Alþýðublaðið - 31.12.1926, Side 2
2
ALÞVÐUBLAÐIÐ
Árið, sem kveður
í kvöld, verður vafalaust mörg-
um alþýðustéttar minnisstætt ár,
því að á því hafa þeim óvenju-
fega mikillega brugðist bjarg-
ræðisvegir. Aflatregða og óþurk-
ar hafa mjög dregið úr fram-
leiðslu til lands og sjávar, og af-
leiðingar þess hafa vitanlega eink-
um komið niður á þeim, sem
skortir eign á framleiðslugögnum,
alþýðustéttina. Atvinnuleysi hef-
ir hrjáð hana átakanlegar en
nokkru sinni fyrr. Þó hefði það
leikið hana enn grárra, ef hún
hefði veríð með öllu samtakalaus.
Samtökum hennar hefir tekist að
knýja fram nokkrar atvinnubætur,
en þurft hefðu þær að vera miklu
meiri, ef allur fjöldinn hefði ekki
átt að heilsa nýja árinu alslypp-
ur lífsnauðsynja, eins og nú verÖ-
ur því miður.
Eini arður ársins verður hjá
Velf'e; u:n alþýðumö'mum á aka:;-
legur lærdómur um gað, hversu
háskalegt það er þjóðinni, að stór-
feld framleiðslutæki séu í ein-
stakra manna eign. Ef þjóðin
hefði átt stórvirkustu framleiðslu-
tækin, togaranja, þetta ár og tvö
næst undan farin, þá lrefði hinn
gífurlegi arður þeirra fallið henni
í skaut, en ekki örfáum mönn-
tim, og þá hefði mátt nota nokkuð
af bonum handa hinni mögru kú
þessa árs til að éta, og þá hefðu
margar þúsundir fiskframleiðslu-
fólks, sem litla eða enga atvinnu
hefir haft þetta árið, haldið at-
vinnu sinni og með vaxandi kaup-
getu sinni afstýrt þeirri kreppu,
senr atvinnuleysi þess hefir þetta
ár einnig bakað öðrum atvinnu-
vegum.
Hinn dýrkeypti lærdómur, sem
hið deyjandi ár leggur alþýðu að
veganesti til ársins, sem heilsar
í nótt, er boðorð um það, að^ef
alþýða vill, að sér vegni vel og
hún verði langlíf í landinu, skuli
hún gera framleiðslutækin að
þjóðareign, og nýja árið flytur
tækifærið, sem alþýða skyldi
gripa greitt, munandi það „að
hika er sarna og tapa“. Á næsta
ári á alþýða landsins að segja til,
hvort hún eða andstæða hennar,
eignastéítin fámenna, skuli ríkjum
ráða. Á næsta ári getur alþýðunn-
ar orðið ríkið, valdið og lífið, ef
hún skilur aðstöðu sína og neytir
máttar síns, er samtökin megna
að sýna, til að ná marki sínu í ó-
hjákvæmilegri, en eðlilegri þjóð-
félagsstéttarbaráttu sinni, en það
er inni falið í þessu, sem ætti að
vera kjörorð alþýðu og sigurorð
næsta ár:
Yfirráðin til alpýðunnar!
Slys
Einar skipstjóri Einarsson frá
Flekkudal var á annan i jólum á
reið úti á Seltjarnarnesi. Datt
hann þá af baki og meiddist
nokkuð á höfði, en er nú á bata-
vegi.
m
Gleðilegt nýtt ár!
Þökk fyrir viðskiftin
á gamla árinu.
I
Guðm. Guðjónsson. jj
m
M fiSaH!SS3—^
ggj 'Gleðilegt nýtt ár! g
Verzlun
Olafs Einarssonai,
H 153
|| Lciugavegi 44.
ji
EZH
Slys af flugeldura.
Hvar er lögreglan?
I gær var ungur piltur, Daníel
Sigurbjörnsson að nafni, á gangi
á Vesturgötu, og sprakk þá púð-
urkerling eða sprengja, sem lá
þar, upp eftir honum, svo að and-
lit og háls á honum 'sviðnaði, og
lá við skemdum á auga. Varð
hann að leita læknis, en reyndist,
sem betur fór, ekki hættulega sár.
Þó að gaman kunni að vera að
herbrestum þessum og ljósadýrÖ,
þá eru sprengjurnar þó bráð-
háskaleg tól, eins og slysið á Eyr-
arbakka í fyrra dag sýnir bezt.
Þess eru og ekki fá dæmi, að
fiugeldar hafi kveikt í hári á
kvenfólki.
En hvar er lögreglan? Það er
harðbannað að vera með þessar
sprengjur á götunum, en lögregl-
an sýnist ekki gefa því neinn
gaum. Hún þyrfti að vera velvak-
andi nú í kveld, svo ekki verði
slys fyrir vangeymslu hennar.
Til viðskiftamanna Maösims.
Við lok þessa árs hætti ég störf-
um sem afgreiðslumaður Alþýðu-
blaðsins, sem ég hefi gegnt frá
stofnun þess. Þakka ég því öllum
flokksmönnum fjær og nær, sem
og öðrum viðskiftamönnum blaðs-
ins, fyrir vinsamlega viðkynn-
ingu, sem ég hefi við þá haft
gegn um störf mín við blaðið,
og trygg og góð viðskifti um
margra ára skeið. Alþýðublaðið
hefir aflað sér margra vina og
viðskiftamanna unr öll þessi ár,
sem eykst með degi hverjum, og
vænti ég þess, að þær vinsældir
blaðsins aukist, og sú vinssmd og
það traust, sem ég hefi notið,
verði hið sama um eftirkomanda
minn.
Þakkir fyrir liðnu árin og gleði-
legt nýtt ár!
Sigurjón Á. Ólafsson.
H E3 tsa CSS Ea E53 E3 ES3
0 Gleðilegt nýtt ár! 0
0 0 Þökk fyrir viðskiftin á liðna árinu. 0 0
i0 Eggert Jónsson, 0
0 Óðinsgötu 30. 0
• Ea tsa E3 csa esa Ea csa K
!
B3
Í
Crleðilegt ár!
Þökk fyrir viðskiftin
á gamla árinu.
TheódórN. Sigurgeirsson
Um daginn og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Jón Hj. Sigurðsson,
Laugavegi 40, sími 179, aðra nótt
Matthías Einarsson, Kirkjustræti
10, sími 139, heimasími í Höfða
1339, og á mánudagsnóttina Ólaf-
ur Þorsteinsson, Skólabrú 2, sími
181.
Næturvörður
er næstu viku í Iyfjabúð
Laugavegar.
Veðráttan
Komið er út mánaðaryfirlit októ-
bers, samið í Vfeðurstofunni. Hér í
Reykjavík varð hitinn mestur 12,6
stig, en minstur 6.5 stiga frost.
Fyrsta snjókoma á landinu í
haust, sem kunnugt er um, var
24. ágúst, en 10. okt. hafði fyrsti
snjór komið alls staðar á landinu.
Byrjað var að gefa kúm 23. sept.,
en að taka þær inn daginn eftir.
Þar, sem vitanlegt er um, að síð-
ast þurfti að byrja að gefa þeim,
var það 9. okt., en taka þær inn
18. okt. Þetta var að meðaltali
einum og þremur dögum fyrr en
í fyrra. Engi voru alhirt frá 21.
sept. til 28. okt., að meðaltali
tveimur dögum síðar en í fyrra.
ípróttasamband íslands
verður 15 ára 28. jan. 1927,
og ættu menn þá að styrkja það
með því að gerast æfifélagar
Sambandsins. — Æfifélagar eru
36, en sambandsfélögin eru yfir
100 að tölu. „I. S. f.“ er ráðu-
nautur landsstjórnar í öllum í-
þróttamálum.
Listaverkasafn
Einars Jónssonar verður opið á
sunnudaginn kl. ly-3.
Unglingastúkurnar í bænum.
Fundir næsta sunnudag, 2. jan.:
„Unnur“ kl. 10 árd., „Svafa“ kl.
1, „Díana“ kl. 2, „Æskan“ kl. 3
síðd. Teknar ákvarðanir um jóla-
tré. Samkvæmt ályktun gæzlu-
mannafundar. AV. Þeir ungling-
ar og börn, sem ekki líafa haft
„kikhósta“, eru vinsamlega beð-
in að sækja ekki fundina vegna
útbreiðsluhættunnar.
U. g. u. t.
Jóhannes listmálari Kjarval
hefir sýningu yfir hátíðina í
barnaskólanum í Hafnarfirði. Það
nýstárlega " við sýninguna er, að
þetta eru frumdrættir, sem ekki
hafa verið sýndir fyrr opinber-
lega.
Veðrið. -
Frost 3—16 stig. Kaldast á
Grímsstöðum, 7 stiga frost í
Reykjavík. Víðast norðlæg átt,
sums staðar allhvöss. Víðast þurt
veður. Djúp loftvægislægð við
Suður-Grænland; hreyfist senni-
lega hægt til norðausturs. Otlit:
Norðlæg átt í dag og á Austur-
landi í nótt. Annars staðar aust-
læg átt í nótt. Snjókoma á Vest-
fjörðum og Norðurlandi i dag, —
hríðarveður á Norðausturlandi.
Þurt veður á Austfjörðum og
Suðurlandi alt til Breiðafjarðar.
Tilkynning til „Dagsbrunar"-
manna.
Magnús V. Jóhannesson er flutt-
ur af Vesturgötu 29 á Nýlendu-
götu 22.
„Kikhóstinn."
Lesendurnir athugi auglýsingu
landlæknisins hér í blaðinu. Sá
sjúklingurinn, sem eigi var full-
víst um í gær, hvort hefði „kik-
hóstann“, hefir nú reynzt hafa
hann. Það er ung stúlka á fjöl-
mennum stað. (Samkvæmt símtali
við landlækninn.)
Togararnir.
„Eiríkur rauði“ kom af veiðum
í morgun með 1500 kassa.
„Menja“ og „Kári Sölmundarson‘’
fóru á veiðar í gær.
„ Vetraræf intýri"
verður leikið annað kvöld og
á sunnudagskvöldið.
Brauðsölubúðum
verður lokað kl. 6 í kvöld. Á
morgun verða þær opnar að eins
9—11 f. m.
Qengi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund.........kr. 22,15
100 kr. danskar . . . . — 121,77
100 kr. sænskar .... — 122,14
100 kr. norskar .... — 115,56
Dollar . . . . . . . — 4,56s
100 frankar franskir. . . — 18,27
100 gyllini hollenzk . . — 183,08
100 gullmörk þýzk... — 108,74
Óska öllum lýði gleðilegs
nýárs!
Oddur Sigurgeírsson,
ríthöfundur.