann, alt að 6 þús. kr„ tillaga frá H. V„ var feld (8 :6, atkv. jafnaðarmanná). J, Ásbj. sat hjá. — Tillaga H. V.: Til gamalmennahælissjóðs 30 þús. kr. var feld (9 :6). Allir íhalds- mennirnir voru á móti, en Alþýðu flokksmenn með. Tillaga Ól. Fr.: Til sundhaílar- ogveitingar laugavatns til borgar- innar 50 þús. kr„ var feld á sama hátt (9 :6). — Hins vegar var sam- þykt till. frá Birni Ól.: Til sól- baðsskýlis við sundlaugarnar og ýmsra endurbóta á laugunum alt að 5 þús. kr. H. V. lagði í fyrstu til í fjár- hagsnefndinni, að veittar yrðu 25 þús. kr. til almenningssalerna; en til þess að tryggja samþykt nokk- urrar fjárveitingar til þessa varð það úr, að hann tók þá tillögu aftur, en nefndin flutti sameigin- lega till. um 10 þús. kr. fjárveit- ingu til náðhúsa, og var hún sam- þykt. Styrkufr til Hjúkrunarfélags Reykjavíkur var samkvæmt um- sókn þess hækkaöur úr 1200 í 2000 kr. með 5 atkv. gegn 3. Har. Gúðm. og St. J. St. lögðu til, að styrkurinn til leikfélagsins væri hækkaður úr 5 þús. kr. í 6 þús„ og var það samþ. Ræðu- menn voru sammála um, að ekki tjáði að níðast á íeikfélaginu, én Pétur Halldórsson vildi þó ekki, að styrkurinn væri hækkaður, heldur væri felt burtu eða klipið af skilyrðinu úm tvær sýningar hvers sjónleiks fyrir hálfvirði (al- þýðusýningarnar). Það sáu jafnvel sumir hinir íhaldsmennirnir, að náði engri átt. Að ósk Péturs var alþýðusýningaskilyrðið þó , borið upp sér í iagi. Greiddi P. H. einn saman atkv. gegn því, en jafnað- armennirnir með því. Hinir sátu hjá. Var skilyrðið um tvær al- þýðusýningar á hverjum sjónleik þannig samþ. áfram með 6 atkv. gegn 1. Þá hrópaði Pétur í ang- istarrómi: „Þúsund krónur tap- aðar!“ Hann vissi, að nú yrði hækkunin samþykt. TeLinn var upp sem tekjuliður afgangur tekna árið 1925 kr. 74 985,28, en hins vegar nýr .gjaldaliður vegna vanheimtu á útsvörum fyrri ára kr. 75 000,00. Við lokaatkvæðagreiðslu um fjárhagsáætiunina greiddu þeir Héðinn og Ól. Fr. atkvæði gegn henni, en hinir jafnaðarmennirnir greiddu ekki atkvæði. Þannig andmæltu þeir þessari naglskornu íhaldsáætlun. Fjárhagsátetlun bæjarins var fyrsta málið á dagskránni. Þegar atkvæðagreiðslunni var lokið, var kl. 12 á miðnætti. Voru þá að venju greidd atkvæði um, hvort Athuglð! Látið ekki blekkjast af stórum auglýsingum. Við seljum eins og að undanförnu, jafn góðar vörnr fyrir sama verð, og jafnveí ódýrar en aðrir. Hringið pvi í sima 228, og yður verður tafarlaust sent heim það, sem þér þarfnist til jólabökunar og í jólamatinn. Verzlunin Vaðnes. Sími 228. Sími 228. Skrifstofa Sjómannafélags Reyk- javikur í Hafnarstræti 18 uppi verður fyrst um sinn ávalt opin virka daga 4 — 7 síðdegis. — Atkvæðaseðlar til stjórnarkosninga eru afhentir þar. fundinum skyldi haldið áfram, en það var felt. Þess, sem markverð- ast var í umræðunum, verður getið síðar. Á þessum fundi voru atvinnu- bætur ekki fyrst og fremst til umræðu. Það sá líka á, því að nú var þar mættur fréttaritari frá , Mgbl.“, Valtýr „ritstjóri'*.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.