Alþýðublaðið - 08.01.1927, Qupperneq 3
aleýðublaðið
3
þólskra manna i Hafnarfirði kl. 9
f. m. söngmessa, kl. 6 e. m. guðs-
þjónusta með predikun.
J ólaHÉt liliitiiii
Hjálpræðishersins í Reykjavík
1926.
Kæru samborgarar!
Það stendur skrifað í opinberun
Jóhannesar, ad bœnin stígi sem
regkelsi upp til guös. — Gnægð
slíks reykelsis hefir eflaust stigið
upp til guðs 'frá hjörtiim margra
snauðra samborgara vorra síðast
liðna jölaviku, er á þann hátt
mintust hinna mörgu Reykvíkinga
með þakklæti, er með örlæti sínu
studdu jóla-úthlutun vora hér í
Reykjavík, sem varð fyrir þá sök
meiri nú en nokkru sinni fyrr.
Hér er ekki rúm til að skýra
frá öllum þeim hjartnæmu og
klðkku þakkarorðum, sem bárust
oss til eyrna frá öllum þessum
fátæka hópi. Ég vil því að eins
flytja yður hugheilar þakkir allra
þiggjendanna, og ég hygg, að það
muni yður finnast nægileg laun
fyrir rausn yðar. Þér getið vissu-
lega treyst því, að guð heyrir
bænir fátæku ekknanna og mun-
aðarlausu gamalmennanna, og að
hann skilur og metur á réttan
hátt þá innilegu þakkarkend, sem
bærði hjörtu Iitlu barnanna, þeg-
ar þeim var sagt, að þessi jóla-
glaðningur væri sendur þeim af
samúðarfullum borgurum víðs
vegar í Reykjavík. Já, innan stein-
veggja betrunarhússins í Reykja-
vik slógu einnig þakkarklökk
hjörtu hina helgu jólanótt, sem
mintust án efa allra þeirra, er
gefið höfðu í jólapotta Hjálpræð-
ishersins og á þann hátt stuðlað
að því, að þessara einstæðinga
var einnig minst. Ég komst við,
er ég sá ýmsa af þessum bræðr-
um vorum tárfella, þegar ég kom
til þeirra og afhenti þeim jóla-
bögglana. Um jólin stíga rninn-
ingarnar fram úr fylgsnum
gleymskunnar.
Ég get að eins þakkað ykkur
öllum fyrir aðstoð yðar og örlæti
við þessa síðustu jóla-fjársöfnun.
Ég hefi ekki leyfi til að nefna nöfn
einstakra ágætismanna og kvenna,
er færðu oss sérstaklega rausnar-
legar gjafir og áttu alldrjúgan
|)átt í þeim góða árangri, er náð-
ist, en ég þakka ykkur öllum enn
á ný. Jafnframt þakka ég guð-
fræðinemum háskölans og skát-
unum, sem gættu jólapottanna
unum, sem gættu jólapottanna
fyrir oss. Sönxuleiðis þakka ég
rafmagnsstjóranum og öðrunx
þeim, er gáfu oss og útbjuggu
stóra, fallega jólatréð, senx varð
bæði til nytsemdar og prýði. Síð-
ast, en ekki sízt, þakka ég rit-
stjórum blaðanna, sem jafnan
reyndust fúsir að minna samborg-
arana á jóla-úthlutunina, og eiga
þeir og blöð þeirra að sjálfsögðu
ekki hvað minstan þátt í árangri
samskotanna.
Jóla-úthlutunin.
Tekjur:
Innkomið í jólapottana og kr.
heimsent til vor....... 3675,83
Innkomið í pottinn við
jólatré Hjálpræðishersins 793,91
Gefin kol fyrir............ 1200,00
Gefin 178 pör tréskór(gjöf
frá J. Þ.) fyrir........ 400,00
Gefinn f atnaður ýmiss konar
fyrir.................. 1800,00
Gefins aðrar vörur, s. s.
brauð, kjöt og smjörlíki
fyrir . . . .......... , . 715,00
kr. 8583,74
Gjöld:
Úthlutað 168 jólabögglum kr.
(matvörur)........... 1650,45
Úthlutað peningum til fá-
tækra.................. 1560,50
Uthlutað peningum til sjúk-
ra...................... 392,10
Jólaboð fyrir fullorðna og
börn................... 957,26
Jólaboð fyrir innlenda og
útlenda sjómenn........ 138,52
Barnastarfsemi Hjálpræðis-
hersins................. 100,00
Úthlutað ýmiss konar fatn-
aði fyrir 1800,00 og tré-
"'"sköm fyrir 400,00 ...... 2200,00
Úthlutað kolum fyrir. . . . 1200,00
Ýmiss konar útgjöld við
undirbúning jólaúthlut-
unarinnar............... 271,60
I sjóði.................. . . 113,31
kr. 8583,74
Kristian Jolmsen, adjutant.
Um daginn og vegmss.
Næturlæknir
jer í nótt ólafur Jónsson, Vonar-
stræti 12, sími 959, og aðra nótt
Gunnlaugur Einarsson, Stýri-
mannastíg 7, sími 1693.
Næturvörður
er næstu 'víku í Iyfjabúð Reykja-
vikxxr.
Fræðslufundur „Dagsbrunar“
verður á morgun kl. 2 í skrif-
stofu hennar í Ungmennafélags-
húsinu.
Margir skeltu upp úr
í gær, þegar þeir lásu í „Mgbl.“
grein um smekk og smekkleysur i
skáldskap og sáu, að undir henni
stóð „J. B.“
Austanpóstur
fer héðan í fyrra málið.
Otti og dugnaður.
I smágrein í gær um nýjárs-
ræðu Jóns Kjartanssonar „rit-
stjóra“ varð prentvilla. Þar átti
að standa: Uppistaðan í grein-
inni er ótti við verkamennina og
þessa ógurlegu foringja þeirra, og
lítur helzt út fyrir, að Jón hafi
skolfið, á meðan hann skrifaði. —
Prentvillupúkanum þóknaðist hins
vegar að snúa því svo, að Jón
hefði sofið eins og vant er.
MIn árlega
ÚTSALA
stendnr yfir frá 6.«I6. þ. m.
Hér er sérstæklep yott tækifæri
til aö gera göð innkanp.
Ég leyfi mér að vekja athygli viðskiftavina minna á
pví, að ég hefi að eins haft eina útsðln á ári, og
pess vegna hefir útsala mín ait af haft margt
og gott að hjóða, og má hér nefna:
Mörg hundruð metra af morgunkjólaefni að eins
1 kr. mtr. í kjólinn frá kr. 2,50—3,00
Frottetau, hefir kostað kr. 6,50, nú 2 kr. meterinn.
Sængurdúkur, einbreiður, áður kr. 3,50, nú að eins 1,50.
Flauel, rautt, grátt og brúnt kr. 3,90 mtr.
Herra-sportbuxur, svartar og hvítköflóttar, áður kr.
26,00, nú 12,00.
Ágætir alhör damask Borðdúkar á kr. 8,50 og 10,00.
Dömurykfrakkar, nokkuð stór nr., áður 100,00, nú
45,00, og 50,00.
Dömuvetrarkápur, alt, sem eftir er, verður nú selt fyrir
gjafverð.
Til dæmis úlsterar, sterkir og góðir að eins 25 kr.
Kápur, sem hafa kostað 185,00, seljast nú fyrir 85 kr.
Hér er um óheyrilega lágt verð að ræða.
Dívanteppi mjög þykk og góð, hafa kostað 45 kr.f
seljast fyrir að eins 25 kr.
Regnhlífar, það, sem eftir er með löngu skafti, nú^að
eins 4 til 8 kr., hafa kostað 20 til 26 kr. stk.
Karlmannapeysur, þykkar, dökkbláar, áður 24 kr., nú
12 kr., langt undir innkaupsverði.
Undirkjólar og hv. skjört, áður kr. 8,00, nú kr. 4,00,
langt undir innkaupsverði.
Dömunáttkjólar, með heil- og hálf-ermum, á að eins 6 kr.
Barnasokkar, svartir, þykkir úr ull, á 1—8 ára, kosta,
hvaða stærð sem er, að eins 1 kr. parið.
Dömusokkar, mislitir og röndóttir úr ísgarni, sem hafa
kostað kr. 5,50, seljast nú fyrir að eins 2 kr. parið.
Þessir sokkar eru afar-hentugir, sterkir og góðir.
Drengjasvuntur, nokkuð stór númer nr., að eins kr.
1,50 stk.'
Telpusvuntur, dökkar kr. 3,00.
Barnaullarlegghlífar, lítil númer, að eins 1 kr. parið..
Drengjahúfur, til að bretta niður, 0,75.
Gardínutau, hvítt og crem, frá 1,50 pr. metr. tvíbreiður.
Karlmannaflibbar nr. 38, 41 og 42, að eins 50 aura stk.
Breiðar broderingar í barnakjóla, hafa kostað kr. 4,85,
seljast nú fyrir 2,50.
Allar vörur með 10% afslætti fsessa daga.
Heynið eg pép mnnnð sammfaerast
tim, all hér e&* mim vepnlega
verllækkMBi að pælla.
Sv. Juel Henniigsen,
AmstUFstrœti 7.
Slmi ©28. Síbbbí f§2£3.