Alþýðublaðið - 15.01.1927, Qupperneq 3
^lþýðublaðið
3
vöntun á ræktun landsins, en-ekki
fólksleysið, sem amar sveitabú-
skapnum, — enginn betur en
einmitt Valtýr Stefánsson, einn af
blaðritarahöfuðsmönnum íhalds-
ins, gerði í grein í „Búnaðarrit-
inu“ fyrir nokkrum árum, en sú
grein mun bæta fyrir sumar af
syndum peim, er hann síðan hefir
framið í „Morgunblaðinu".
Það er auðvaldið í kaupstöð-
unum, sem stendur bændum fyr-
ir þrifum eins og verkamönnum.
Auðvaldið er sameiginlegur óvin-
ur verkamanna, sjómanna og
bænda, — með öðrum orðum —
óvinur íslenzku þjóðarinnar. Og
að svo sé, skýrist með hverju ári
betur fyrir henni. En ekkert er
eins gott til þess að skýra málið
fyrir almenningi, eins og þegar
höfðingi íhaldsins sendir honurn
slíka kveðju og greinina „Ómag-
ar“. Skiftir þá litlu, hvort Jón
Þorláksson skrifar sjálfur eða
lætur blaðritara sína gera það,
'því að í hans nafni eru allar nafn-
lausar greinar íhaldsblaðanna, og
á hann einn þar til saka að svara.
Hann gæ'.i þess vegna alveg eins
skrifað nafn sitt undir þær eins
og að hafa þar nxerki, er líkist
fari eftir þjalarrýting, þó að það
merki eigi að sumu leyti vel við
|um grein, sem er rýfingur í bak
reykvíkska verkalýðsins.
13. jan.
Ölafur Fridriksson.
„Baltiolmsu-slysið.
I norska sjórn. nnablaðinu í jan-
úar stendur grein með fyrirsögn-
inni:
„BalhoIms“-strandið.
Öryggið á sjönum.
Birtist þessi grein hér í laus-
legri þýðingu.
Ú.gerðarmenn hafa verið bæn-
heyrðir. Barrabas hefir verið láí-
inn laus. í hvert einasta skifti,
þegar útgerðarmenn halda fundi,
ræða þeir um, á hvern hátt þeir
geti komist hjá að fullnægja ýms-
urn ákvæðum, sem tilheyra öryggi
manna á sjönum. Lögin, sem
tryggja líf manna á sjónum, eru
í herbúðum útgerðarmanna nefnd
„krabbamein þjóðfélagdns“, sem
verði að hverfa. Það er því mjög
skiljanlegt, að skipin fái leyfi til
að sigla á haf út, hvort sem þau
geta flotið eða ekki.
Við lítum svo á, að „Balholms“-
slysið sé talandi vottur um þann
svívirði’ega undirróður frá hendi
útgerðarmanna í þessu máli, sem
hefir borið þann ávöxt, að menn
og skip hverfa með öllu.
Kurt Thurau, sem var viðvan-
ingur á skipinu, en var afskráður
af því á íslandi, skýrir svo frá:
Þegar skipið lá síðast í Kaup-
mannahöfn, fór fram rannsókn á
boíni þess, gerð af kafara.
Reyndust þá að vera sprungur i
kjöhium og þrir naglar í tofrplöt-
um ónýiir, en það orsakaði leka
á skipinu. Engin viðgerð var láíin
fara fram þar, en samt sem áður
fékk skipið vottorð um, að það
væri sjófært. Skipstjórinn hafði
gefið skipun um, að dælur skips-
ins skyldu vera í gangi, á meðan
skoðunin var framkvæmd, svo að
ekld sæist, að skipið læki. Á
þenna hátt tókst að losna úr
Kaupmannahöfn án þess, að skip-
ið færi í þurkví.
Skipshöfnin var eftir sem áður
fullviss um, að skipið var lekt,
og fullvissaðist betur um það,
þegar skipið var við Skaga-odd-
ann, því að þá var sex feta sjór
í lestunum. Upp frá því urðu dæl-
urnar að vera í gangi dag og
nótt, og þó hélzt tveggja feta
sjór í lestunum eftir sem áður.
Við komu skipsins til Reykja-
vikur tóku skipverjar eftir því,
að allar rottur yfirgáfu skipið.
Annar véTstjóri varð að fara í
land vegna veikinda. Skipverjar
töluðu þá um að ganga af skip-
inu, ef skipstjóri léti ekki gera
við lekann. Þeir fóru því fram á
það við hann, að gert yrði við
skipið, en framkvæmdir af hans
hálfu urðu þó engar. Samkvæmt
beiðni skipstjóra varð skipshöfnin
kyrr á skipinu. Frá Reykjavík var
ferðinni haldið áfram til Akur-
eyrar og komið við á niu stöðum
á leiðinni, þar á meðal á Eski irði.
Á leiðinni þangað var skipið með
siglingahalla (slagside) ýmist til
stjórnborða eða bakborða, sem
nam 37 stigurn. [0 stiga halli: skip
á rétturn kili, en 90 stiga halli, ef
það lægi alveg á hliðinni. 37
stig er því gríðarmikill halli.]
Skipshöfnin var nú orðin veru-
lega hrædd við þetta og vildi
yfirgefa skipið á Eskifirði. En
skipstjóri gat talið menn á að
vera kyrra og h.élt því fram, að
hann gæti ekki fengið nýja skips-
höfn á islandi (Eskifixði ?).
Sá eini, sem fór af skipinu,
var Thurau, sem þá var orðinn
veikur.
Á Akureyri tóku fjórir farþeg-
ar sér far með skipinu og nýr
annar vélsfjóri. Þaðan fór skipið
áleiðis til Reykjavíkur, sem því
þö aldrei auðnaðist að komast til.
Við það, sem nú hefir verið
skráð, ge'.um við bætt nokkrum
athugasemdum. 59. grein sjólag-
anna ákveður:
„Þegar helmingur af skipshöfn
kvartar yfir því við skipstjóra,
að skip sé ekki sjófært, er skip-
stjórinn skyldugur til að láta fara
fram skoðunargerð" o. s. frv.
„Sýni skoðunargerðin það, að
kvörtunin var ástæðulaus, skulu
þeir, sem komu henni af stað,
greiða kostnað og fyrirhöfn og
tap það, sem skoðunargerðin hef-
ir valdið, þó ekki með meira en
þriggja mánaða kaupi nema því
að eins, að kvörtunin sé gerð
móti betri vitund.“
Af efni þessarar greinar geta
menn séð, að skipshafnir taka í
99 tilfeTum af hundrað þann kost-
inn að þegja heldur en að eiga á
hættu að missa þriggja mánaða
kaup.
I sjólaganefndinni voru útgerð-
armennirnir og þeirra fylgismenn
í meiri hluta. í stórþinginu, sem
lagði síðustu hönd á þessa laga-
grein, eru bændur og burgeisar
í meiri hluta. Þess vegna skulu
bændur einnig fá að bera sinn
hluta af ábyrgðinni á „Balholms“-
slysinu, — því að 59. grein sjó-
laganna er ómöguleg í fram-
kvæmd. Ef síðasta málsgrein 59.
greinar er srikuð út, þá munu
sparast þúsundix mannslífa á
sjónum í framtiðinni.
Þýtt af S.
<s
Um daginn og veginn.
Næturlæknir
er í nótt Friðírik Björnsson,
Thorvaldsensstræti 4, símar 1786
og 553, og aðra nótt Kjartan Ól-
afsson, Lækjargötu 4 uppi, sími
614.
Nætrvörður
er næstu viku í lyfjabúð Lauga-
vegar.
Stúkan „Vikingur"
nr. 104 heldur árshátíð sína ar.n-
að kvöld kl. 8V2> í G.-T.-húsinu, og
væntir hún, að templarar muni
eftir því.
Jafnaðarmannafélagið „Sparta"
heldur skemtun í „Hótel Heklu“
kl. 9 í kvöld.
Séra Jakob Kristinsson
flytur framhald fyrirlesturs síns
um fregnir af nýjum mannkyns-
fræðara á morgun kl. 3 í Nýja
Bíó.
Messur
á morgun: í dómkirkjunni kl.
11 séra Hálfdan Helgason, kl. 5
séra Bjarni Jónsson. f fríkirkj-
unni kl. 5 séra Árni Sigurðsson.
f Landakotskirkju kl. 9 f. m. há-
messa,- kl. 6 e. m. guðsþjónusta
með predikun. 1 Aðvéntkirkjunni
kl. 8 e. m. Séra O. J. Olsen pre-
dikar um helgidömsþjónustu
Krists. f Sjómannastofunni
verður guðsþjónusta kl. 6 e. m.
Allir velkomnir. — í Spítalakirkj-
unni (kaþ.) í Hafnarfirði kl. 9
f. m. söngmessa, kl. 6 e. m. guðs-
þjónusta með predikun.
„V etraræf intýri“
verður leikið annað kvöld með
niðursettu verði.
HF. 18
er númer bifreiðar Sigurðar
Guðmundssonar í Suðurgötu 4 í
Hafnarfirði, sein sagt var frá í
|gær í greininni „Strákskapur“ að
gerði tvær tilraunir til að aka of-
an á verkamenn, er á verði voru.
Togararnir.
„Kári“ kom af veiðum í gær-
kveldi með 104 tunnur iifrar og
25 kassa heilagfiskis í ís, en
brotna vindu. Á hann aÖ fá við-
gerð þess hér í dag. Fer hann
aftur að því loknu, líklega í
kvöld. Ætlar hann fyrst að fiska
dálítið í ís og fara síðan til Eng-
lands með áflann, einnig saltfisk-
inn. „Ólafur“ kom í morgun af
yeiðum með 1100 kassa. Var hanffi
að fiska vestra, og segja skip-
Verjar þaðan gott veður og gott
fiski. Varð togarinn að fara þaðan
fyrr en ætlað var vegna dálítillar
vélaxbilunar. Einnig kom enskur
togari hingað í gær af veiðum.
„Karlsefni“ fór á veiðar í gær.
Skipafréttir.
Fisktökuskipið „Bru“ kom hing-
að í gær annars staðar frá land-
inu. „Bo:nía“ er í Vestmannaeyj-
um. Er hún afgreidd þar imdir
eftirlit sýslumannsins, þannig, að
þeir, sem á skipinu eru, hafi ekki
nein mök við landsmenn, þau, er
sótthætta er talin af. Hún kemur
hingað e. t. v. á morgun eða ekki
fyrr en á mánudaginn. Dagarnir
sex verða útrunnir á mánudags-
morguninn.
]þ >íp! >'F Qtjj| Li,1 %
„Inflúenzan“ i Kaupmannahöfn
heldur áfram, en er mjög væg,
segir í skeyti í gær frá sendi-
lierra islands þar til stjórnarráðs-
ins.
Gengi erlendra mynta i dag:
Sterlingspund. . . .' . kr. 22,15
100 kr. danskar .... — 121,64
100 kr. sænskar .... — 122,00
100 kr. norskar .... — 117,26
Dollar.............. . — 4,568/í
100 frankar franskir. . . — 18,31
100 gyliini hollenzk . . — 182,88
100 gullmörk þýzk... — 108,50
Veðrið.
0—11 stiga frost. Kaldast á
Grimsstöðum, 10 stig á Akureyri,
4 hér. Átt austlæg á Suðvestur-
landi til Breiðafjarðar, sunnankul
á Akureyri, logn annars staðar.
Hvergi nijög hvast. Þurt veður,
nema lítil snjókoma á Seyðisfirði.
Loftvægislægð fyrir suðaustan
land og önnur yfir Grænlandi.
Útlit: Vaxandi austanátt á Suður-
landi ög sennilega í nótt á Vest-
ur-landi, byrjar í dag á Suðvest-
urlandinu og verður sennilega all-
hvöss hér um slóðir i nótt og
dálítil snjókoma, en hægur í dag
vestra og á Suðausturlandi. Dá-
Iítil snjókoma á Austurlandi.
Rétt er,
„Mgbl.“ til athugunar, að geta
þess, úr því að V. St. virðist
ekki hafa athugað það, að skrif
hans um baðstofu Iðnaðarmanna-
félagsins, ekki sízt dómur hans
um hendurnar, sem Ríkharður
Jónsson skar út, — að þær værú
of líkar mannshöndum —, vöktu
almennan hlátur í bænum, þar
sem greinin var lesin á annað
borð.
ísfisksala.
„Arinbjörn hersir“ seldi afla
sinn í Englandi fyrir 1284 sterl-
íngspund.